Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Blaðsíða 15
DV Sport þriðjudagur 17. apríl 2007 15
Sport
þriðjudagur 17. apríl 2007
sport@dv.is
Guðmundur Guðmundsson þjálfari Fram er hættur með liðið
Tyson Patterson, leikmaður KR, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar.
Missti aldrei trúna
Eftir leik KR og Njarðvík í gær
var tilkynnt að Tyson Patterson,
leikmaður KR, hafi verið valinn
verðmætasti leikmaður úrslita-
keppninnar. Hann átti frábæran
leik í Njarðvík á laugardaginn þar
sem hann skoraði 31 stig. Patterson
skoraði ellefu stig í leiknum í gær,
gaf ellefu stoðsendingar og hirti sex
fráköst.
Patterson sagði að tilfinning-
in að vinna Íslandsmeistaratitilinn
væri ótrúlega góð. „Þetta er ólýs-
anlegt. Öll vinnan sem við höfum
lagt í þetta borgaði sig í dag. Nú á
ég skilið gott frí. Ég er búinn að
leggja mikið á mig fyrir liðið og nú
er kominn tími til að slaka á. Þetta
er búið,“ sagði Patterson eftir leik-
inn í gær.
Hann sagði að vel gæti farið svo
að hann verði áfram hjá KR á næsta
tímabili. „Ég held að ég verði hér
áfram en annars veit ég það ekki.
Núna vil ég bara njóta sigursins,“
sagði Patterson.
Þrátt fyrir að vera undir mest all-
an tímann í gær sagði Patterson að
hann hafi aldrei misst trúnna. „Að-
all liðsins er að við berjum mikið og
leggjum mikið á okkur allt til leiks-
loka. Þar til flautan gellur berjumst
við mikið og reynum að spila góða
vörn,“ sagði Patterson að lokum.
dagur@dv.is
Verðmætasti leikmaðurinn
Tyson patterson var valinn verðmæt-
asti leikmaður úrslitakeppninnar.
Íslandsmeistari 2007
NBAAllt um leiki næturinnar í NBA
KR fagnaði sigRi á njaRðvíK í gæR í dRamantísKum leiK. KR vaR aldRei yfiR í
leiKnum nema í fRamlengingunni og hRósaði sigRi. bls 16-17
KR