Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 Gylfaflöt 16-18 · 112 Reykjavik · Sími 553 5200 · solo.is Ásgeir Einarsson hönnuður Sindrastólsins (1927 – 2001) Í tilefni 50 ára afmælis Sindrastólsins verða framleidd 50 stk. af stólnum í sérstakri afmælisútgáfu þar sem hver og einn stóll verður sérmerktur og númeraður. Viðskiptavinir geta valið þá gæru og litaafbrigði sem þeir vilja á sinn stól sem gerir hvern stól einstakan. Stóllinn er alfarið framleiddur á Íslandi. Söluaðilar: Sólóhúsgögn og G.Á. Húsgögn Stóll 162.000 kr. Skemill 48.000 kr. Sindrastóllinn 50 ára afmælisútgáfa (1962 – 2012) Engin málamiðlun í gæðum Eykur styrk og þol vöðva Lengri högg, lægri forgjöf ! Fæst í apótekum, heilsubúðum og Fríhöfninni. Rannsóknir staðfesta árangur, sjá www.celsus.is Astazan er öflugt andoxunarefni sem kemur í veg fyrir og lagar eymsli, strengi, vöðva- og sinabólgur. Fyrir bak, fætur og hné. Íþróttafólk og sjúkra- þjálfarar mæla með AstaZan. 1 hylk i á dag . Virkar strax! Nýleg rannsókn sem unnin var á veg- um seðlabanka Þýskalands, Bundes- bank, hefur valdið töluverðu fjaðra- foki síðustu dagana en þar er því haldið fram að með auknu hlutfalli kvenna í stjórnum banka aukist áhættusækni bankanna. Rannsóknin skoðaði samsetningu bankastjórna þýskra banka á tíma- bilinu 1994-2010 og mældi breytur eins og menntun, aldur og kyn og áhrif þeirra á atriði í starfsemi bank- anna tengd áhættusækni. Niðurstöð- urnar stangast á við þær fullyrðingar sem m.a. hafa heyrst á Íslandi, um að skortur á konum í hópi æðstu stjórn- enda banka hafi skýrt áhættusækni íslensku fjármálafyrirtækjanna. Auk kyns verkuðu hærri aldur og aukið hlutfall stjórnarmeðlima með doktorsgráðu einnig til að minnka áhættuhegðun. Með minni reynslu Höfundar rannsóknarinnar benda á að fyrri rannsóknir sem sýndu fram á minni áhættuhegðun kvenna í fjár- málageiranum hafi einkum litið til stjórnenda og starfsmanna í útlána- og fjárfestingadeildum en ekki til æðstu stjórnenda. Í skýrslu Bundesbank er m.a. bent á að áhættuaukandi áhrif kvenna kunni að skýrast af því að nýjar konur í stjórnum bankanna hafi alla jafna að baki minni stjórnunarreynslu en nýir karlmenn. Lisa Pollack, greinahöfundur Fin- ancial Times, er ein þeirra sem gagn- rýna niðurstöður rannsóknarinnar, m.a. fyrir að leiðrétta ekki betur fyrir áhrifum stjórnunarreynslu þegar mat var lagt á áhrif kvenna í stjórnum banka. ai@mbl.is AP Glanni? Verðbréfamiðlari hjá hlutabréfamarkaðinum í Frankfurt að störf- um, klædd í grímubúning í tilefni af kjötkveðjuhátíð. Rannsókn Bundesbank bendir til að þótt konur séu síður áhættusæknar t.d. í fjárfestingarstörfum þá stuðli þær að aukinni áhættuhegðun ef þær sitja í stjórnum banka. Auka konur áhættusækni  Rannsókn bendir til að bankar taki frekar áhættu ef fleiri konur eru í stjórn Hlutafjárútboð samfélagsvefjarins Facebook mun fara fram á Nasdaq, að því er heimildir Wall Street Journal herma. Þykir þetta stór sigur fyrir Nasdaq sem slegist hefur við NYSE um þennan safaraíka bita. Facebook-útboðið þykir styrkja Nasdaq í sessi sem markaður fyrir hátæknifyrirtæki. Búist er við að Facebook muni selja hluti fyrir allt að 10 milljarða dala sem verður stærsta hlutafjárútboð netfyrirtækis a.m.k. frá hlutafjárútboði Google árið 2004. Hlutafjárútboðið fer fram í maí og gæti orðið með þeim stærstu í sögu Bandaríkjanna. Til þessa hafa sárafá fyrirtæki náð að rjúfa 10 milljarða dala múrinn, s.s. AT&T, General Motors og Visa. ai@mbl.is Útboð Facebook fer til Nasdaq  Kann að rjúfa 10 milljarða múrinn í maí AP Verðmæti Gangi allt að óskum í hlutafjárútboðinu verður um töluverðan hvalreka að ræða fyrir Facebook. Mark Zuckerberg á góðri stundu, en hann hefur manna mesta ástæðu til að kætast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.