Fréttablaðið - 09.01.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.01.2012, Blaðsíða 10
10 9. janúar 2012 MÁNUDAGUR frá degi til dags greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is fréttastjórar: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is Helgarefni: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is menning: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is allt og sérblöð: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is íþróttir: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is ljósmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðslustjóri: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. stjórnarformaður: Ingibjörg S. Pálmadóttir forstjóri og Útgáfustjóri: Ari Edwald ritstjóri: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is aðstoðarritstjóri: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Þ egar nákvæmlega ár er liðið frá því að mengunarhneyksl- ið vegna Funa á Ísafirði komst í hámæli kemst nýtt mengunarmál í fréttirnar. Sá fréttaflutningur bendir ekki til að menn hafi lært mikið af fyrra málinu. Í Funa-málinu komst upp að opinberar eftirlits- stofnanir vissu að díoxínmengun frá sorpbrennslustöðinni Funa væri margfalt yfir þeim mörkum sem leyfð eru í sorpbrennslum. Á þeirri vitneskju lá kerfið í meira en þrjú ár og íbúar á svæðinu fengu ekki upplýsingar um mengunina fyrr en hún mældist í mjólk frá nærliggjandi býli. Forsvarsmenn Ísafjarðar- bæjar, Umhverfisstofnunar og umhverfisráðuneytisins hafa síðan viðurkennt að það hafi verið mistök að segja ekki frá niðurstöðum mengunarmælinga um leið og þær lágu fyrir. Sumir hafa meira að segja beðizt afsökunar. Í málinu sem nú er komið upp er staðfest að bæði Skeljungur hf. og Matvælastofnun vissu síðastliðið vor að fyrirtækið hafði flutt inn áburð sem var ósöluhæfur vegna þess að kadmíuminnihald í honum var langt yfir leyfilegum mörkum. Engu að síður var áburðurinn settur í sölu og engum sagt frá kadmíummenguninni fyrr en í desember síðastliðnum. Eftir býsna vandræðalegt undanhald í nokkra daga hafa nú bæði forstjóri Matvælastofnunar og forstjóri Skeljungs viður- kennt hér í Fréttablaðinu að rétt hefði verið að segja frá málinu strax í júní, þegar óyggjandi niðurstöður um kadmíum innihaldið lágu fyrir. Hvorugur telur hins vegar ástæðu til að biðjast af sökunar á mistökunum. Forstjóri Matvælastofnunar segir að verklagi verði nú breytt og sagt strax frá upplýsingum af þessu tagi, enda hafi stofnunin enga ástæðu til að leyna þeim. Sennilega er það rétt, sem bent hefur verið á, að dreifing áburðarins hafi ekki valdið varanlegum skaða. Til þess að valda tjóni þyrfti að dreifa jafnmenguðum áburði árum saman. Það breytir ekki því að viðskiptavinir Skeljungs áttu að sjálfsögðu rétt á að vita hvers kyns var, um leið og niðurstöður mælinga á áburðinum voru klárar. Bæði Skeljungur og Matvælastofnun bera ábyrgð á að bændur fengu ekki þessar upplýsingar. Í kjölfar Funa-málsins lögðu Ólína Þorvarðardóttir og þrír aðrir þingmenn fram frumvarp á Alþingi, sem á að bæta rétt almennings til upplýsinga um umhverfismál. Þar er meðal annars þessi grein: „Stjórnvöldum er ævinlega skylt að hafa frumkvæði að upplýsingagjöf sé ástæða til að ætla að veruleg frávik vegna mengandi efna í umhverfi geti haft í för með sér hættu eða skað- leg áhrif á umhverfi eða heilsu fólks eða dýra.“ Engin vanþörf virðist á að festa aukna frumkvæðis- og viðbragðs skyldu stjórnvalda í lög. Kannski þyrfti líka að skikka menn með lagaboði til að biðjast afsökunar á mistökum í þessum efnum, fyrst þeir eiga svona erfitt með að gera það að fyrra bragði. ólafur þ. stephensen olafur@frettabladid.is sKoðun Halldór Síðasta útspil umhverfisráðherra í stríði hennar við veiðimenn og útivistarfólk landsins er atlagan að svartfuglsveiðum Íslendinga. Veiðar á svartfuglum hafa verið stundaðar frá landnámi og án efa hafa stofnarnir sveiflast í stærð, líkt og nú virðist vera að gerast. Ástæða niðursveiflunnar er sennilega breytingar á fæðuframboði í hafinu og ljóst að skotveiðar hafa engin áhrif þar um. Engu að síður er það niðurstaða meiri- hluta starfshóps að friða skuli þessa stofna, sem telja milljónir einstaklinga hver um sig, fyrir veiðum sem nema fáum tugum þúsunda fugla á ári. Veiði- álagið er jafnvel innan við 1% af stofn- stærð sem þykir afar lítið sé litið til veiðistjórnunar. Enda kom það á daginn að Umhverfis- stofnun, sem veiðistjórnun heyrir undir skv. lögum, treysti sér ekki til að skrifa upp á alfriðun enda vita menn þar á bæ að slíkt bann er marklaust og tilgangs- laust. Niður staða nefndarinnar kom hins vegar engum á óvart enda var hand valið í hópinn til að tryggja „rétta út komu“. Í grein ráð herra í Fréttablaðinu 5. janúar minnist Svandís ekki einu orði á að starfs hópurinn klofnaði í fernt, þ.e.a.s. UST og SKOTVÍS skiluðu sér áliti og Bænda samtökin sögðu sig frá starfinu. Um ræddur „meiri hluti“ í sjö manna starfs hópi saman stóð af fjórum opin- berum starfsmönnum og friðunarsinnum sem neituðu að ræða rök með veiðum og skeyttu engu um skaðsemi tillagnanna fyrir veiðikortakerfið, kerfi sem aðrar þjóðir öfunda okkur af. Ljóst er að ráð herra ætlar enn að vega að frelsi fólks til að stunda skynsam- legar veiðar, fyrst upp til fjalla og nú á hafi úti. Ekkert fær að vera í friði og greinilegt að Náttúrufræðistofnun er tilbúin að styðja við hvers kyns boð og bönn, sama hversu vitlaust sem það er, eins og fram kom í viðtali við forstjórann í Morgunblaðinu 4. janúar: „...það verður bara að gera eitthvað til að reyna að sporna við þróuninni.” Skotveiðifélag Íslands mótmælir þessum tillögum harðlega og bendir á skynsamlegri leiðir sem félagið hefur unnið og finna má á heimasíðu félagsins www.skotvis.is Svandís og svartfuglarnir friðun svartfugla árni elvar lund sjávarútvegs- fræðingur og formaður Skotveiðifélags Íslands Styrkir til menntamála Opnunarráðstefna Menntaáætlunar Norrænu Ráðherranefndarinnar 11. janúar 2012 15-17 Hótel Sögu Nánari upplýsingar og skráning á www.nordplus.is Annað mengunarklúður kemur upp nákvæmlega ári eftir Funa-hneykslið: Erfitt að biðjast afsökunar mat á mati kallar á nýtt mat Fjármálaráðherra hefur heimild til að ábyrgjast fjármögnun Vaðlaheiðar- ganga og ekkert virðist því að vanbúnaði. Nema það að menn eru engan veginn sammála um það hve margir munu nýta sér göngin. Nú er komið út mat verkfræðings á mati hagfræðings og að mati þess síðarnefnda er mat þess fyrrnefnda mjög matskennt. Eiginlega meira en það, það sé einfaldlega fölsun á fyrra matinu. Betur væri ef legið hefði fyrir hlutlaust mat á fram- kvæmdinni áður en þáverandi fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fékk heimildina frá Alþingi. gömul framtíð Nýr flokkur Guðmundar Steingríms- sonar og Besta flokksins mun heita Björt framtíð og sýnist sitt hverjum. Ósáttastir eru þeir sem eru í öðru stjórnmálaafli, sem hafði nú ekki farið hátt. Ný framtíð heitir það afl, sem verður að teljast nokkuð sér- stakt nafn. Er framtíð ekki alltaf ný, eða er einnig til gömul framtíð? Við og þið pólitíkin Jón Baldvin Hannnibalsson er ekki hrifinn af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta lýðveldisins. Honum hrýs hugur við því að Ólafur bjóði sig fram aftur, aðallega þar sem hann er á móti Evrópusambandinu að mati Jóns. Og á hverju byggir hann það mat? Jú, í Silfri Egils í gær sagði Jón Baldvin Ólaf vera persónulega handgenginn valdhöfum í Kína og á Indlandi og því væri hann hatrammur andstæðingur ESB. Ólafur getur sem sagt ekki bæði verið hrifinn af Indlandi/ Kína og ESB, hann verður að velja. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.