Fréttatíminn - 19.10.2012, Blaðsíða 6
R úmlega þrjú hundruð tilkynningar bárust barnaverndaryfirvöldum á fyrstu sex mán-uðum ársins vegna barna sem vanrækt voru
vegna áfengis- og vímuefna foreldra. Í langflestum til-
fellum komu tilkynningarnar frá lögreglu. Sótt var um
tímabundið eða varanlegt fóstur fyrir 57 börn á sama
tímabili og var meðalaldur barnanna 11 ár, samkvæmt
upplýsingum frá Barnaverndarstofu.
Emilía María Maidland var tekin af heimili sínu 11
ára eftir að barnaverndaryfirvöld gripu inn í vegna
áfengisneyslu föður hennar. Emilía sagði frá reynslu
sinni á fundi forvarnar- og fræðsluhóps um velferð
barna og unglinga, Náum áttum, í vikunni. Hún sagði
lítið gert til að hjálpa börnum áfengissjúklinga og að
þau líði meira fyrir drykkjuna en foreldrarnir sjálfir. Í
hennar tilfelli hafi foreldrarnir fengið hjálp en ekki hún
fyrst í stað. Hún hefði viljað að yfirvöld hefðu gripið
mun fyrr inn í en gert var.
Lárus Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ, segir að talið
sé að um sex þúsund börn á Íslandi búi við mjög erfiðar
aðstæður vegna áfengisneyslu foreldra. „Börn alkóhól-
ista eru oft undir gríðarlegu álagi og sýna oft einkenni
á borð við depurð, kvíða, leiða og þunglyndi,“ segir
Lárus. „Þau eru oft vansvefta því þau vaka fram eftir
nóttu og bíða eftir að foreldrar þeirra fari í rúmið, þurfa
ef til vill að hjálpa þeim til þess. Þessi börn taka ábyrgð
langt umfram getu og aldur,“ segir hann.
Emilía segir að börnin hugsi ekki um hvernig þeim
sjálfum líði. „Þau pæla miklu meira í því hvernig for-
eldrunum líður,“ sagði Emilía.
„Börn alkóhólista hafa oft engan til að tala við enda
er ekki talað um sjúkdóminn á heimilinu né heldur
þær erfiðu aðstæður sem barnið býr ef til vill við,“
segir Lárus. „Það fyrsta sem við gerum fyrir börn
alkóhólista sem koma í meðferð til okkar
er að sýna skilning á aðstæðunum og opna
umræðuna um sjúkdóminn og eðli hans,“
segir Lárus. „Það má þó ekki gleyma því
að þetta eru veikir foreldrar sem eru að
reyna sitt besta og berjast hetjulegri bar-
áttu, sem enginn sér, í að reyna að standa
sig,“ segir hann.
Rafn Jónsson, verkefnastjóri áfengis- og
vímuvarna hjá Landslæknisembættinu,
segir að aukin áhersla sé í alþjóðasamfé-
laginu um áhrif áfengisneyslu á annan en
áfengissjúklinginn sjálfan. „Áfengisneysla
er ekki einkamál neytandans heldur hefur
víðtæk áhrif á samfélagið í gegnum ótalmarga þætti,“
segir hann.
Börn sem búa við erfiðar aðstæður á heimili sínu
hittast á Hlutverkasetri á miðvikudögum. Mörg þeirra
eiga foreldra sem misnota áfengi líkt og Emilía María.
„Emilía og aðrir krakkar sem hingað koma segja gott
að koma hingað því hér fái þau að vera þau sjálf,“ segir
Elín Ebba Ásmundsdóttir hjá Hlutverkasetri. „Þau tala
við krakka í svipuðum aðstæðum og við höfum líka
verið með svona sófakrók þar sem krakkarnir fá að tala
við mömmur sem hafa barist við geðsjúkdóma og alkó-
hólisma. Krökkunum finnst það mjög gott því þá sjá
þau að mömmur vilja alveg ná bata og að sjúkdómurinn
er ekki krökkunum að kenna,“ útskýrir Elín Ebba.
Börnin geta líka farið í eldhúskrók og bakað. „Það
er yndisleg kona sem bakar með krökkunum og leyfir
þeim að sleikja innan úr skálunum og gera það sem
flestar fjölskyldur telja sjálfsagt. Það eru oft þannig
hlutir sem eru mikilvægastir,“ segir Elín og tekur
dæmi að nú snemma í haust spiluðu þau
Lúdó saman og Emilía var sérstaklega
ánægð og þegar Elín spurði hvað ylli
svaraði hún að hún hefði aldrei spilað
svona eins og fjölskyldur.
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, iðju-
þjálfi hjá BUGL, sér um námskeiðin sem
eru fjármögnuð af konu sem vill ekki láta
nafn síns getið en hún ólst upp við svip-
aðar aðstæður og Emilía, að sögn Elínar
Ebbu.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Félagsmál Fjöldi baRna vanRæktuR vegna áFengisneyslu FoReldRa
6.000 börn búa við erfiðar
aðstæður vegna áfengisneyslu
Um sex þúsund börn búa við verulega erfiðar aðstæður vegna áfengisneyslu foreldra. Á fyrstu
sex mánuðum ársins bárust barnaverndaryfirvöldum rúmlega 300 tilkynningar vegna vanrækslu
barna af völdum áfengisneyslu foreldra. Stúlka sem tekin var af heimili sínu 11 ára, vegna
áfengisneyslu föður, segir lítið gert til að hjálpa börnum áfengissjúklinga.
Yfir 10 þúsund
skrifað undir
Rúmlega 10 þúsund manns
hafa skrifað undir kröfu
um Betra líf fyrir þolendur
áfengis- og vímuefna-
vandans. Það er SÁÁ sem
stendur fyrir undir-
skriftarsöfnunni sem hófst
fyrir tveim vikum. Með því
að skrifa undir kröfuna
á www.betralif.saa.is er
skorað á stjórnvöld að
nýta 10% af áfengisgjald-
inu til að koma til móts við
börn sem alast upp við
alkóhólisma og veita þeim
þann stuðning sem þau
þurfa. Einnig er áætlað
að verja peningunum í að
aðstoða þá áfengis- og
vímuefnasjúklinga sem eru
mjög langt leiddir.
Emilía María Maidland var tekin af heimili sínu 11 ára eftir
að yfirvöld gripu inn í vegna áfengisneyslu föður hennar.
Lárus Blöndal,
sálfræðingur hjá
SÁÁ: „Það má
þó ekki gleyma
því að þetta eru
veikir foreldrar
sem eru að reyna
sitt besta.“
Elín Ebba
Ásmunds-
dóttir segir oft
vandasamt að
fá krakka til að
koma því flestir
þeirra gera sér
kannski ekki
grein fyrir að
þeir búi við erf-
iðar aðstæður.
6 fréttir Helgin 19.-21. október 2012