Kjarninn - 03.04.2014, Blaðsíða 37

Kjarninn - 03.04.2014, Blaðsíða 37
03/08 Stjórnmál í  Svo kom „blessað stríðið“. Ríkið varð skyndilega vellríkt og framtíðin hlaut að teljast björt. Eða hvað? Erlendir spekingar spurðu hvort örríki á hjara veraldar gæti haldið pólitísku og efnahagslegu sjálfstæði. Fyrstu árin gerðu íslenskir vald hafar reyndar sitt til að ala á slíkum efasemdum. Stríðs gróðinn hvarf og greiðsluvandi ríkisins varð aftur ugg vænlegur. Kom þá ekki annað „gott“ stríð – kalt stríð – og bjargaði málum. Að vísu fylgdi sá böggull skammrifi að þjóðin klofnaði í fylkingar með og á móti hernum. Auk þess óttuðust margir, einkum menntafólk, „ameríkaníseringu“ og „hernám hugarfarsins“. En með kalda stríðinu fékkst Marshall-aðstoð, gjafafé og ókeypis hervernd, að ekki sé minnst á bætta vígstöðu í landhelgismálinu. Í því var hernaðar mikilvægi Íslands öflugt vopn. Frumkvæði fjölmargra erlendra ríkja í hafréttarmálum var einnig dýrmætt. Aftur réðu aðstæður ytra því miklu um sigur Íslands þótt staðfesta og dugnaður Íslendinga sjálfra hafi auðvitað líka haft sitt að segja. Forsendur efnahagslegra framfara voru tryggðar. Auðlindir á láði og legi voru nýttar mun meir en áður – fiski- mið, hagar, fossar, jarðhiti og fagurt landslag fyrir ferðamenn. Með öllu þessu og eigin hugviti tókst okkur að skapa öflugt velferðar samfélag. Lýðveldið efldist en flokkaræði og frændhygli settu að vísu ljótan blett á það. Auk þess voru þeir ekki öfundsverðir sem minna máttu sín eða þóttu á einhvern hátt öðruvísi en gerðist og gekk. Svo kom útrásin, ofvöxtur bankanna og ýkjukenndar hugmyndir of margra Íslendinga um eigið ágæti. Dramb er falli næst. Árið 2014, 70 árum eftir lýðveldisstofnun, erum við Íslendingar tiltölulega nýlega sloppnir með skrekkinn eftir bankahrunið mikla. Ytra vildi nær enginn hjálpa útrásar víkingum, bankamönnum og stjórnvöldum úr því lýðveldisstofnun fagnað Lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum 17. júní 1944. Ísland hafði þá lotið konungum á Norðurlöndum síðan Gamli sáttmáli var gerður árið 1262.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.