Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 233. tölublað 100. árgangur
BÍLAR
Metanbílar sem rjúka út, nýjustu
rafbílarnir, eftirminnilegustu
tryllitæki James Bond og margt
fleira í 40 síðna blaðauka
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Til skoðunar er að fella niður laga-
ákvæði um hljóðritanir á ríkisstjórn-
arfundum áður en það á að taka gildi
1. nóvember, enda hafa sérfræðingar
fundið ýmsa annmarka á lögunum.
Kveður ákvæðið á um að upptök-
urnar skuli opinberaðar 30 árum eft-
ir hljóðritun en það átti upphaflega
að taka gildi 1. janúar síðastliðinn.
Valgerður Bjarnadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,
segir engar ákvarðanir hafa verið
teknar um framhaldið.
Að hætta við eða breyta lögum
„Við erum með málið til umræðu
og erum að ræða okkar á milli hvern-
ig við bregðumst við. Málið er ekki
komið lengra en það. Við höfum
þrjár vikur til stefnu. Það verður
fundur hjá okkur í nefndinni á
þriðjudaginn og málið verður á dag-
skrá þá. Nokkrar leiðir eru færar.
Ein væri sú að fella ákvæðið á
brott en það kallar á breytingar á
stjórnarráðslögum. Hinir kostirnir
eru að greiða fyrir lagaákvæðinu
með því að breyta öðrum lögum. Til-
gangurinn er þá m.a. sá að tryggja
að lokað sé fyrir aðgang að upptök-
unum í 30 ár. Þetta tæki tíma og
kallaði á frestun laganna sem eiga að
taka gildi 1. nóvember.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins þarf að breyta mörgum
lögum til að hljóðritunin geti hafist.
Íhuga að hætta við lögin
Morgunblaðið/Ernir
Stjórnarráðið Til stóð að taka upp
ríkisstjórnarfundi með hljóðritun.
Óvíst hvort lagaákvæði um hljóðritanir á ríkisstjórnarfundum taka gildi í haust
Upptökurnar myndu kalla á víðtækar lagabreytingar Þrjár vikur til stefnu
MAnnmarkar taldir á »4
Margir hafa eflaust lesið sögurnar af skraut-
legum uppátækjum kattarins með höttinn í
samnefndum bókum.
Á myndinni má sjá ekki síður uppátækjasam-
an kött sem hefur nánast sett sig í hlutverk hatt-
arins á höfði manns. Það var þó engin þörf fyrir
að ganga með húfu á höfuðborgarsvæðinu í gær
enda hið fegursta haustveður. Útlit er fyrir að
borgarbúar njóti svipaðrar veðurblíðu í dag.
Morgunblaðið/Kristinn
Ber er hver að baki nema sér kött eigi
„Mér finnst
gamaldags að
senda fólk í
verslanir til að
skrá niður verð
og vinna skrif-
lega úr könn-
uninni áður en
hún er birt.
Verð er svo
fljótandi í dag
að menn gætu sagt könnunina ein-
ungis bregða upp mynd af gamalli
stöðu,“ segir Tryggvi Axelsson, for-
stjóri Neytendastofu, en að hans
mati eru aðferðir Alþýðusambands
Íslands (ASÍ) til eftirlits með verði á
matvöru úreltar. Tryggvi segir
mikla þörf vera á virku og öflugu
eftirliti hér á landi og hentugast
væri að opinber stofnun annaðist
hlutverkið í stað hagsmunasamtaka
á borð við ASÍ. »6
Gamaldags aðferðir
við verðlagseftirlit
Níu fermetra veiðikofi við Hruna-
krók á efsta veiðisvæði Stóru-Laxár
í Hreppum gæti í framtíðinni hýst
eitt minnsta sögu- og minjasafn
landsins. Veiðifélagið og leigutaki
árinnar áforma að endurbyggja
húsið, sem staðið hefur í Hruna-
krók í um 70 ár, en var notað sem
varðskýli í seinna stríðinu.
Þarna yrðu sögu veiða í ánni
gerð skil í máli og myndum. »14
Safn Sennilega verður kofinn sóttur og
endurbyggður á verkstæði.
Minnsta sögusafnið
í kofa í Hrunakrók
„Áður tók ég
frelsinu sem
sjálfsögðum hlut,
líklega eins og
flestir aðrir. Mér
finnst þetta
skrýtið, ég er
frjáls og á meðal
fólks. Þetta er
furðuleg tilfinn-
ing. En hún er
góð. Ég ætla að
nota hverja einustu mínútu það sem
eftir er til að gera góða hluti,“ segir
Brynjar Mettinisson.
Brynjari var sleppt úr fangelsi í
Taílandi þar sem hann var í haldi í
16 mánuði vegna gruns um fíkni-
efnabrot. Hann var sýknaður af öll-
um ákæruatriðum í lok júlí en losn-
aði ekki úr fangelsinu fyrr en í
byrjun þessarar viku. Hann kom í
gær heim til systur sinnar í Svíþjóð.
Að minnsta kosti 17 Íslendingar
eru nú í fangelsum ytra og að auki
er einn á reynslulausn og í farbanni
í Brasilíu. »17
„Ég er frjáls
og á meðal fólks“
Brynjar
Mettinisson
Tveir karlar og ein kona, sem voru í
hópi þeirra sem handteknir voru á
miðvikudagskvöldið í umfangsmikl-
um aðgerðum lögreglunnar gegn
vélhjólagenginu Outlaws, voru í
gærkvöldi úrskurðuð í gæsluvarð-
hald til 11. október næstkomandi.
Að auki var farið fram á gæslu-
varðhald yfir einum manni til viðbót-
ar en dómari tók sér frest til dagsins
í dag til að taka afstöðu til kröfunnar.
Níu öðrum sem voru handteknir og
vistaðir í fangageymslum lögreglu
var sleppt úr haldi í gær. Þar af voru
átta karlar og ein kona.
Lögregla lagði hald á nokkra tugi
gramma af sterkum fíkniefnum,
stera, bruggtæki og bæði landa og
gambra í húsleitunum en þær voru
gerðar á fjórum stöðum á höfuðborg-
arsvæðinu, tveimur á Suðurnesjum
og einum stað í Árnessýslu. Hluti
fíkniefnanna fannst í félagsheimili
Outlaws í Hafnarfirði. Þá var lagt
hald á ætlað þýfi og ýmis eggvopn.
Alls tók á áttunda tug lögreglu-
manna frá höfuðborgarsvæðinu,
Suðurnesjum og Árnessýslu þátt í
aðgerðunum auk sérsveitar ríkislög-
reglustjóra og starfsmanna toll-
gæslu með sérþjálfaða hunda.
„Lögreglan gerir allt sem í hennar
valdi stendur til að gera skipulegum
brotasamtökum það ljóst að þeirra
starfsemi verður ekki liðin og þarna
held ég að lögreglan eigi góðan
hljómgrunn með þjóðinni,“ sagði
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra um málið í gærkvöldi.
Þrír útlagar í gæsluvarðhald
Skipulögð glæpastarfsemi verður ekki liðin á Íslandi segir innanríkisráðherra
Mynd/Pressphotos.biz
Í gær Víðir Þorgeirsson, foringi Out-
laws, við Héraðsdóm Reykjaness.