Fréttablaðið - 15.11.2012, Blaðsíða 88
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sigur Rós gefur EP-plötu
Jón Þór Birgisson og félagar í
Sigur Rós ætla að gefa öllum þeim
sem kaupa miða á fyrirhugaða
tónleikaferð hljómsveitarinnar til
Bandaríkjanna á næsta ári nýja EP-
plötu sem hefur að geyma þrjú lög.
Platan verður gefin aðdáendum
sveitarinnar í stafrænu
formi frá 22. mars næst-
komandi. Um verður að
ræða
ný og
óútgef-
in lög og
búast má við
að eitt þeirra
verði Brenni-
steinn sem
var frumflutt
á tónleikum
hljómsveitar-
innar í Nýju
Laugardalshöllinni
á dögunum við
góðar undirtektir.
NÝ
KILJA
Tólf ástæður fyrir Gnarr
Vefsíðan Twistedsifter.com, sem
sérhæfir sig í alls kyns vinsældar-
listum og fróðleik um öll heimsins
málefni, birti á dögunum tólf
ástæður fyrir því að Jón Gnarr sé
áhugaverðasti borgarstjóri heims.
Meðal þess sem rataði á listann
er að hann hafi unnið bug á les-
blindu, hafi verið í pönkhljómsveit,
sé mögulega Jedi, hafi tekið þátt
í Gaypride og skreyti skrifstofuna
sína með listaverkum eftir götu-
listamanninn Banksy. Þess má geta
að borgarstjórinn er vissulega iðinn
við að láta aðdáun sína á Banksy
í ljós, en hann deildi á sunnudag
hinum ýmsu húðflúrum
eftir listamanninn á
Facebook-síðu sinni.
Svo er bara spurning
hvort Jón bæti einu
slíku við á móti
Reykjavíkurskild-
inum sem hann
ber á vinstri
handlegg. - fb, sv
1. Framkvæmdastjóri sakaður
um frændhygli og sjálftöku
2. Karlmaður stunginn með hnífi
í Hafnarfirði
3. Leikskólabörn í Aðalþingi fá
hægan mat á hlaðborði
4. Brotist inn í 20 spilakassa á
Ránni
5. Þyrla flutti slasaðan mann frá
Staðarskála