Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.11.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Ný skáldsaga hins vinsæla höf- undar Einars Más Guðmundssonar nefnist Íslenskir kóngar. Þar er rakin saga Knudsen-ættarinnar í Tangavík en á ýmsu hefur gengið hjá þeirri ætt. Einar Már er spurð- ur hvort hann sé í bókinni að lýsa dæmigerðri valdaætt á Íslandi. „Já og nei,“ segir hann. „Þessi ætt er dæmigerð fyrir hina fjölbreytilegu flóru mannlífsins og því er ekki hægt að kalla alla sem koma við sögu og bera þetta ættarnafn valdamenn. Á hinn bóginn er rétt að þessi ætt hefur haft töluvert að segja um lífsgrundvöllinn á Tanga- vík og þegar menn eru búnir að lesa söguna sjá þeir Knudsen- ættina kannski sem valdaætt. Ég legg þetta eiginlega í dóm lesand- ans. Sjálfur hugaði ég mest að því að leyfa hverjum einstaklingi að njóta sín. Ég get ekki skrifað um fólk nema ég standi með því og mér þyki vænt um það. Ég skapa persónur sem ég fíla, ef ég má taka þannig til orða. En þessar persón- ur eru ekki alltaf heilagar eða hafn- ar yfir gagnrýni. Þvert á móti.“ Veruleikinn er mikill fjár- sjóður Síðustu bækur Einars Más voru Hvíta bókin, 2009, og Bankastræti núll, 2011 en þar skrifaði hann um menningu, þjóðfélagsmál, pólitík og hrunið. Í Íslenskum kóngum má finna fjölmargar vísanir í liðna at- burði í íslensku samfélagi. Má finna tengingu milli skáldsögunnar og þessara tveggja bóka? „Það má líta á Hvítu bókina og Bankastræti núll sem brú yfir í þessa bók að því leyti að þessi bók vísar stöðugt í raunveruleikann,“ segir Einar Már. „Veruleikinn er mikill fjársjóður. Eigum við ekki bara að segja að ég hafi verið að ydda blýantinn með hinum bókunum tveimur? Ég hef verið að búa mig undir beitt raunsæi sem þó er algjörlega frjálst. Kannski hefði ég ekki getað skrifað þessa skáldsögu nema ég hefði aflað mér þeirrar þekkingar sem nauðsynleg var til að skrifa hinar bækurnar tvær á undan. Kannski kallaði hrunið fram ákveð- ið endurmat í huga mér. Í Íslenskum kóngum er ég að segja sögu af fólki en um leið verð- ur til saga 20. aldar, saga okkar tíma. Sagan er sett inn í þjóð- félagsþróunina og þjóðfélagsþróun- in inn í söguna. Hér má eflaust finna visst endurmat en líka sterka þætti úr gamansögunni og töfra- raunsæinu og öllu því sem einkennt hefur skrif mín.Veruleikinn er allt- Einar Már Guðmundsson „Þó að það kosti blóð, svita og tár að vinna og finna þráð sögunnar þá er það gleðin við að segja söguna sem stendur upp úr að lokum.“ Við þurfum að vera snjallari en klámhundarnir  Íslenskir kóngar er ný skáldsaga Einars Más »Málið er einfalt: Skáldskapurinn verður aðvera í ákveðnum samræðum við veru- leikann. Skáldsagan er engin heilög kýr en hún er samt svo frjáls að maður getur farið með hana í allar áttir eða réttara sagt, hún fer með mann í allar áttir. Almennt séð finnst mér skáldskapurinn eiga í skemmtilegri baráttu við afþreyingu og klámið. Við þurfum að vera snjallari en klámhundarnir og djarfari en bæði lögreglu- og glæpaskólarnir í sagnagerðinni. Þess vegna er skáldsagan að hrökkva aftur í gírinn og verða djörf og ágeng. Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Sérsmíðaðar innréttingar Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar sérsmíði á innréttingum. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.