Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014 Menning F yrsta hugmyndin að Vonarstræti kviknaði fyrir níu árum. Þetta átti alltaf að verða mín fyrsta mynd, en örlögin höguðu því þannig að Órói varð á undan. Það má því segja að fæðingin hafi orðið býsna löng, en eftir á að hyggja var það hins veg- ar til góðs, því þessi mynd reyndist svo miklu flóknari en Órói var nokkurn tímann. Þessi bið var því bráðnauðsynleg fyrir verk- ið mitt,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Bald- vin Z um mynd sína Vonarstræti sem frum- sýnd verður föstudaginn 16. maí. Kvikmyndahandritið skrifaði Baldvin í samvinnu við Birgi Örn Steinarsson. Segir hann kvikmyndina vera innblásna af sönn- um atburðum og því viðbúið að áhorfendur kannist við tilteknar aðstæður, persónur eða atburði úr raunveruleikanum, enda ekki langt um liðið síðan útrásin stóð sem hæst. „Myndin er samt engin hrunmynd og setur ekki sérstakan fókus á útrásarvíkingana,“ segir Baldvin. Ein sena myndarinnar gerist um borð í skemmtiferðarsnekkju og segir Baldvin að hún hafi verið ein sorglegasta sena sem hann hafi nokkurn tímann þurft að mynda einmitt sökum þess hversu raunsæ hún sé. „Myndin er þó um svo miklu meira og miklu alvarlegri hluti en einhverja útrásarplebba. En vissulega flæk- ist einn karakter myndarinnar inn í heim útrásarvíkinga og fjármálaspillingar,“ segir Baldvin og vísar þar til Sölva sem Þorvald- ur Davíð Kristjánsson leikur. „Sölvi er fyrrverandi atvinnumaður í fót- bolta erlendis, en hættur þar og nýkominn heim vegna meiðsla. Hann er ungur, graður maður sem fær útrás fyrir sína greddu í bankaumhverfinu. Við fylgjumst með honum klifra upp metorðastigann í banka. Saga hans fjallar þó meira um samband hans við konuna sína og hvernig það molnar smám saman eftir því sem hann sogast meira inn í bankaumhverfið,“ segir Baldvin og tekur fram að saga Sölva sé ein af þremur meg- insögum myndarinnar. Leikararnir guðs gjöf „Myndin fylgir eftir þremur mjög ólíkum persónum sem eiga það sameiginlegt að búa yfir leyndarmáli. Þau eru öll að reyna að fóta sig í íslensku samfélagi á árunum rétt fyrir hrun, þ.e. 2005-2006,“ segir Baldvin og tekur fram að saga Móra, sem Þorsteinn Bachmann leikur, hafi í reynd verið fyrsta kveikjan að myndinni. „Móri er bóhemskáld sem dvelur mikið á börum borgarinnar og jafnvel bekkjum. Hann er að fara að gefa út sína fyrstu bók í 20 ár og þarf að takast á við ákveðna fortíðardrauga. Að lokum er það svo saga Eikar sem Hera Hilmarsdóttir leikur. Eik er einstæð móðir sem gerir það sem hún þarf að gera til að lifa hversdags- leikann af. Hún lifir tvöföldu lífi þar sem hún vinnur annars vegar á leikskóla og hins vegar stundar hún heimavændi, sem er mun algengara hérlendis en fólk gerir sér al- mennt grein fyrir,“ segir Baldvin og tekur fram að örlög þessara þriggja persóna flétt- ist saman á áhrifaríkan hátt. „Þau eru ör- lagavaldar í lífi hver annars,“ segir Baldvin og hrósar happi yfir góðum leikurum í burðarhlutverkum. „Ég var alltaf ákveðinn í að nota Þor- stein, en var búinn að leita í nokkurn tíma áður en Hera og Þorvaldur urðu fyrir val- inu. Það var algjör guðs gjöf að fá þau tvö inn í myndina, því þau eru ótrúlega hæfi- leikaríkir og flottir krakkar. Með þeim blása ferskir vindar sem skilar sér inn í kvikmyndalistina hérlendis. Þau láta mig líta fáránlega vel út sem leikstjóra,“ segir Baldvin sposkur. Kallaður lúxuspinni Spurður hvernig fjármögnun myndarinnar hafi gengið fyrir sig segist Baldvin verða að vísa á framleiðendur sína, þá Ingvar Þórð- arson og Júlíus Kemp. „Þeir leystu fjár- mögnunina vel úr hendi, en það hjálpaði vissulega til að hvað Órói hefur gengið vel. Sú mynd hefur farið á 65 kvikmyndahátíðir og verið seld til einhverra tugi landa,“ segir Baldvin og tekur fram að erlendir fjárfestar þori frekar að veðja á kvikmyndaleikstjóra sem þegar séu búnir að sanna sig. „Með Vonarstræti treysta þeir mér vonandi fyrir öllum sínum peningum,“ segir Baldvin kím- inn. Spurður hver heildarkostnaðurinn við gerð Vonarstrætis hafi verið segist Baldvin ekki vita það. „Og ég vil ekki vita það. Ég heimta bara og er frekur og fæ það sem ég vil. Þeir Ingvar og Júlíus kalla mig alltaf „lúxuspinnann sinn“ vegna þess hvað þeir eru góðir við mig. En þeir eru líka frábær- ir, enda hafa þeir staðið við bakið á mér ár- um saman.“ Vinnur að mynd um týndu stelpurnar í þjóðfélaginu Inntur eftir því hvort handritagerðin hafi kallað á mikla rannsóknarvinnu segir Bald- vin aðalatriðið hafa verið að finna fólk sem hafi verið tilbúið að segja þeim Birgi sögu sína. „Við erum með stóran hóp heimildar- manna sem sögðu okkur alls kyns sögur sem við settum síðan saman eftir listrænum þörfum. Þannig er engin ein fyrirmynd að persónum t.d. Eikar og Sölva. Við pöss- uðum okkur á því að skálda sögurnar þó að sannleikurinn væri innblástur okkar. Það munu þannig verða senur í myndinni sem einhverjir kannast við.“ Hvað titil myndarinnar varðar segir Bald- vin að hann vísi annars vegar til þess að allar séu aðalpersónurnar í leit að von. „Hins vegar vísar titillinn til þess að kjarni myndarinnar gerist í og í grennd við Von- arstræti, s.s. við Tjarnargötu og Bjark- argötu, þó ég svindli aðeins í landafræðinni. En hjarta myndarinnar slær á þessu svæði,“ segir Baldvin og tekur fram að enskur titill myndarinnar verði hins vegar Life in a Fishbowl. „Enda hefði verið glatað að láta myndina heita Hopestreet.“ Ekki er hægt að sleppa Baldvini án þess að forvitnast um næstu verkefni. „Ég geri ráð fyrir að fylgja Vonarstræti eftir á er- lendri grundu,“ segir Baldvin og tekur fram að hann hafi fylgt Óróa eftir á hátíðum út í heim í tvö ár eftir frumsýningu. „Ég er nýbúinn að fá styrk til að gera heimild- armynd sem mér tekst vonandi að klára á næsta ári. Svo er ég með sjónvarpsseríu í þróun sem verið er að fjármagna. Næsta kvikmynd fer vonandi í tökur árið 2016, en við Birgir höfum unnið að handriti þeirrar myndar sl. hálft annað ár. Sú mynd fjallar um týndu stelpurnar í íslensku samfélagi. Mansal á unglingsstúlkum er stundað hér á Íslandi og þetta er ljótt þjóðfélagsmein sem því miður er hunsað. Við höfum unnið með nokkrum stelpum að því að að skoða þenn- an dimma heim,“ segir Baldvin og tekur fram að stærsti innblástur þeirra Birgis að sögu myndarinnar sé Kristín Gerður sem lést árið 2001, en Kristínarhús Stígamóta var nefnt eftir henni „Ég fékk hennar sögu upp í hendurnar fyrir rúmum tveimur ár- um. Hún skildi eftir sig dagbækur sem fjöl- skylda hennar leyfði mér að lesa,“ segir Baldvin og tekur fram að það sé afar vandasamt að skrifa um þennan dökka heim svo vel sé. „Myndin er þó um svo miklu meira og miklu alvarlegri hluti en einhverja útrásarplebba,“ segir Baldvin Z handritshöfundur og leikstjóri Vonarstrætis. Morgunblaðið/Ómar NÍU ÁR ERU SÍÐAN BALDVIN Z KVIKMYNDALEIKSTJÓRI FÉKK HUGMYNDINA AÐ VONARSTRÆTI „Átti að vera mín fyrsta mynd“ NÝJASTA KVIKMYND BALDVINS Z GERIST Á ÁRUNUM RÉTT FYRIR EFNAHAGSHRUNIÐ 2008. MYNDIN FYLGIR EFTIR ÞREMUR ÓLÍKUM PERSÓNUM SEM EIGA ÞAÐ SAMEIGINLEGT AÐ BÚA YFIR LEYNDARMÁLI EN ÖRLÖG ÞEIRRA FLÉTTAST, AÐ SÖGN LEIKSTJÓRANS, SAMAN Á ÁHRIFARÍKAN HÁTT. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Þorsteinn Bachmann fara með hlutverk Sölva og Móra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.