Fréttatíminn - 08.10.2010, Blaðsíða 52
Bókadómar
Bókamessan í Frankfurt hófst á miðvikudag og þá styttist í
íslensku innrásina í ríki Þjóðverja eftir ár. Argentína skipar
sæti heiðursgestsins ár og þangað verður flogið á sjöunda
tug höfunda og skálda. Í ár fagnar landið tveggja alda sjálf-
stæði frá Spáni. Stórátak stendur sem hæst: 300 rit eftir 230
höfunda koma út í þýðingum á þýsku og þrjátíu og tveimur
öðrum tungumálum. Bókaiðnaður er sterkur í landinu: 22.600
titlar koma út ár hvert.
Mörg verkanna sem koma nú út díla á einhvern hátt við
harðstjórnarárin 1976 til 1983 og nöfn á borð við Bruzzone,
Drucaroff, Kohan, Martinez, Schweblin og Pauls kunna að
verða þekkt víða á komandi árum. Hefðarveldi í argentínskum
bókmenntum á rætur víða: Þangað fluttust menn víða úr
heiminum og það lýsir heim bóka þar í landi. -pbb
Frá og með deginum í dag verður barnabók eftir Kim
Fupz Aakeson reidd fram í 84 McDonald's-sjoppum í
Danmörku. Danir fylgja fordæmi Svía, Finna og Norð-
manna en þar hafa McDonald's gefið yfir tvær milljónir
eintaka með barnaskömmtun undanfarin ár.
Gagnrýnisraddir segja þetta
gert til að bæta ímyndina,
rétt eins og þegar auð-
hringurinn reyndi að
bjóða upp á hollari mat
en borgarana sína um
árið. Það sé ekki nóg
að gefa bók, einhver
verði að lesa hana ...
-pbb
Argentína toppar í FrankfurtBig Mac og bók
Bók Þorgríms stendur verðskuldað undir barnabókaverðlaunum Ármanns Kr. Einarssonar.
Höfundi er mikið niðri fyrir en höndlar efnið af næmleik og stillingu.
Vitavörðurinn
Camilla Läckberg
Sigurður Þór Salvarsson þýddi
Undirheimar 2010
Að Fjallabaki
Svíþjóðar
Ágústsmellurinn var
sjöunda saga Fjalla-
baks-höfundarins Läck-
berg: Vitavörðurinn. Á
nær 500 síðum rekur
sagan örlög systranna
tveggja sem tengjast
morðgátum með ólíku
móti. Hefst sagan þar
sem sjöttu bókinni lauk.
Camilla er fimur plott-
ari þótt sögurnar séu
oft keimlíkar; hún notar
oft tveggja tíma sýn
og glæpir eiga upphaf
í lífi barna sem bjuggu
við harðræði. Sögur
hennar eru spennandi
en fjölskyldulíf Ericu og
Patriks lögreglumanns
þreytir mann sem uppi-
staða í vefnum. -pbb
Aldrei framar frjáls
Sara Blædel
Árni Óskarsson þýddi
Uppheimar 2010
Mellur á
kjöttorgi
Sara Blædel hin danska
gerir mansal að megin-
efni í Kaupmannahafn-
arkrimma með Louisu
Rick í aðalhlutverki.
Krimmaskáldin hafa
grætt mikið söguefni á
Balkanstríðinu en hér
er vikið að þeim fjölda
austurevrópskra kvenna
sem þjóna í kynlífs-
iðnaði í Köben. Margt
er hér kunnuglegt enda
virðist útsaumsramma
nýbylgjunnar í Norðran-
um skorta fjörefnin.
Þar er nákvæm lýsing á
sóðalegri útþurrkun lífs
talin vera kraftmesta
kryddið. Þar eltir sagan
filmuna. Á sama tíma er
samfélag sýnt í snögg-
leiftri, en krufning
lifandi líks stórborgar-
innar er fjarri Blædel
hinni dönsku. -pbb
Blóðnætur
Ása Larsson
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýddi
JPV 2010
Kvennakirkja
og morð
Önnur bók Ásu Larsson
er komin út: Blóðnætur.
Hún rekur áfram feril
Rebekku Martinsson
eftir hina ægilegu at-
burði Sólgoss sem kom
þýdd í fyrra. Sviðið er
sem fyrr Norður-Svíþjóð
og nú dettur Rebekka
inn í morðrannsókn sem
Anna-María lögreglu-
kona leiðir í einangruðu
samfélagi. Larsson
gerir umhverfið að
áhrifaþætti rannsóknar
á myrtum kvenpresti
sem hefur snúið karla-
samfélagi á hvolf
með starfi sínu meðal
kvenna í sókninni. En
jafnvel kvennaguðfræð-
ingar í hempu eiga sér
leyndarmál. Persónu-
lýsingar næmar, lyktir
ófyrirsjáanlegar og
pólitískt kórréttar. -pbb
Almanak fyrir Ísland
2011 er komið út.
Þetta er 175. árgangur
ritsins. Höfundar eru
Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur og
Gunnlaugur Björnsson
stjarneðlisfræðingur.
AlmAnAk HÍ 2011
Samantha Schweblin er upprennandi stjarna frá
Argentínu.
Ljóðabálkar spyrtir saman af
ramma, kirkjugarði, mánuði, þorp-
inu, eru ekki ókunnir unnendum
ljóðheima. Anton Helgi Jónsson
hefur alltaf haft sérstaka sýn á lífið
og megnað að binda hugsun sína
og upplifun af veröldinni í persónu-
legan stíl, ekki áleitinn í orðkynngi
og stóryrðum, heldur þvert á móti á
hófstilltan, jafnvel svolítið rolulegan
máta sem reynist við ítrekaða skoð-
un vera lágradda en lúmsk aðferð til
að segja sögu í litlu ljóði. Oft stóra
sögu, knippi af snöggum lýsingum,
blæbrigði um þema sem lætur ekki
mikið yfir sér.
Ættarmótsljóðabókin hans nýja,
sem leggur sig á 88 lessíður og
geymir 55 ljóð telji ég rétt, er svona:
í ættarmótinu og ættarmóti er falinn
orðaleikur: þjóðin er undir í kvæða-
safninu og því er hann margradda
ljóðmælandinn, reikull, óviss oft
og smeykur um sitt, ekki sterkur á
svellinu, karlkyns, kvenkyns, mis-
indismenn og níðingar í bland við
hina sem súpa sár vonbrigðin og
eru við enda línunnar orðnir þess
áskynja að lífið fór hjá.
Þetta er hollur skáldskapur. Mis-
kunnarlaus í blíðlegu háði sem
stikar ekki yfir auma blettina en
lítur til þeirra af mildum skilningi
og skýrri greiningu. Hér má víða
hlæja en hláturinn er sprottinn af
tragikómískum harmi trúðsins en
ekki grodda gleðimannsins. Fín bók
fyrir ferlega tíma.
-pbb
Bókadómur ljóð Af ættArmóti Anton Helgi jónsson
Holl lesning
ljóð af ættarmóti
Anton Helgi Jónsson
Mál og menning 2010
Bókadómur ertu guð, Afi þorgrÍmur þráinsson
Í síðustu viku fékk Þorgrímur Þráins-son Íslensku barnabókaverðlaunin sem Ármann Kr. Einarsson stofnaði
til fyrir hartnær aldarfjórðungi. Fyrir
tilstuðlan hans státa útgefendur og að-
standendur af langri röð verka fyrir börn.
Hvort Þorgrímur, sem á langan feril að
baki sem höfundur bóka fyrir börn og
unglinga, utan þess sem hann er einn
hinna þekktu manna í þorpinu Íslandi,
hefur áður lagt handrit í keppnina veit ég
ekki. Sagan sem hann vann verðlaunin
fyrir heitir Ertu Guð, afi? og er skondin
lýsing á snöggum þroska stelpuskotts
sem kemst í kynni við föðurafa sinn er
hnigið er að kvöldi á ævi þessa veraldar-
vana farmanns.
Höfundurinn hendir sögunni beint
inn í reykvískt hversdagslíf vestur við
Landakot, helgi kirkjunnar og heimili
stúlkunnar í túnfæti gamla Víkurkotsins
gefa sögunni skemmtilegan blæ, ugg-
laust framandlegan flestum lesendum
en kunnuglegan okkur sem búum á
þessum slóðum. Sögumaðurinn er
stúlkan Emma Soffía, hennar undrun og
undur eru okkar undur, við sjáum heim-
inn með hennar augum og þroskumst
eins og hún í gegnum frásöguna sem
segir fallega frá heimkomu afans, sam-
verustundum þeirra tveggja, sambandi
hans við föður stúlkunnar og móður, og
tekst höfundi að draga upp kosmos sem
hverfist frá hinu smáa í upphafi sögunn-
ar til víðari skilnings á heiminum, hér
og handan skilvitundar.
Stór markmið en afar sannfærandi
um þau höndlað í kátlegum stíl, kot-
rosknum og víða barnalegum í skynjun
og hversdagslegum í lýsingum og upp-
lifun. Heimur föðurins er fjær okkur,
hann stundar sjóinn á frystitogara og er
lengi fjarvistum frá sínu fólki, en móð-
irin mæðist heima. Samband stúlkunnar
og afans er í upphafi ekki að hennar
skapi en hún umpólast á sinn hátt líka.
Ég þekki ekki mikið til ritverka
Þorgríms, svo mikið sem hann hefur
skrifað gegnum tíðina og selt, en hann
er vinsæll höfundur og hefur tekist á
merkilegan máta að sigla í beinni rák
til lesenda lengst af sínum ferli. Bókin
er ágætlega hugsuð í erindi sínu og höf-
undi er mikið niðri fyrir en hann höndl-
ar það af næmleik og stillingu. Fyrir
bragðið gefst ungum lesendum kostur
á sögu sem vill leiða þau lengra og sýna
þeim lífsskoðanir sem sjaldan rekur inn
í bækur fyrir aldurshópinn ellefu plús.
Hann verðskuldar því verðlaunin með
sóma.
Enn á ný: afasaga
ertu guð, afi?
Þorgrímur Þráinsson
Vaka-Helgafell 2010
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Þorgrímur Þráinsson hefur skrifað skondna
sögu um stelpuskott og föðurafa hennar.
40 bækur Helgin 8.-10. október 2010