Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 49

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 49
ÉS5 FHÁ___Q_ SVEITAR- HVAMMSTANGA- HREPPUR Hitaveita Framkvæmdir eru nú að hefjast við lagningu vatnsæðar undir heitt vatn frá Laugarbökkum í Miðfirði til Hvammstanga og við lagningu hitaveitukerfis um þorpið. Fullvíst þykir nú, að nægilegt heitt vatn hafi fengizt til hitaveit- unnar fyrir þorpið, og er það árangur af margra ára tilraunum til þess að finna nægilegt vatns- magn. Boranir eftir heitu vatni hófust við Ytri-Reyki hjá Laugar- bakka í Miðfirði á árinu 1964. Þá fengust 3—4 sek/lítr. af vatni, en á síðasta ári fengust við borun 10—12 sek/lítr. til viðbótar. Þótti þá sýnt, eftir að fengizt liöfðu nær 16 sek/lítr. að nægilegt vatnsmagn myndi fást í hitaveitu fyrir kaup- túnið. Við frekari borun og dýpk- un á fyrri liolum liafa fengizt um 8 sek/lítr. lil viðbótar. Talið er, að 14 sek/lítr. dugi í liitaveitu fyrir Hv'ammstanga. Samskóli hrepp- anna að Laugarbakka og íbúðar- húsahverfið þar nýtur einnig góðs Brynjólfur Svelnbergsson, oddvltl Hvammstangahrepps af þessu aukna vatnsmagni, sem nú hefur fengizt. Vatnið er um +97°C. Hitaveitulögnin frá Laugarbökk- um til Hvammstanga er 8 km að lengd, og verður vatnið leitt eftir 6 tommu víðum asbeströrum. Jöfn- um höndum er nú unnið að lagn- ingu hitaveitu um kauptúnið. Von- ir standa til, að takast megi að tengja 80% af húsum við hita- veitukerfið fyrir jól. Verkfræðistof- an Fjarhitun liefur hannað verkið. Gert er ráð fyrir, að stofnkostnað- ur hitaveitunnar verði 24 millj. kr. Sameinast um brunavarnir Nýlega hefur tekizt samkomulag milli allra hreppa i Vestur-Húna- vatnssýslu um að standa sameigin- lega að brunavörnum í sýslunni. Brunalið var endurskipulagt á Hvammstanga og annast ]>að slökkvistarf í öllum hreppunum. Aðrir hreppar sýslunnar hafa keypt sameiginlega og lagt til nýlegan Bedford-slökkvibíl frá Bretlandi. Hvammstangahreppur og sýslufé- lagið reistu sameiginlega hús undir slökkvibílinn og sjúkrabíl, sem rek- inn er af sýslufélaginu í tengslum við sjúkrahúsið. Má nú segja, að brunavörnum sé allvel komið í byggðarlaginu. Slökkvistjóri er Stefán Þórhallsson. m M CjTr~i JM Þessi kuldalega mynd á aS undlrstrlka glldl hltaveitu fyrir staS eins og Hvammstanga. Ljósmyndina tók Mats Wibe Lund, jr. fyrlr nokkrum árum, þegar hafíslnn lónaSI útl fyrlr og lokaSi slglingaleiSum á Húnaflóa. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.