Fréttablaðið - 01.02.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.02.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Miðvikudagur skoðun 12 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Allt 1. febrúar 2012 27. tölublað 12. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Málþing um framtíð ferðamannaborgarinnar Reykjavíkur verður haldið á vegum Höfuðborgar- stofu í Hörpu fimmtudaginn 9. febrúar frá 14 til 16. Yfirskriftin er: Hvernig aukum við samkeppn- ishæfni Reykjavíkur og styrkjum stöðu ferða- mannaborgarinnar? M arkmiðið með ferðinni var að finna stað fyrir snjóhús, grafa það og gista í því um nótt-ina,“ segir Ásgeir Eggertsson sem ásamt félögum sínum í nýliðahópi tvö í Hjálparsveit skáta í Garðabæ byggði og svaf í snjóhúsi á Hellis-heiði um liðna helgi í beljandi rign-ingu. „Við lögðum af stað á laugardags-morgni, fórum upp á Hellisheiði og gengum frá Suðurlandsvegi inn að skátaskálanum Þrymheimum,“ lýsir Ásgeir sem ásamt félögum sínum varð samferða stórum hópi fólks á nýliðanámskeiði sveitarinnar. Bygging snjóhú er reyndar skemmtilegt að segja frá því að nýliðar síðustu ára hafa ekki getað byggt snjóhús vegna snjóleysis. Þannig hafði leiðbein-andi okkar aldrei áður byggt snjó-hús fyrr en nú um helgina,“ segir Ásgeir glaðlega en bætir við að hann hafi þess í stað verið með fræðin alveg á hreinu. Veðrið var afleitt þennan dag, rok og rigning. Ásgeir segir að töluvert hafi lekið í gegnum snjó-inn til að byrja með. „En svo virt-ist snjórinn þéttast og lekinn hætti þegar lengra var komið. Svo lak ekkert á okkur þegar snjóhúsið var fullbúið,“ segir hann etí Vistina í húsinu um nóttina segir hann hafa verið nokkuð góða. „Við vorum með svokallaðan bivak sem er utanyfirpoki yfir svefnpokann og dýnuna til að verja okkur fyrir raka,“ útskýrir hann en viðurkenn-ir að nokkuð rakt hafi verið orðið í svefnpokanum undir morgun. „Maður fann hins vegar til vellíð-unar að hafa búið til eigið afdrep til að sofa í, það var skemmtileg tilfinning.“ En er ekkert hættulegt að sofa í svona húsi? Gæti það hrunið eða loftið klárast? „Við vorum með iðloftgat s l Nýliðahópur tvö úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ gróf sig í fönn á Hellisheiði um liðna helgi. Ásgeir er hér lengst til vinstri með félögum sínum í Nýliðum 2 úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ. MYND/ÁSGEIR EGGERTSSON Niðurrignd í snjóhúsi BonitF opnunartimi Lagersölu fimmtud-laugard. 12 -18 00 LAGERSALA HEFST Á MORGUNFIMMTUDAG 02.02 KL.12.00AÐEINS Í 3 DAGA 3.STK BUXUR KR. 5.000.-EÐA VELUR 3. FLOTTAR FLÍKUR OG GREIÐIR KR. 6.000.-VATTERAÐIR JAKKAR KR. 5.900.-VETRAR JAKKAR 5.900.-JAKKAR FRÁ 2.900-VERÐ SEM ÞÚ HEFUR EKKI SÉÐ ÁÐURKOMDU ÞETTA ER SVO GEGGJAÐ DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Vertu vinur Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugard. 10-14. Vandaðir þýskir herraskór úr leðri í úrvali Til dæmis:Teg: 23007/221 • Litur: svartStærðir: 40 - 47 • Verð: 16.975.- Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Nýr tilboðsbæklingur í dag Rannsakar bókstafinn ð Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson flytur fyrirlestur um tungumálasnillinginn Rasmus Kristján Rask. tímamót 18 SAMGÖNGUR Frá áramótum hefur verð á bensíni hækkað um sem nemur 18 krónum. Hækk- un undanfarinna tveggja daga er nálægt fjórum krónum. N1 reið á vaðið í fyrradag með hækkun úr 242,7 krónum á lítrann í 246,7 krón- ur. Í gær fylgdu svo hækkanir á öllum öðrum bensínstöðvum. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiða- eigenda, telur að hækkanirnar nú ráðist að nokkru af hækkun heims- markaðsverðs. „Fyrir helgi hækk- aði bensín út af alls konar spákaup- mennsku,“ segir hann, en óvissa um þróun mála hvað varðar elds- neytiskaup Evrópusambandslanda á olíu frá Íran hefur aukið óróleika á markaði sem leitt hefur til hækkana. Hækkanir á opinberum gjöldum hér innanlands um áramót hefur að auki tekið að hafa áhrif hjá olíu- félögum. „Þær hafa komið til fram- kvæmda með nýjum birgðum,“ segir Runólfur. Síðustu hækkanir hafi verið um þremur krónum minni í Danmörku, þrátt fyrir svipaða gengisþróun gagnvart dollar og að teknu tilliti til skattahækkana hér. „Það virðist vera í þessu tilhneiging til að auka aðeins við í álagningu.“ Eldsneytisverð hefur hækkað hratt frá hruni krónunnar 2008. Runólfur bendir á að þegar krónan hrundi hafi komið neytendum hér til góða að olíuverð á erlendum mörk- uðum hafi lækkað vegna samdráttar í efnahagslífi heimsins. Til þess að setja verðbreyting- ar síðustu ára í samhengi má líta til þess að árið 1990 kostaði tæpar 2.700 krónur að fylla 50 lítra bens- íntank. Á tankinum komst bíll sem eyðir 10 lítrum á hundraðið frá Reykjavík austur að Hvalnesvita (rúma 40 kílómetra austur fyrir Höfn í Hornafirði). Núna fást tæpir 11 lítrar af bensíni fyrir sömu upp- hæð og skila ökumanninum austur á Hvolsvöll. Bensínverð hefur sem sagt hækk- að um 367 prósent en þó ber að hafa í huga að almennt verðlag hefur hækkað um 178 prósent frá 1990. - óká 18 króna hækkun á árinu Eftir bensínhækkun síðustu daga komast ökumenn um fimmtung af þeirri vegalengd sem þeir komust fyrir tankfylli árið 1990. Verðhækkanir erlendis og aukin gjaldtaka um áramót liggja að baki hækkuninni. www.aspire.er.is ...BRENNIR YFIR 200 KALORÍUR ótrúlegt en satt... SPRENGJA Í MIÐBORGINNI Lögregla leitaði í gærkvöldi manns eða manna sem bera ábyrgð á sprengju sem sprakk við húsakynni nokkurra opinberra stofnana á Hverfisgötu í gærmorgun. Sprengjan var ekki kraftmikil en haganlega útbúin og ljóst að þar var alvara á ferð, að sögn lög- reglustjóra. Gríðarlegur viðbúnaður var á vettvangi og meðal annars notast við vélmenni áður en lögreglumaður íklæddur miklum hlífðarbúnaði gekk úr skugga um að hætta stafaði ekki lengur af sprengjunni. Sjá síðu 10 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Núna kostar 12.335 krónur að fylla tankinn E F E F 1990 2012 Árið 1990 kostaði 2.640 krónur að fylla 50 lítra bensíntank Eftir nýjustu hækkanir fást núna 10,7 lítrar fyrir þessar sömu 2.640 krónur Hvað kostar að fylla tankinn? LÍFSSTÍLL Áhugi kvenfólks á bardagaíþróttum hefur stóraukist undanfarin misseri. Jón Viðar Arnþórsson, formaður bardagaklúbbsins Mjölnis, segir stúlkum í klúbbnum hafa fjölgað mikið og Sigursteinn Snorra- son hjá Combat Gym tekur í sama streng. „Við erum rosalega ánægðir með þessa aukningu,“ segir Jón Viðar. „Við byrjuðum með stelputíma í vetur og þannig náðum við að halda enn þá betur í þær.“ En hvað veldur þessum aukna áhuga? „Það er erfitt að segja, þær eru bara að uppgötva hvað þetta er skemmtilegt. Þetta er fyrir alla, ekki bara stráka – það heldur líka betur í strákana að hafa stelpurnar,“ segir Jón Viðar í léttum dúr. Sigursteinn hjá Combat Gym er sammála. „Stelp- urnar sækja í aðeins öðruvísi greinar en strákarnir,“ segir hann og bætir við að það sé algengt að þær komi í hópum, ólíkt strákunum sem koma oftast einir eða með einn félaga með sér. „Stelpurnar eru að fatta að þetta snýst bara ekki um að setja á sig hanska og lemja hverja aðra.“ - afb / sjá síðu 26 Bardagaíþróttir sækja í sig veðrið á Íslandi og klúbbarnir fagna auknum áhuga: Miklu fleiri stelpur læra að slást TEKIST Á Á sérstakri stelpuæfingu í Mjölni í gærkvöldi var harkalega tekist á. Áhugi stelpna á bardagaíþróttum eykst stöðugt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HVASSAST A-TIL Í dag verður úrkoma A-til en slydda eða él V-til. Strekkingur A-til fram eftir degi en lægir og kólnar fram á kvöldið. VEÐUR 4 -1 1 2 8 2 Saumavélar á yfirsnúningi Ellefu hönnuðir sýna á Reykjavík Fashion Festival. fólk 34 Brautryðjandi Vilhjálmur Einarsson var fyrstur tekinn inn í nýja Heiðurshöll ÍSÍ. sport 30

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.