Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 34
34 bækur Helgin 13.-15. apríl 2012  RitdómuR moRðið á Bessastöðum Ábyrgðakver Gunnlaugs Jónssonar vippar sér beint í annað sæti metsölulista Eymundssonar. Bókin geymir hugleiðingar höf- undar um bankahrunið og þann lærdóm sem megi af því draga. áByRgð í 2. sæti  RitdómuR ÞRjáR noRRænaR glæpasöguR a kranessforlagið Uppheimar skiptir um nafn á þremur nýút-komnum norrænum krimmum – kallar sig Undirheima – svona til gamans. Sögurnar eru Snjókarlinn eftir Jo Nebö, Englasmiðurinn eftir Camillu Läckberg og Aðeins eitt líf eftir Söru Blædel: Norð- maður, Svíi og Dani – öll þrjú metsöluhöf- undar í heimalandi sínu, öll þrjú komin vel á veg með að leggja undir sig heiminn í þýðingum, öll þrjú vel þekkt hér á landi af fyrri verkum: Snjókarlinn er fimmta bók Nesbö á íslensku, Aðeins eitt líf er fjórða bók Söru og Camilla á fyrir átta verk í íslenskri þýðingu. Þau eru semsagt engir byrjendur, kunna öll vel til verka, eru öll að skrifa aftur og aftur um sömu lykilpersónur: Harry Hole, Patrik, Eriku og Önnu, Louise og Camillu. Með sama sviði komast höfundarnir hjá að kynna aðalpersónurnar, treysta á fyrri kynni lesenda af kringumstæðum í lífi þessa rannsóknarfólks, samstarfsmanna, vina og ættingja. Blædel skrifaði Aðeins eitt líf snemma á ferlinum. Hún vann áfram með frá- sagnir af grimmd í fjölskyldum inn- fluttra í Danmörku, Camilla vinnu enn með blöndu af löngu liðnum atburðum að Fjallabaki, ívaf í hennar sögum er stétt- skipt samfélag í Svíþjóð, hvernig alþýðu- fólk verður undir, um leið og hún lýsir að- stæðum hjá millistéttarfólki, félagslegum erfiðleikum í bland við átök í hjónabandi okkar daga. Nesbö er langflinkastur þessara þriggja höfunda, ekki aðeins að hann sýni mesta hugkvæmni í grunnstefjum fléttunnar, heldur leggur hann enn meiri vinnu en áður í að skapa í plottinu falska botna og taka úr þeim í sögulokum veltu sem skilur lesandann eftir undrandi. Hans hetjur eru, eins og kvennanna tveggja, ekki djúpar persónur – bara hjól í vél til að skapa afþreyingu – en hann er einfaldlega meiri vélvirki í smíði sinni á plotti en stöllur hans tvær. Í Snjókarlinum dregur hann inn í plottið fátíða sjúkdóma og hvernig þeir erfast. Kann allt að vera uppsuða og bull en í framgangi sögunnar trúir lesandinn hverju orði og gleypir agnið. Öll þrjú stefna þau svo í sögulokum í mikið crescendo, mikinn spenning, mikil læti, mikið fjör. Þetta hafa þau gert áður og fastir lesendur ætlast enda til þess að fá sinn fiðring við lestur lokakaflanna. Þessar þrjár sögur munu enda skemmta mörgum lesanda fram eftir sumri, inn í eintakið mitt af Snjókarli Nesbö er kom- inn pöntunarlisti, hinar tvær fara fljótt í lán. Vonandi dugar sala þessara reyfara yfir vor og sumar til að tryggja Uppheim- um útgáfu á saðsamari bókmenntum. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Úr Undirheimum Nesbö er langflinkastur þessara þriggja höfunda sem allir standa þó fyrir sínu. Af sérstökum ástæðum auglýsir stjórn Íslensku barna- bókaverðlaunanna að nýju eftir handritum að sögum fyrir börn og unglinga í samkeppni ársins. Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd og á það að geta staðið án mynda. Skilafrestur er til og með 27. apríl 2012. Handritum skal skilað í fjórriti, merkt með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi í lokuðu umslagi, til: Forlagið / Íslensku barnabóka- verðlaunin Bræðraborgarstíg 7 101 Reykjavík. -pbb Hver vill skrifa fyrir börn og unglinga? Þrjár ljóðabækur koma út í byrjun næstu viku hjá forlagi Uppheima: Leitin að upptökum Orinoco eftir Ara Trausta Guðmundsson sem hefur að geyma ný ljóð eftir náttúru- fræðinginn þjóðkunna sem hefur á undan- förnum árum sent frá sér jöfnum hönum bundið mál og sögur, Hér vex enginn sítrónu- viður eftir Gyrði Elíasson, nýtt safn ljóða eftir þann afkastamikla höfuðsnilling og Skrifað í stein, úrval ljóða hins sænska Kjells Espmark í þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Skömmu fyrir páska kom frá sama forlagi ljóðabókin Birtan er brothætt, braghendur og hækur, eftir Njörð P. Njarðvík. -pbb Fjórar ljóðabækur Höfundurinn á bak við Stellu Blómkvist hefur merkt sig kirfilega á spjöld bókmenntasög- unnar. Í hartnær áratug hefur honum tekist að sitja í felum og skrifa spennubækur um lög- fræðinginn Stellu, höfundurinn hefur rambað milli forlaga og þrátt fyrir sannindin þjóð veit þá þrír vita er Blómkvist enn stærsta gátan í höf- undatalinu – að því leytinu til að ekki er almennt kunnugt hver felst á bak við nafnið. Þrátt fyrir frægðina og forvitni blaðamanna er Blómkvist ekki söluhár höfundur – vafalítið hafa margir sökum forvitni hnusað að bókum karlmannsins sem skrifar undir nafni konu en kynnin af sögunum um Stellu, sem eru að nálg- ast tuginn, hafa líklegast orðið til þess að frekari forvitni var fljótsvalað. Sögur Stellu um Stellu eru frumstæðar spennubókmenntir. Þótt textinn renni lipurlega er klisjan hér í hávegum höfð, persónusköpun er ófrumleg og kunnugleg, sam- tölin kaldir réttir og plottin gömul og slitin. Nú má í sjálfu sér fagna því að þagmælska útgefenda dugi svo vel sem raun ber vitni, líka má fagna því að þeir telji ekki eftir sér að skella fram slökum spennusögum eftir innfædda – jafnvel þó þær séu undir dulnefni. Afþreyingar- textar eftir innlenda höfunda eiga fullan rétt á sér og almenningur hefur undanfarna áratugi tekið þeim fagnandi, jafnvel bundnum í spjöld og á háu verði. Slíkar bækur hafa runnið út í þúsundatali og haft yfirhöndina í slagnum við höfunda sem eiga brýnna erindi á markað, af- þreyingin hefur lagt undir sig markaðinn og á sumum bæjum má sjá merki þess að útgefendur vilji eiga það sitt helsta erindi í lífinu að telja almenningi trú um að sumir reyfarahöfundar séu hreinir snillingar í frásagnarlistinni, vitna gjarna til erlendra blaða því til sönnunar, fara gjarnan offari í oflofinu sem þeir sveipa sína dýrmætustu skjólstæðinga í trausti þess að fjöl- miðlamenn gleypi bullið hrátt og komi því á framfæri við trúgjarna lesendur. Sem gengur eftir. Stella ætti þannig að skipa svipaðan sess og Yrsa – svo dæmi séu nefnd. En slíkar barba- brellur takast ekki alltaf. Morðið á Bessastöðum er slök spennusaga, klisjukennd, ófrumleg og óspennandi. -pbb Fastir liðir  snjókarlinn Jo Nesbö Bjarni Gunnarsson þýddi. Uppheimar, 509 síður, 2012.  morðið á Bessastöðum Stella Blómkvist Mál og menning, 287 síður, 2012. Morðið á Bessastöð- um er slök spennu- saga, klisju- kennd, ófrumleg og óspenn- andi. Birtan er brothætt er ný ljóðabók eftir Njörð P. Njarðvík. Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur fékk ís- lensku barnabókaverðlaunin í fyrra.  aðeins eitt líf Sara Blædel Árni Óskarsson þýddi. Uppheimar, 350 síður, 2012.  englasmiðurinn Camilla Lackberg Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Uppheimar, 472 síður, 2012. Camilla Lackberg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.