Fréttablaðið - 08.02.2014, Blaðsíða 80
8. febrúar 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 48TÍMAMÓT
Davíð
útfararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
útfararþjónusta
Óli Pétur
útfarars jt óri 551 3485 • udo.is
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, bróður,
frænda, tengdasonar og mágs,
EIRÍKS ÓMARS SVEINSSONAR
framkvæmdastjóra Keflavíkurflugvallar.
Við viljum þakka starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans
fyrir góða umönnun.
Ingibjörg Sandholt
Sveinn Rafn Melkorka Ragnhildardóttir
Egill Orri
Þóra Kristín
Hafdís og Sigrún (Lóa) Sveinsdætur
Sigrún Björg Ingvadóttir Ásgeir Stefánsson
Þóra Sandholt
Bergur Sandholt Stella Hafsteinsdóttir
Kristín Sandholt Ingvar Vilhelmsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÚNAR ARNÓRSDÓTTUR
kennara,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Landspítalans
í Fossvogi, Landakotsspítala og Sólvangs
fyrir góða umönnun í veikindum hennar.
Höskuldur Björnsson Auður Þóra Árnadóttir
Arnór Björnsson Bára Jóhannsdóttir
Baldvin Björnsson Helga Rúna Þorleifsdóttir
Þórdís Ragnhildur Björnsdóttir Michael Teichmann
og barnabörn.
Við þökkum öllum sem sýndu okkur
stuðning, samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGURLÍNU VILHJÁLMSDÓTTUR
(LÍNU)
Kambaseli 30, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi, deildum 11B og A4 á Landspítala og Karitas
heimahlynningu fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Sveinn Árnason
Sigrún Alda Sveinsdóttir Róbert Petersen
Sigurður Bjarni Sveinsson Valgerður Ósk Sigurjónsdóttir
Rebekka Rut Petersen, Aron Freyr Petersen, Sveinn Sölvi
Petersen, Íris Elva Sigurðardóttir og Rakel María Sigurðardóttir
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför elskulegrar
mágkonu, föðursystur og frænku,
RAGNEYJAR EGGERTSDÓTTUR
Eyju í Dal, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar
fyrir hlýja og góða umönnun.
Sólveig Árnadóttir
Eggert M. Þórðarson Júlíana Júlíusdóttir
Theodór Kr. Þórðarson María Erla Geirsdóttir
Guðrún Þórðardóttir Gylfi Björnsson
frændfólk, ættingjar og vinir.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT PÁLSDÓTTIR
frá Þingholti,
Hátúni 10, Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
miðvikudaginn 5. febrúar. Útför hennar fer
fram frá Landakirkju laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00.
Óli Sveinn Bernharðsson
Hrafnhildur Hlöðversdóttir Brynjólfur Sigurðsson
Bernharð Ólason Soffía Eiríksdóttir
Hafþór Ólason Bryndís Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA S. GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Njarðvíkurbraut 24, Reykjanesbæ,
andaðist á Sjúkrahúsinu í Keflavík
miðvikudaginn 5. febrúar. Sérstakar þakkir
sendum við til starfsfólksins á Sjúkrahúsinu
í Keflavík.
Sigríður Sigurðardóttir
Guðjón L. Sigurðsson Louisa Aradóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir Eggert Ólafsson
Kolbrún A. Sigurðardóttir
Gunnar Sigurðsson Halldóra M. Svavarsdóttir
Kristín S. Sigurðardóttir
barnabörn og langömmubörn.
MERKISATBURÐIR
1924 Nevada verður fyrsta ríki Bandaríkjanna til að taka mann
af lífi með gasi.
1925 Halaveðrið. Tveir togarar farast á Halamiðum, Leifur
heppni og Robertson. Með þeim farast 68 menn. Einnig ferst
vélbátur með sex mönnum. Fimm manns verða úti.
1971 NASDAQ-hlutabréfamarkaðurinn hhefur starfsemi.
1980 Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen tekur við völdum og situr
í þrjú ár. Að stjórninni stóðu Alþýðubandalag, Framsóknarflokk-
ur og hluti Sjálfstæðisflokks.
Þennan dag árið 1998 lést hinn ástsæli rithöfundur, skáld og Nóbelsverðlaunahafi Halldór
Kiljan Laxness. Halldór fæddist 23. apríl árið 1902 og er talinn einn helsti íslenski rit-
höfundur tuttugustu aldar. Hann var sonur Sigríðar Halldórsdóttur (f. 1872) og Guðjóns
Helgasonar (f. 1870). Fyrstu æviárin bjó hann í Reykjavík en flutti að Laxnesi í Mosfells-
sveit árið 1905.
Aðeins 14 ára gamall fékk hann sína fyrstu grein birta í Morgunblaðinu undir nafninu
H.G. Á ferli sínum skrifaði Halldór yfir fimmtíu bækur, blaðagreinar, samdi ljóð, leikrit og
fleira. Hann hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1955. Frá árinu 1945 átti Halldór
fast heimili á Gljúfrasteini í Mosfellssveit og haustið 2004 keypti ríkissjóður Gljúfrastein
af Auði Laxness, ekkju Halldórs, og opnaði þar safn til minningar um skáldið. Auður gaf
safninu innbú þeirra hjóna. Halldór Laxness var tvíkvæntur og eignaðist fjögur börn.
ÞETTA GERÐIST 8. FEBRÚAR 1998
Halldór Laxness deyr
Í kvöld verður opnuð sýning sviss-
nesku myndlistarkonunnar Sabine
Schlatter en sýningin mun standa til
22. febrúar. Schlatter fæddist árið
1977 í Sviss og býr og starfar þar.
Hún útskrifaðist úr Listaháskólanum
í Zürich árið 2008 og hefur haldið fjöl-
margar sýningar í heimalandi sínu.
Innsetning Sabine Schlatter, Island of
Anxiety, er fyrsta sýningin hennar á
erlendri grundu og samanstendur af
sjálfstæðum verkum sem vinna saman
að myndun formgerðs landslags.
„Ég hef búið í Sviss lengi og hef verið
að kynna erlenda listamenn á Íslandi.
Mig langaði að bjóða Sabine Schlatt er
að sýna hér því mér finnst verkin
hennar mjög falleg,“ segir Claudia
Hausfeld sem setur upp sýninguna sem
hefst í kvöld kl. 20 í Kunstschlager á
Rauðarárstíg 1.
Orkusvið Island of Anxiety
„Eins og margar teikningar lista-
mannsins, sýna hinar tvær stóru litblý-
antsteikningar að því er virðist lífræn-
an stíl einkenndan af óhlutbundinni
fagurfræði. Hlutirnir sem raðað er
saman í rýminu voru þróaðir af Schlatt-
er og byggðir á teikningum hennar
– til dæmis stór „prik“ úr viði, jútu,
reipi, þræði og latexi,“ segir Claudia
og heldur áfram: „Þessir þrívíðu hlutir
endurspegla stílrænt tungumál teikn-
inga hennar sem skapa sefandi blöndu
af lifandi og dauðum efniviði. Undir
áhrifum persónulegra goðsagna lista-
mannsins, kallar innsetning hennar
fram einhvers konar lokaðan heim með
skírskotunum í náttúruna, óræktargarð
eða afskekktan helli.“ Hún segir jafn-
framt að Schlatter kanni kröftug öfl
í listsköpun sinni sem skapi ákveðna
tilfinningalosun í kjölfarið þar sem
verkin láta óttann leika hlutverk upp-
byggjandi og auðgandi afls. Nánar um
verkin hennar á sabineschlatter.com
marinmanda@frettabladid.is
Uppbyggjandi og auðg-
andi afl í sýningunni
Svissneska Listakonan Sabine Schlatter er með sýninguna Island of Anxiety í Kunstschlager.
SABINE SCHLATTER OG CLAUDIA HAUSFELD FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM