Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 1
10 LTBi ÚTIMÁLNING FRÁI 28. árgangur • Vestmannaeyjum 23. ágúst 2001 • 34. tölublað • Verð kr. 150,-* Sími: 481 1300 • Fax: 481 1293 Ákvörðun sjávarútvegsráðherra kemur illa við Vestmannaeyjar: r Avísun á uppsagnir og atvinnuleysi sjómanna Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að koma til móts við króka- báta og iáta þá hafa aukinn kvóta í ýsu, ufsa og steinbít mælist víða illa fyrir enda verið að færa umtalsverðar veiðiheimildir frá aflamarksskipum til krókabát- anna. Bitnar það hart á Vest- mannaeyingum sem mega sjá á eftir mörg hundruð tonnum sem flest enda á Vestfjörðum. Þá kom kvótasetning á skötusel, löngu og keilu eins og þruma úr heiðskíru lofti og setur hún útgerð fimm til sex báta í Vestmannaeyjum í óvissu auk þess sem minni ýsu- kvóti gæti þýtt að bátum hér fækkaði um þrjá til fimm. Magnús Kristinsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, segir að með þessari ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra sé enn einu sinni verið að púkka undir trillukarlana á kostnað aflamarksskipanna. í fyrra hafi þeir hafi þeir fengið 2500 tonn af 30.000 tonna úthlutun afla- marksskipanna og nú sé bætt um betur því nú eigi þeir að fá til við- bótar 2000 tonn. „Það var ekki nóg með að þeir fengju þessi 2500 tonn heldur fara þeir langt fram úr þeim á þessu ftskveiðiári sem bitnar á heildinni," sagði Magnús. Hann segir að þarna sé verið að taka sem nemur kvóta eins báts í Vestmannaeyjum sem hljóti að þýða uppsagnir og atvinnuleysi. ■ „Með þessu er hægt en ákveðið verið að þrengja að hengingarólinni á okkur sem erum í hefðbundinni útgerð. Mitt fyrirtæki hefur fjárfest fyrir milljarð í aflaheimildum og það er sárgrætilegt að sjá á eftir þeim til trillukarlanna og sitja svo uppi með fjárhagslegar skuld- bindingar vegna kaupanna. Það er líka athyglisvert að sjá þingmenn Vestfirðinga vaða eld og brennistein fyrir sitt fólk á meðan ekkert heyrist í þingmönnum okkar. Ég efast stór- lega um að þeir hafi hugmynd um alvöru málsins. En ef það er vilji stjórnmálamanna að færa trillukörl- um á Vestfjörðum aflaheimildir er ekki til of mikils ætlast að ríkið kaupi þær í stað þess að taka þær eignarnámi,“ sagði Magnús. Meðal annarra breytinga frá ráð- herranum er að kvóti er settur á skötusel og löngu 4.500 lestir, 3.000 lestir fyrir löngu og 1.500 lestir fyrir skötusel. Bergvin Oddsson, útgerðarmaður og skipstjóri á Glófaxa VE, er frumkvöðull að veiðum á skötusel í net og voru þær að skila útgerð og áhöfn góðri afkomu í fyrrahaust. Hann segir að ákvörðun ráðherra um að setja skötusel í kvóta hafi komið sér gjörsamlega á óvart og með því sé grundvellinum kippt undan þessum veiðiskap. I allt hafa á milli tíu og tuttugu bátar stundað netaveiðar á skötusel og þar af sex frá Vestmannaeyjum. „I fyrrahaust byrjuðum við út- haldið 12. september og vorum að til 15. janúar. Aflinn var um 100 tonn og verðmætið 35 til 37 milljónir. Það þykir gott miðað við árstíma og bjargaði haustinu hjá okkur,“ sagði Bergvin. Hann segir að það kosti 10 til 12 milljónir að starta og nú sitja menn uppi með búnaðinn án þess að geta nýtt hann, kvótinn verði það lítill. Fyrst verður 80% kvótans deilt út og eftir því sem hann kemst næst verður hæsti báturinn með um 150 tonna kvóta en sjálfur reiknar hann með um 40 tonnum sem gætu farið í 50 tonn þegar 20%, sem eftir verða, koma til úthlutunar. Flestir fá svo örfá tonn. „Mér sýnist þetta bitna verst á kvótalitlum bátum, það er verið að slátra þeim með þessu því þeir hafa getað bjargað sér á meðafla í skötu- sel, löngu og keilu. Skötuselsveiðar hljóta líka að detta upp fyrir því kvótinn stendur ekki undir kostnaði og enginn veit hver verðmyndunin verður í skötuselnum eftir kvóta- setninguna.“ Bls. 2. Minnk- andi að- sókn á heima- leiki ÍBV- strák- anna í sumar Fyrir yfirstandandi tímahil var liðum í efstu deild gert að bæta aðstöðu sína fyrir úhorfendur og konia fyrir skipulögðum úhorf- endastæðum. Eggert Magnússon formaður KSÍ sagðist sann- færður um að bætt aðstaða myndi þýða fleiri áhorfendur. Nú þegar fjórar umferðir eru eftir keniur í ljós fjölgun á öllum völlum nema í Eyjum, hér er gífurleg fækkun á áhorfenda- fjölda, allt að 30% fækkun. ívar Átlason, gjaldkeri knattspyrnu- deildar IBV segir þetta mjög alvarlegt mál, „miðað við þær tölur sem ég hef frá því í fyrra er fækkun um að meðaltali 200 manns á leik. Það gefur augaleið að það veldur gjaldkera miklum áhyggjum og sárum vonbrigðum, þó sérstaklega í Ijósi þess að lagt var upp með það í vor að byggja á heima- mönnum og við höfum verið með allt frá átta og upp í ellefu Eyjamenn í byrjunarliðinu.“ Ivar segir það spurningu hvort menn vilji frekar fylla liðið af „útlendingum.“ „Kannski það dugi til að fá fólk á völlinn, ég veit það ekki.“ Ivar segir það vissulega hafa skapað þeim vandræði hversu seint gekk að púsla liðinu saman og hversu fá mörk liðið hefur skorað. „En við skulum ekki gleyma því að við erum í toppbaráttunni og því ætti áhuginn að vera mikill, aðallega vegna þess að nú er liðiö byggt upp á ungum og efni- legum eyjapeyjum.“ Á myndinni eru Birkir markvörður og varnartröllin Kjartan og Hlynur að taka sig- urhringinn eftir sigurinn á móti Grindavík á sunnudaginn. Bls. 8 og 9. TM-ÖRYGGI fyrir fjölskylduna sameinar öll tryggingamálin á einfaldan og hagkvæman hátt - á öllum svibum! Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 323.5._ Rettmgar og sprautun Sími 481 1535 SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS Júní - september Frá ■ Vestmannaeyium Frá Þorlákshöfn Alla daga. 8.15 12.00 Aukaferð mán., fim., fös. og sun. 15.30 19.00 HERJÓLFUR Nánari upplýsingar: Vestmannaeyjar: Sími 481-2800 • Fax 481 2991 Þorlákshöfn: Sími 483-3413 «Fax 483 3924 jndflutningar /SAMBKIP

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.