Alþýðublaðið - 15.04.1931, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Foringjar Alpýðuflokksins
tala af svolum Alþingishússins
Nýkomið
Matar- o® KafSrstell — Þvottastell — Nikkel- og
Plett>stell — Bollapör frá kr. 0,50 - Kökntöt —
Sykurkör — MJólkarkönnnm — Hræritöt —
Skraatpottar og Blómavasar — Dyratialdasteng
urnar eftirsparða á 6,95 — Gyltn katiarnir —
Feikna úrval af ódýrnm Hnifapörnm.
BUSAHÖLD
stórkostlegar birgðir, viindnð og ódýr — SSgras
Stólar og Borð — Barnastólar — Brúðnviiggar
Barnarrólur.
Feikna drval af
FBBMINGA. og TÆKIFÆRISGJÖFUM.
„Edinborg44.
f gærdag, eftir að Framsókn-
arstjórnin hafði rofið þingið og
ótölulegur manngrúi hafði safnast
fyrir framan alþingishúsið, gekk
Jón Baldvinsson fram á svalimai
og mælti nokkur orð til mann-
fjöldans. Kvað hann þaö nú hafa
skeð, sem aldrei fyr hefði borið
við í þingsögu okkar, að stjórn
hefði flúið imdan vantraustsum-
ræðum og rofið þing að eins til
ræðum og rofið þing með
stjórnarskrárbroti. Talaði hann
enn fremur djörf orð til alþýðí
manna og brýndi til að snúa nú
bökum saman, verja flokk sinn
og berjast til sóknar gegn fénd-
flokkmn sínum. Héðinn Valdi-
marsson talaði einnig; kvað hann
þingrof stjórnarinnar gert ein-
göngu í þeim tilgangi að varna
framgöngu þeirra réttlætis- og
mannúðarmála, sem Alþýðuflokk-
urinn hefði alt af barist fyrir:
I gær, þegar ráðherrarnir af
fconungsins náð yfirgáfu alþingis-
húsið og héldu suður Tjarnar-
götu, fylgdi þeim múgur og
margmenni. Vom hugir manna
all-æstir eftir einræðisbrölt minni
hluta alþingis, og fór ekki hjá
því, að. það bitnaði á ráðherrun-
um, þótt ekki yrði neitt handa-
lögmál'eða þess háttar. Nokkrir
fundir voru haldnir í Varðarhús-
inu í gærdag og voru þar sam-
an komnir menn án þess tekið
væri tillit til hvorum flokknum
þeir fylgdu. Margar ræður voru
fluttar og fundarmenn gengu
heim til „forsætisráðherra“ )af
konungsins náð) fylktu liði. „For-
sætisráðherrann" talaði nokkur
orð til mannfjöldans, en síðan
hélt fjöldinn að sambarndshúsinu
og ætlaði að ná tali af „dóms-
málaráðherranum“. Varð viðdvöl
manna þar stutt, því „ráðherrann"
mun ekki hafa veriö heima.
Alþýðuflokksfólk
hélt fundi á tveim stöðum, annan
í Góðtemplarahúsinu við Templ-
arasund og hinn í fundarsal
templara við Bröttugötu. Bæði
húsin voru troðfull út á götu og
er óhætt að segja, að þá hafi
sótt um 900 manns. Jafnaðar-
mannafélag Islands boðaði til
beggja fundanna og setti formað-
ur þess, séra Sigurður Einarsson,
fundinn í Templarahúsinu við
Templarasund. Fyrstur tók til
máls Héðinn Valdimarsson, en
síðan töluðu hver af öðrum: ÓI-
afur Friðrikssop, Jón Baldvins-
21 árs kosningarrétti og kjör-
gengi, breytin-gu kjördæmaskipun-
arinnar, afnámi réttindamissis
vegna sveitarstyrkþágu o. s. frv.
Enn fremur sagði hann, að stjórn-
in væri með þessu að reyna að
drepa hið glæsilega framfaramál,
Sogsvirkjunina. — En jretta verð-
ur að eins frestun á málunum, þau
sigra, þótt afturhald „Frámsókn-
ar“ reyni að bregða fyrir þau
fúnum fótum sinum. Haraldur
Guðjmundsson réðist í mælsku-
þmnginni ræðu á stefnur beggja'
andstöðuflokkanna og sýndi fram
á sérstöðu Alþýðuflokksins í
þeim stórviðbuTðum,, sem nú fyltu
hugina, því að Alþýðuflokkurinn
hlyti alt af að eiga í höggi við
báða auðvaldsflokkana.
— Auk þessara þriggja alþýðú-
þingmanna töluðu nokkrir íhalds-
menn af svölunum.
son, Sigurjón Á. Ólafsson, Jens
Pálsson, Ingimar Jónsson skóla-
stj., Haraldur Guðmundsson, Jón
Rafnsson, Brynj. Bjarnason, Guð-
jón Benediktsson, Einar Olgeirs-
son og Sig. Einarsson.
Fundurinn í Bröttugötusalnum
hófst kl. rúmlega 9. Setti Héðinn
Valdimarsson hann og skipaði
fundarstjóra Kjartan ólafsson
steinsmið. Héðinn tók því næst
til máls og auk hans töluðu Guð-
brandur Jónsson, ólafur Friðriks-
son, Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
og Arngrímur Kristjánsson. Enn
fremur fékk Lárus Jóhannesson
(íhaldsmaður) að segja nokkur
orð.
Kom það berlega í ljós á báð-
um þessum afar-fjölmennu fund-
um, að ríkisvaldsrán Framsóknar-
ráðherranna fylti hugi manna
með Teiði,.og var hverjum ræðu-
manni á báðum fundunum tekið
með dynjandi lófataki.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þyktar með öllum atkvæðum:
Á Bröttugötufundinum:
Fundurinn mótmælir harðlega
j)ví gerræði ríkisstjórnarinnar í
skjóli konungsvaldsins, að rjúfa
nú þing til þess að hefta fram-
gang þjóðþrifamála, sem stjórnin
er á móti, en meiri hluti þings
fylgir, og telur jretta brot á anda
stjórnarskrárinnar og þingræðis-
reglum.
Jafnframt skorar fundurinn á
þingmenn að koma saman til að
afgreiða stórmál þau, sem nú
liggja fyrir, og skorar enn frem-
ur á húverandi ríkisstjórn að
leggja þegar niður völdin, en
þingið skipi hiutlausa bráða-
birgðastjórn.
Fundurinn í húsinu við Templ-
arasund:
Fundurinn mótmælir harðlega
því gerræði rikisstjórnarinnar í
skjóli konungsvaldsins, að rjúfa
nu þing til þess að hefta fram-
gang þjóðþrifamála, sem stjórnin
er á móti, en meiri hluti þings
fylgir, og telur þetta brot á
stjórnarskránni og öllum þing-
ræðsireglum.
Jafnframt skorar fundurinn á
þingmenn að koma saman til að
afgreiða stórmál þau, sem nú
liggja fyrir, og skorar enn frem-
ur á núverandi ríkisstjórn að
segja tafarlaust af sér.
Fundurinn skorar á þingmenn
að halda áfram störfum alþingis
og hafa að engu þingrofsgerræði
stjórnarinnax.
Fundurinn telur, að þau tíð-
indi, sem nú hafa gerst, hafi
sýnt og sannað, að krafa Al-
þýðuflokksins um íslenzkt lýð-
veldi verði að ganga fram nú
þegar.
Mótmælafundir úti nm land.
Á Akureyri var haldinn fjöl-
mennur mótmælafundur í gær,
og voru þar samþykt mótmæli
gegn valdaráni stjórnarinnar, enn
fremur var fundur haldinn á
Siglufirði og samþykt sarns kon-
ar mótmæli og á Akureyri.
Á Eyrarbakka var fundur hald-
inn í gær. Þar voru samþykt
eftirfarandi mótmæli:
„Almennur kjósendafundur á
Eyrarbakka mótmælir harðlega
hinu gerræðisfulla þingrofi ríkis-
stjórnarinnaT.“
Símskeyti frá Stykkishólmi.
Stykkishólmi, 15/4. Á fjölmenn-
um fundi verkamanna í gær var
samþykt í einu hljóði svolátandi
tillaga:
Fundurinn mótmælir harðlega
þingrofi stjórnarinnar og vald-
ráni, og að heftur skuli fram-
gangur þeirra stórmála, er þingið
hafði til meðferðar.
Stjórn verkalýðsfólagsins.
Stjórnin fyrir landsdóminnm.
Siglufirði, 15/4. Borgarafundur
í gærkveldi boðaður með 3 tíma
fyrirvara mjög fjölmennur sam-
þykti með 91 gegn 4 atkvæðum
ef tirf arandi:
Almennur fundur alþingiskjóa-
enda á Siglufirði lýsir yfir því,
að hann telur konungsbréf það
um þingrof og nýjar kosningar,
sem forsætisráðherra las upp í
sameinuðu þingi i dag, ótvírætt
brot á 18. grein stjórnarskrár-
innar, sem skýrum orðum mælir-
svo fyrir, að þing megi eltld slita
fyr en fjárlög hafi verið afgneidd.
Auk þess telur fundurinn að rík-
isstjórnin hafi fengið konungs-
bréfið með ósönnum forsendum,
með því að fullyrða að myndun
nýrrar stjórnar væri ókleif. Vald-
rán það, sem að stjórnin með
þessu hefir framið, telur fundur-
inn árás á þingræði og sjálf-
stæði þjóðarinnar. Fundurinn
neitar þess vegna að viðurkenna
núverandi rikisstjórn sem löglega
stjóm landsins og krefst jress
að hún leggi niður völd þegar i
stað og verði látin sæta ábyTgð
umræddra gerða sinna fyrir
landsdómi.
Fundurinn stóð í 2 tíma. Eng-
inn Siglfirðingur hreyfði andmæl-
um, en fyrverandi frambjóðandi
Framsóknar í Skagafirði, Pétur
Jónsson bóndi á Bmnastöðum,
reyndi aÖ verja stjórnina. 1 fund-
arlok hrópuðu menn: „Niður
með kóng og Framsóknarstjóm!"
14.jpriL
Fundir og krofugongur í gær.