Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 1
Viðgerðir og smurstöð -Sími 481 3235 Réttingar og sprautun Bílaverkstæði - Flötum 20 -Sími481 1535 38. árg. I 52. tbl. I Vestmannaeyjum 29. desember 2011 I Verð kr. 350 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is VESTMANNAEYJAR í vetrarbúningi. Mynd Sigríður Högnadóttir. Gætið varúðar í hálkunni „f tíðarfari eins og verið hefur síð- ustu daga og vikur er mjög erfitt að hreinsa bæði götur og gangstéttar eins og þarf. En það er reynt og þegar snjóar mikið eru öll tæki í bænum, bæði sem bærinn á og í eigu einkafyrirtækja, send út. Eru þá allt upp í tólf til fjórtán tæki að ryðja götumar," sagði Guðmundur Þ.B. Ólafsson, rekstrarstjóri Þjónustu- miðstöðvar bæjarins. Nær allan desembermánuð hefur verið snjór í Vestmannaeyjum með tilheyrandi ófærð á götum. Hafa skipst á frost og hláka þannig að oft er mjög hált og hættulegt að fara um. Guðmundur vill sérstaklega vara við þessu. „Þá er mikil slysahætta bæði fyrir akandi og sérstaklega gangandi. Best væri að sem fæstir væm á ferð við þessar aðstæður og enginn hreyfi farartæki nema að vera á mjög góðum negldum vetrardekkjum, eða hreinlega á keðjum. Gangandi er bent á að notast við „skókeðjur", það er mannbrodda eða gorma. Þar sem gangstéttir og gönguleiðir hafa fæst- ar verið mddar, eftir seinustu ágjöf, skapast enn meiri hætta fyrir gang- andi sem þurfa að notast við göturn- ar og þá er enn meiri hætta af um- ferðinni ef vanbúnir bfiar em þar á ferðinni." Götur em misjafnlega vel hreins- aðar og segir Guðmundur ástæðuna vera að erfitt sé að komast að fyrir bfium sem lagt er meðfram sumum götum. Nefnir hann í því sambandi Heiðarveg og Bámstíg. „Það er líka mjög erfitt að hreinsa Bámstíg niður í malbik vegna bflastæðanna og þá myndast klakabunki sem er erfiður yfirferðar. Við höfum reynt að keyra snjóinn í burtu eins og hægt er en stundum emm við uppteknir við að hjálpa vanbúnum bfium að komast leiðar sinnar. Núna emm við að salta götumar en á meðan veðrið breytist ekki verður þetta erfitt,“ sagði Guðmundur og bendir fólki á upplýsingar um hreinsun gatna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is. Leyfi fyrir einni brennu en fjör í flugeldum Aðeins hefur verið sótt um leyfi fyrir eina áramótabrennu í ár. ÍBV- íþróttafélag verður með sína árlegu áramótabrennu og í kjölfarið mun Björgunarfélag Vestmannaeyja halda flugeldasýningu. Ragnar Baldvinsson, slökkviliðs- stjóri sagði í samtali við Fréttir að annað hvort verði aðeins ein brenna, eða menn séu að flaska á því að sækja um leyfi. „Þetta er óskaplega dapurt miðað við hvemig þetta var áður fyrr. Ég vil ítreka að það þarf að sækja um leyfi fyrir allar áramótabrennur, stórar og smáar,“ sagði Ragnar. Hann vildi jafnframt benda fólki á að fara varlega með flugelda, vera með vettlinga og öryggisgleraugu. „Börn eiga ekki að meðhöndla flugelda. Skiparakettur geta verið stórhættulegar og hafa valdið bmna.“ Sala flugelda hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja hófst í gær, mið- vikudag en Adolf Þórsson, for- maður félagsins sagði miklar breytingar á flugeldunum miili ára. „Það er mikið af breyttum skot- kökum, sérstaklega í millistærð sem em vinsælustu kökumar. Fjöl- skyldupakkamir verða auðvitað á sínum stað,“ sagði Adolf en opið verður til klukkan 16.00 á Gamlársdag í flugeldasölunni í Skátaheimilinu. Aðspurður sagði hann verð á flugeldum í Eyjum vera það sama og annarsstaðar, jafnvel lægra. Lúðrasveit Vestmanna- eyja þakkar fyrir sig: Tónleikar í minningu Oddgeirs Kristjáns. í dag, fimmtudaginn, 29. desem- ber, kl. 18.00 mrn Lúðrasveit Vestmannaeyja bjóða bæjarbúum og gestum á stutta tónleika í Akogeshúsinu við Hilmisgötu. Tónleikamir em helgaðir minn- ingu Oddgeirs Kristjánssonar, en í ár em eins og flestum er orðið kunnugt 100 ár frá fæðingu hans. Okkur í Lúðrasveit Vestmanna- eyja finnst vel við hæfi að enda þetta ár með tónleikum helguðum honum. Staðsetning tónleikanna er engin tilviljun. Oddgeir var félagi í Akoges um árabil ásamt því sem Lúðrasveitin okkar, sem hann ásamt nokkmm félögum sínum stofnaði, var stofnuð í húsi Akoges félagsins árið 1939. Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur starfað óslitið frá stofnun eða í 72 ár. Það var okkur í sveitinni mikið ánægjuefni að hlotnast sá heiður á 100 ára afmælisári Oddgeirs að vera útnefnd og valin Bæjarlista- maður Vestmannaeyja. Auk þess höfum við í Lúðarsveitinni ávallt fundið fyrir mikilli velvild bæjar- búa í okkar garð í gegnum tíðina, sem birtist í góðri aðsókn að tón- leikum okkar, fjölda styrktar- félaga og örlæti fyrirtækja sem styrkja okkur á margan hátt. Með þetta í huga, viljum við bjóða öllum sem vilja, að hlýða á tón- list Oddgeirs flutta af Lúðrasveit Oddgeirs í uppmnalegu umhverfi sínu. Tónleikamir verða með léttu heimilislegu sniði og er fólki óhætt að mæta bæði of seint og snemma sem og að yfirgefa tónleikana á meðan þeim stendur allt eftir því sem hentar hverjum og einum. Aðgangur er ókeypis og kaffi verður i boði gestgjaf- anna. Með bestu kveðju. Lúðrasveit Vestmannaeyja. SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ^ ÞJÓNUSTUAÐILI lOVOI'A í EYJUM VELA- OG BILAVERKSTÆÐI FLATIR 21 S.481-1216 GSM. 864-4616 VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... ...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI Eeimskip ÆtfSnuíIl VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.