Bændablaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 5
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 20075 Skipulag átaksins er eftirfarandi: Íslendingar eru hvattir til að veiða mink. Þegar minkurinn hefur verið veiddur er tekin mynd af bráðinni og veiðimanninum og hún send til Skotveiðifélags Íslands, helst með tölvupósti til skotvis@skotvis.is eða í pósti til: Skotveiðifélag Íslands Holtagerði 32 200 Kópavogur Einnig má senda skriflegt vottorð þar sem aðili sem náð hefur lögaldri vottar að viðkomandi hafi veitt minkinn. Með myndinni eða vottorðinu þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar: Nafn veiðimanns og kennitala, heimilisfang, sími og tölvupóstfang. Þá þurfa að fylgja upplýsingar um það hvar minkurinn var veiddur, þ.e. sveitarfélag og staður. Þá þarf að tilgreina veiðiaðferð þ.e.a.s. hvort minkurinn var veiddur mað skotvopni, í gildru eða með hundi. Minkaveiðiátak Skotveiðifélags Íslands 2007 og 2008 Minkurinn er mikill vágestur í íslenskri náttúru. Frá því að minkurinn var fluttur hingað til lands árið 1931 hefur hann stöðugt numið land á nýjum stöðum. Þrátt fyrir að gríðarlegum fjárhæð- um hafi verið varið til að útrýma mink eða halda honum í skefjum hefur það ekki borið tilætl- aðan árangur. Þess vegna er nauðsynlegt að herða enn baráttuna gegn minkinum. Þátttaka í átakinu er öllum heimil. Tilgangur átaksins er að veiða eins marga minka og unnt er á ári hverju og halda með því stofninum í skefjum og helst að útrýma honum alveg, í það minnsta á við- kvæmum stöðum í íslenskri náttúru. Verðlaun Hver sá sem veiðir mink og sendir Skotvís mynd eða vottorð fær að launum fallega barmnælu með mynd af minki. Átakinu er skipt í þrjá þætti: a) Veiðar með skotvopni b) Veiðar í gildru c) Veiðar með hundi Nöfn allra þeirra sem veiða mink fara í pott sem dregið verður úr 1. desember 2007 og 1. desember 2008. Flokkarnir sem verðlaun verða veitt fyrir eru þrír og verða þrenn verðlaun veitt í hverjum flokki: Allir geta tekið þátt Allir geta tekið þátt í þessu þjóðþrifaátaki án tillits til aldurs eða búetu. Ekki þarf veiðikort til að stunda veiðar á minki með gildru eða hundi. Sé skotvopn notað við veiðarnar þarf viðkomandi vitaskuld að hafa skotvopnaleyfi. Eftirtalin atriði eru þó afar áríðandi: Brýnt er að börn undir 16 ára aldri stundi ekki veiðar á minki nema í fylgd með fullorðnum. Skotveiðifélag Íslands vill þó taka það skýrt fram að minkaveiðar unglinga undir 18 ára aldri eru alfarið á ábyrgð foreldra eða forráðamanna. Þá ber minkaveiðimönnum að virða eignarrétt landeigenda. Minkaveiðar eru því óheimilar á landi í einkaeigu nema með leyfi landeigenda. Nánari upplýsingar á www.skotvis.is Veiðar með skotvopni: 1. Riffill af gerðinni Brno cal. 22LR með sjónauka og tösku 2. Úttekt í versluninni Ellingsen fyrir kr. 20.000 3. Bókin „Íslensk spendýr“ Veiðar í gildru: 1. Farmiði fyrir tvo til Kaupmannahafnar með Flugleiðum 2. Úttekt í versluninni Hlað fyrir kr. 20.000 3. Bókin „Íslensk spendýr“ Veiðar með hundi: 1. Videovél af gerðinni Canon MVX4i 2. Úttekt í versluninni Veiðihornið fyrir kr. 20.000 3. Bókin „Íslensk spendýr“ Landssamtök um skynsamlega skotveiði

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.