Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 54
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 30 „Sagan fjallar um Krissu sem er 16 ára gömul og er að glíma við þetta tímabil þar sem þú ert á milli þess að vera fullorðinn og að vera krakki, og vandamálin sem fylgja því,“ segir Smári Pálmarsson um myndasöguna Vampíru. Smári og eiginkona hans, Sirrý Margrét, gáfu út Vampíru á dög- unum og er það fyrsta myndasagan sem þau gefa út. Þau hafa þó unnið saman frá því þau kynntust, 16 ára gömul, árið 2004. „Við höfum verið samferða í gegnum lífið síðan,“ segir Smári. Eftir að hafa klárað myndlistarbraut í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ héldu þau í graf- íska hönnun í Listaháskóla Íslands, þaðan sem þau útskrifuðust í vor. „Að okkar bestu vitund erum við fyrsta parið sem er samþykkt inn á sömu námsbraut í LÍ á sama tíma,“ segir Smári. „Það að vinna saman myndasögur verður alltaf í for- gangi hjá okkur. Það er það sem við gerum,“ bætir hann við. Smári segir fólk oft misskilja myndasögur og halda að þær tak- markist við skop og grín en að Vampíru beri að taka jafn alvarlega og hvert annað skáldverk. „Það eru alvarlegir undirtónar inn á milli en mér finnst best þegar sorg, gleði og húmor er blandað saman,“ segir hann. „Margir eiga enn þá eftir að fatta myndasögur. Ætli það megi ekki þakka Hugleiki [Dagssyni] það að Íslendingar viti yfir höfuð hvað myndasögur eru og þar sem okkar verk eru mjög ólík hans vona ég að þau opni augu fólks enn þá betur,“ segir Smári. - trs Margir eiga eft ir að fatta myndasögurnar Samvinna við myndasögugerð verður alltaf forgangsatriði hjá grafísku hönnunarhjónunum Smára og Sirrý. SAMAN Í ÁTTA ÁR Smári og Sirrý kynnt ust árið 2004, þá 16 ára gömul, og hafa verið samferða síðan þá. „Það tók okkur um eitt og hálft ár að þróa hið fullkomna snið. Ég var stanslaust að fá fjölskylduna mína til að máta snið svo ég gæti fundið þennan gullna meðalveg sem mundi passa öllum. Skyrturnar eru ekki hugsaðar fyrir eina ákveðna týpu, heldur eru þetta skyrtur fyrir alla,“ segir Guðrún Guðjónsdóttir, hönnuður hjá íslenska fatamerkinu Huginn Muninn. Merkið var stofn- að fyrir fjórum árum og framleið- ir fyrst og fremst herraskyrtur. Fyrsta línan kom í verslanir fyrir síðustu jól og seldist upp skömmu síðar. Eigendur fyrirtækisins eru feðg- arnir Þórarinn Elmar Jensen og Markús Örn og Gestur Már Þórar- inssynir. Feðg- arnir eru fyrrum eigendur fyrir- tækisins 66°Norð- ur og því öllum hnútum kunnug- ir þegar kemur að framleiðslu á fatn- aði. „ Þ e i r k e y p t u skyrtuverksmiðju í Litháen fyrir nokkru og fannst verksmiðjuna vanta eigið vörumerki. Þeir ákváðu því að þróa nýtt íslenskt vörumerki undir heitinu Huginn Muninn og fengu mig til liðs við sig,“ segir Guðrún sem hóf klæðskeranám árið 2002 og flutti að því loknu til Mílanó þar sem hún nam hönnun. Stuttu eftir útskrift bauðst henni að gerast yfirhönnuður Hugins Mun- ins. Að sögn Guðrúnar hefur skyrt- unum verið tekið fagnandi og í fyrra seldust allar skyrturnar upp skömmu fyrir jól. Um þessar mund- ir leggur hún lokahönd á vetrarlínu næsta árs. „Ég sæki ekki innblástur í eitt- hvað eitt heldur hanna ég oftast út frá tilfinningu. Tengi ng i n v ið Ísland er sterk, líkt og nafnið gefur til kynna, og ég hef það oft- ast í huga við hönn- unina,“ segir hún að lokum. - sm Mátaði sniðin á alla fj ölskylduna Guðrún Guðjónsdóttir er yfi rhönnuður fatamerkisins Huginn Muninn. Herra- skyrtur frá merkinu hafa slegið í gegn og seldust þær allar upp fyrir síðustu jól. ÍSLENSK TENGING Guðrún Guðjónsdóttir er yfirhönnuður fatamerkisins Huginn Muninn. Skyrturnar hafa slegið í gegn meðal íslenskra karlmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunudaga 8.00 -16.00 ÖLL BRAUÐ Á 25% AFSLÆTTI Á MÁNUDÖGUM • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 • Fálkagötu 18 • Lönguhlíð BRETTAPAKKAR 20% AFSLÁTTUR ÞEGAR KEYPT ERU BRETTI, BINDINGAR OG BRETTASKÓR. Á R N A S Y N IR util if. is „Það er Pleasure to Kill með Kreator. Þessir grjóthörðu málm- meistarar frá Þýskalandi eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ein spilun af þessu lagi í mánudagsbítið gefur manni kraft sem endist langt fram í vikuna.“ Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarspekingur. MÁNUDAGSLAGIÐ „Það má segja að Gillan hafi kennt manni að öskra,“ segir söngvarinn kröftugi Eyþór Ingi Gunnlaugs- son. Hann hitar upp með hljóm- sveit sinni fyrir rokkgoðsagnirnar í Deep Purple í Nýju Laugardals- höllinni 12. júlí á næsta ári. Eyþór Ingi var mikill aðdáandi Deep Purple þegar hann var yngri og fylgdist vel með söngvaranum Ian Gillan. „Gillan er einn af þess- um köllum sem maður hlustaði á í „denn“ og maður sagði bara: „Ég verð að geta sungið svona.“ Maður sat á rassgatinu sem krakki með vínylinn og pældi mikið í þessu,“ segir Eyþór Ingi, sem hlakkar mikið til að hitta goðin sín næsta sumar. „Það verður alveg toppur- inn og það væri ekki verra að fá að taka í spaðann á Gillan.“ Deep Purple er að koma til Íslands í fjórða sinn. Árið 2007 spil- aði sveitin tvívegis í Laugardals- höllinni og var Eyþór Ingi fremst í áhorfendaskaranum á öðrum tón- leikunum. „Þá voru Uriah Heep með þeim líka. Mér fannst það ekki verra. Þá var ég smá polli, greip gítarneglur og fannst það rosa flott,“ segir hann og hlær. Um þetta leyti var hann nýbúinn að vinna Söngkeppni framhalds- skólanna, þar sem hann söng ein- mitt lag með Deep Purple, Perfect Strangers. Eyþór Ingi hefur líka starfrækt Deep Purple-heiðurshljómsveit. Hún hefur ekki verið áberandi að undanförnu en þó söng hann lög með Deep Purple á Skonrokk-tón- leikum sem voru haldnir í Hörp- unni fyrir skömmu. Aðspurður segist hann ætla að sleppa því að syngja lag með Deep Purple í Nýju Laugardalshöllinni þótt hann kunni lög sveitarinnar utan að. Þess í stað ætlar hann að flytja lög af sólóplötu sem hann er með í undirbúningi. „Ég er búinn að vera með þetta verkefni í maganum lengi. Þegar maður heldur að það sé að fara að gerast kemur eitthvað sem trufl- ar. En það er aldrei að vita nema maður taki undir lok tónleikanna slagara frá þessum gamla tíma.“ Eyþór Ingi hefur verið mjög upptekinn á þessu ári. Hann söng í Vesalingunum og er einnig með- limur í Todmobile og proggsveit- inni Eldberg. „Þetta er búið að vera rosalegt ár og það sér ekki fyrir endann á því. Það eru bókan- ir fram á næsta ár en Frostrósir er það næsta sem ég geri. Það er öðru- vísi en maður hefur verið að gera áður en til þess er leikurinn gerður, að halda áfram að læra og þrosk- ast.“ freyr@frettabladid.is Hitar upp fyrir átrúnaðargoðin sín Eyþór Ingi Gunnlaugsson hitar upp fyrir átrúnaðargoðin sín í Deep Purple. Sigurlag hans í Söngkeppni framhaldsskólanna var einmitt með hljómsveitinni. HITAR UPP FYRIR ÁTRÚNAÐARGOÐIN Eyþór Ingi hlakkar mikið til að hita upp fyrir átrúnaðargoðin sín í Deep Purple. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.