Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.05.2014, Blaðsíða 10
13. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SAMFÉLAG Nýja íslenska fyrirkomu- lagið á ættleiðingum, sem komst á laggirnar með þjónustusamningi innanríkisráðuneytisins og Íslenskr- ar ættleiðingar í lok síðasta árs, vekur mikla athygli úti í heimi. Í kjölfar kynningar á fyrirkomu- laginu á ráðstefnu evrópskra sam- taka ættleiðingar- félaga, Euradopt, á dögunum hafa ekki bara borist fyrirspurnir frá erlendum ætt- leiðingarfélög- um, heldur einnig upprunalöndun- um, það er að segja löndum sem börn eru ættleidd frá. Þetta segir Krist- inn Ingvarsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar. Kristinn segir öll ættleiðingar- félög rekin á gjöldum sem fara eftir fjölda umsækjenda og ættleiðinga. „Tekjurnar minnka um leið og ætt- leiðingum fækkar eins og hefur verið að gerast og ekki síst þess vegna vekur íslenska fyrirkomulag- ið athygli,“ segir hann. Íslensk ættleiðing fór fyrst á fjár- lög við undirritun Haag-samningsins um velferð barna og ættleiðingar árið 2001 og fékk þá sex milljónir króna. Grunnfjárveitingin á fjárlögum 2012 var 9,2 milljónir. Ekki var hægt að halda námskeið sem eru grundvöllur þess að fólk geti ættleitt barn fyrr en aukafjárveiting fékkst. Með þjónustusamningnum við innanríkisráðuneytið, sem undirrit- aður var í nóvember síðastliðnum, var tryggð 34 milljóna króna grunn- fjárveiting í fyrra og á þessu ári. Þar með var hægt að hrinda í fram- kvæmd fjölmörgum verkefnum sem þurft hafði að láta sitja á hakanum. „Þetta markaði tímamót í sögu ættleiðinga. Með þessu bætta fyrir- komulagi er fjármögnun ekki leng- ur háð fjölda ættleiðinga. Við getum tryggt faglega þjónustu fyrir hvert barn og hverja fjölskyldu sem sam- einast með milligöngu félagsins,“ tekur Kristinn fram. Umsóknum um ættleiðingar fækk- aði þegar óvissa var um rekstur félagsins, að sögn Kristins. „Þegar ljóst var að við gætum tryggt rekst- urinn fóru umsækjendur að koma inn aftur. Árið 2005 voru ættleiðing- arnar 35, 17 árið 2012 en átta í fyrra. Á þessu ári eru nú þegar komin þrjú börn til Íslands. Ein fjölskylda er erlendis að sækja barn og verið er að vinna með nokkur mál sem við vitum að rætist úr. Inn- anríkisráðuneytið á sannarlega skilið klapp á bakið. Nýja fyrirkomulagið vekur vonir um áhuga fleiri uppruna- landa á okkur.“ ibs@frettabladid.is Form ættleiðinga hér á landi vekur áhuga Íslensk ættleiðing fær fyrirspurnir frá erlendum ættleiðingarfélögum og löndum sem börn eru ættleidd frá um þjónustusamninginn við íslenska ríkið. Samningur- inn tryggði rekstur félagsins og umsóknum hefur fjölgað á ný. KÍNVERSKT BARN Á undanförnum árum hafa tugir barna verið ættleiddir frá Kína til Íslands. NORDICPHOTOS/AFP KRISTINN INGVARSSON AKUREYRI Skipulagsstjóri Akureyr- arbæjar, Pétur Bolli Jóhannesson, stöðvaði uppsetningu auglýsinga- skilta Bjartrar framtíðar í glugg- um við Glerárgötu á Akureyri í lok síðustu viku. Bar skipulagsstjóri fyrir sig skiltareglugerð og telur hann að uppsetning auglýsinganna brjóti í bága við þá reglugerð sem er í gildi í bænum. Preben Pétursson, einn af stofn- endum Bjartrar framtíðar á Akur- eyri, telur skrýtið að flokknum hafi verið gert skylt að stöðva upp- setningu merkinga einum flokka. „Okkur finnst við ekki hafa farið út fyrir þann ramma sem settur er. Ég held svo sem að skipulagsstjóri sé bara að vinna sína vinnu, hann óskar eftir því að fá að vita hvað við erum að fara að auglýsa.“ Önnur framboð í bænum eru fyrir margt löngu búin að setja upp merkingar í gluggum sinna kosn- ingaskrifstofa. Þau framboð voru ekki stöðvuð við uppsetningu og ekkert sett út á merkingar þeirra meðan á framkvæmdum stóð. Horft hefur verið fram hjá þess- ari reglugerð hin síðari ár þegar kosningabarátta er annars vegar samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. Vitað er að þetta er tíma- bundin aðgerð stjórnmálaflokka og -hreyfinga til að vekja athygli á sér í aðdraganda kosninga. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn og þurftu fram- boðin í lok síðustu viku að senda myndir af merkingum sínum og þar til bær gögn til skipulags- deildar til að fá samþykki fyrir merkingum sínum. Fundur verður haldinn í skipulagsdeild Akureyr- arbæjar þar sem farið verður yfir merkingar framboðanna. Þar munu pólitískir fulltrúar taka afstöðu um merkingar framboða í bænum. - sa Athugasemdir gerðar við auglýsingar á Akureyri: Stöðva auglýsingar Bjartrar framtíðar AUGLÝSINGAR Björt framtíð ætlar, eins og aðrir flokkar, að merkja kosningaskrif- stofu sína með áberandi hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN INDLAND, AP Þingkosningum á Ind- landi lauk í gær, en þær hafa stað- ið yfir síðustu sex vikurnar. Fjöldi kosningabærra manna er það mik- ill, eða 814 milljónir, að ekki þótti fært annað en að halda kosning- arnar í níu áföngum. Milljónir manna tóku þátt í síð- asta áfanganum í gær, en reiknað er með því að úrslit liggi fyrir á föstudaginn. Útgönguspár benda til þess að Narendra Modi, forsætisráðherra- efni stjórnarandstöðuflokksins Baharatiya Janata, verði næsti for- sætisráðherra landsins. Helsti mótherji hans er Rahul Gandhi, en hann er varaformaður Kongress-flokksins og sonur Soniu Gandhi, sem er formaður flokks- ins. Kongress-flokkurinn hefur verið við völd á Indlandi síðustu tvö kjörtímabil en Manmohan Singh forsætisráðherra gaf ekki kost á sér til framboðs að þessu sinni. Baharatiya Janata-flokkurinn þykir heldur hægrisinnaðri en Kongress-flokkurinn, en Modi hefur verið forsætisráðherra Guja- rat-ríkis á Indlandi. - gb Níundu umferð þingkosninga á Indlandi lokið: Stjórnarandstöðunni spáð góðum sigri BIÐRÖÐ Á KJÖRSTAÐ Kjósendur í borginni Varanasi biðu þess að komast í kjör- klefann. NORDICPHOTOS/AFP Frábærar McCain franskar á 5 mínútum Franskar kartöflur í sérflokki sem þú töfrar fram á augabragði. Einföld og fljótleg matreiðsla og algjör sæla fyrir bragðlaukana. Prófaðu núna!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.