Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 203. tölublað 102. árgangur
FERÐAST FYRIR
HVALFJÖRÐ
SEM ER Í FELUM PRJÓNUÐU GANGANDI
KAREN STIGAMEISTARI
EIMSKIPSMÓTARAÐ-
ARINNAR Í GOLFI
SÖFNUÐU ÁHEITUM 10 ÍÞRÓTTIR Á FERÐ UM ÍSLAND 12
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við erum búin að átta okkur aðeins betur á þessu og það
er komið réttara mat á því hversu mikið flæðir þarna upp,
en að meðaltali renna fram um 200 til 300 rúmmetrar af
hrauni á sekúndu,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur í gærkvöldi en fyrstu merki um gos í
Holuhrauni, skammt norður af Dyngjujökli, sáust í vef-
myndavél Mílu laust fyrir klukkan sex aðfaranótt sunnu-
dags. Talið er að gos hafi hafist um fjögurleytið sömu nótt.
Ekkert lát virtist vera á eldgosinu um klukkan 23 í gær-
kvöldi.
„Þetta er verulegt sprungugos en ekkert stórgos þótt
það sé margfalt stærra en það sem varð á sama stað
tveimur dögum áður,“ segir Magnús Tumi og bætir við að
gosið líkist mjög Kröflueldum enda er um hliðstætt
hraungos að ræða, bæði hvað varðar stærð og ákafa.
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur var í hópi
þeirra vísindamanna sem fyrstir komu á gosstöðvarnar í
gær. Hann lýsir eldgosinu sem glóandi dreka í náttúrunni.
„Þetta er lifandi sprunga og það vellur mikið hraun upp úr
allri sprungunni,“ segir Ármann. „Þegar við sáum sprung-
una [í gærmorgun] var þetta eins og glóandi dreki í land-
inu. Þetta var mjög glæsilegt.“
Flogið verður yfir gosstöðvarnar í dag
Spurður hvort eldgosið í Holuhrauni kunni að hafa
einhver áhrif á bergganginn sem myndast hefur að und-
anförnu svarar Magnús Tumi: „Það sem er spennandi að
vita er hvaða áhrif gosið mun hafa á ganginn – mun hann
hætta að þenjast út eða mun hann halda því áfram? Mað-
ur á frekar von á því að núna tappist af ofan á yfirborðið
en ekki að gangurinn haldi áfram að stækka.“ Það kemur
þó ekki í ljós fyrr en búið er að vinna úr frekari GPS-
mælingum. „Færslurnar eru mældar á átta tíma fresti og
þegar við sjáum það fer þróunin að skýrast.“
Spurður hvort farið verði í eftirlitsflug með TF-SIF,
eftirlitsflugvél Landhelgisgæslu Íslands, í dag kveður
Magnús Tumi já við. „Helsti kosturinn við flugið er eink-
um það að þá er hægt að fá nokkuð nákvæma mynd af út-
breiðslu hraunsins, sem er ekki alveg eins auðvelt að gera
á jörðu niðri vegna þess að ekki er hægt að fara inn í gas-
mökkinn sem stígur upp af þessu. Menn verða því alltaf að
halda sig hlémegin,“ segir hann.
Glóandi eldvegg-
ur minnti á dreka
Óvíst hvaða áhrif eldgosið mun hafa á bergganginn
Úr sprungunni koma um 200 til 300 rúmmetrar af hrauni
Eldsumbrot í Holuhrauni
» Laust eftir miðnætti 29. ágúst opnaðist um 600
metra löng gossprunga í Holuhrauni.
» Hraunrennsli stöðvaðist um fjórum klukku-
stundum síðar.
» Tveimur sólarhringum síðar hófst eldgos á ný í
Holuhrauni þegar um 1,5 km sprunga opnaðist.
Ljósmynd/Ármann Höskuldsson
Eldsumbrot Gossprungan í Holuhrauni, sem er talin vera um 1,5 km á lengd, opnaðist af miklum krafti aðfaranótt sunnudags. Um tíma teygðu tignarlegir gosstrókar sig í um 100 metra hæð.
Eldgos hófst á ný í Holuhrauni um klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags
MEldgos í Holuhrauni »6
Túnfiskur frá Íslandi
vakti athygli í Japan
Ljósmynd/Halldór Elís Ólafsson
Markaður Sérfræðingar meta fiskinn.
Túnfiskur frá Íslandi sem seldur
var á fiskmarkaði í Tókíó í síðustu
viku vakti nokkra athygli. Hver
fiskur var seldur á um 680 þúsund
krónur að meðaltali, en meðalvigt
fiskanna, eins og þeir voru seldir,
var 132 kíló. Fyrir hvert kíló feng-
ust því rúmlega fimm þúsund krón-
ur, en vonir standa til að hærra
verð fáist fyrir túnfisk þegar líður á
haustið. Í gær var 14 túnfiskum
landað í Grindavík í viðbót við þá 11
sem áður var búið að veiða. »6
Fresti til umsóknar um lækkun
höfuðstóls verðtryggðra lána lýk-
ur í kvöld. Rúmlega 65 þúsund
umsóknir hafa borist ríkisskatt-
stjóra hingað til. Þá hafa um 24
þúsund manns sótt um óskerta
greiðslu til þess að ráðstafa sér-
eignarsparnaði til greiðslu hús-
næðislána eða til húsnæðissparn-
aðar.
Tryggvi Þór Herbertsson, verk-
efnisstjóri um framkvæmd höfuð-
stólslækkunar íbúðalána, segir að
útreikningar og yfirferð umsókna
muni taka um mánuð. „Fjöldi um-
sókna er í hærri kantinum, en
partur af þeim
umsóknum sem
eru komnar er
ógildur vegna
gengislána, og
við vitum ekki
alveg hversu
margar þær eru.
Við áætlum að
útreikningar og
yfirferð um-
sókna muni taka
sirka mánuð, þannig að þeim ætti
að ljúka um næstu mánaðamót og
þá munum við geta birt niðurstöð-
urnar.“ »2
Yfir 65 þúsund um-
sóknir hafa borist
Tryggvi Þór
Herbertsson