Fréttablaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.09.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Þriðjudagur 14 F lestar konur þjást einhvern tíma á lífsleiðinni af sveppa-sýkingu í leggöngum eða þurrki í slímhúð. Sumar konur finna fyrir óþægindum sem tengj-ast sundlaugarferðum og veigra sér við því að fara í heita potta. Sýklalyfjameðferðir geta einnig haft áhrif á bakteríuflóruna og finna sumar konur fyrir óþægind-um í leggöngum í kjölfarið. EINFALT Í NOTKUNTopida Intimate Hygiene Sprey er einstaklega einfalt í notkun en aðeins þarf að spreyja á sýkta svæðið og endurtaka eftir þörf-um. Spreyið virkar vel á sveppa-sýkingu í leggöngum, kláða og þurrk í slímhúð. Það er kælandi, kláðastillandi og sveppadrepandi ásamt því að lina þrota og pirr-ing fljótt. Með viðvarandi notkun byggir líkaminn upp heilbrigða bakteríu flóru og jafnar PH-gildið, sem kemur í veg fyrir að svepp-urinn fjölgi sér á ný. NÁTTÚRULEGT EFNITopida inniheldur aðeins nátt-úruleg efni sem græða sýkta og auma slímhúð og viðhalda góðri heilsu. Virku innihaldsefnin eru: sea buckthorn-, tea tree-, man-uka-, kanil-, hvítlauks- timjfen l Topida inniheldur EKKI: stera, kortisón, hormón, paraben, sýklalyf, alkóhól, eða peroxíð. Nánari upplýsingar á heima-síðunni www.gengurvel.is SÖ LÍFSSTÍLL FRAMHALDSSKÓLANEMAMálþing um lífsstíl framhaldsskólanema verður haldið í Safnahúsinu við Hverfisgötu á föstudaginn. Nánar á www.landlaeknir.is. ALGENGT VANDAMÁL Flestar konur þjást einhvern tímann af sveppasýkingu í leg- göngum. Topida Intimate Hygiene Srey er einfalt í notkun. Það er kælandi, kláðastillandi og sveppadrepandi. SVEPPASÝKING Í LEGGÖNGUM?GENGUR VEL KYNNIR Topida Intimate Hygiene Sprey sem er sérlega áhrifa- ríkt við sveppasýkingu, kláða, særindum, þrusku og þurrki í slímhúð. Það inniheldur aðeins náttúruleg efni sem græða sýkta og auma húð. w w w .v ite x. is Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir apótek og heilsu búðir. Aptiless: Mest selda þyngdarstjórnunar efnið í Noregi og Svíþjóð. Thylakoids: Dregur úr hungri - Minnkar sykurlöngun Minnkar ummál - Fækk ar aukakílóum. Aukakílóin burtspínat extrakt með Thylakoids Kynningarblað MORGUNSTUND ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2014 GEFUR GULL Í MUND 2 SÉRBLÖÐ Morgunstund gefur gull í mund | Fólk Sími: 512 5000 23. september 2014 223. tölublað 14. árgangur SPORT Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu þegar Stjarnan tryggði sér sigur í Pepsi-deild kvenna. 24 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka D-vítamín G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i THE MORE YOU USE IT THE BETTER IT LOOKS LÍFIÐ Vera Sölvadóttir kynnir myndir sínar á hátíðum um allan heim með tveggja mánaða dóttur með í för. 30 KVIKMYNDIR Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hefur hlotið ein- róma lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína í stórmyndinni A Walk Among the Tombstones þar sem hann leikur á móti Liam Neeson. „Ólafur Darri Ólafsson er ein- faldlega heillandi í mikilvægu aukahlutverki,“ skrifar Mark McCarver hjá Los Angeles Post-Examiner. Ólafur leikur James Loog- an, umsjónar- mann kirkju- garðs, og segir Linda Cook hjá Quad-City Times að hann sé sem skapaður fyrir hlutverkið. Hann er nú við tökur á The Last Witch Hunter í Bandaríkjunum en kemur aftur til Íslands þegar tökum lýkur. Þá tekur við leikur í sjónvarpsseríunni Ófærð. - lkg / sjá síðu 30 Ólafur Darri heillar heiminn: Senuþjófur í Hollywood ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON SKOÐUN Pétur Gunnarsson rithöf- undur skrifar um bókaskattinn og hlálega sögu honum tengda. 14 Bolungarvík 8° V 6 Akureyri 9° V 4 Egilsstaðir 11° V 3 Kirkjubæjarkl. 11° V 4 Reykjavík 10° V 6 SKÚRIR Í dag verða vestan víðast 3-8 m/s og skúrir en úrkomulítið A-lands. Léttir til SA-til síðdegis. Hiti 7-14 stig. 4 VIÐSKIPTI „Pabbi borgaði sjö millj- ónir fyrir búseturétt í sinni íbúð. Þann pening átti hann að fá aftur ef hann flytti út úr íbúðinni eða þá að peningurinn átti að greið- ast til erfingja ef hann félli frá,“ segir Halldóra Hafsteinsdóttir. Húsnæðis samvinnufélagið Elliði hefur enn ekki greitt hlut föður Halldóru þótt tvö ár séu liðin frá andláti hans. Elliði, sem á 24 íbúðir fyrir sex- tíu ára og eldri í Þorlákshöfn, glím- ir við mikla fjárhagserfiðleika. Halldóra segir fregnir af rekstr- arerfiðleikum félagsins hafa komið þeim í opna skjöldu. „Við fengum bara þau svör hjá félaginu að þau mættu ekkert gera og mættu ekki borga neitt út,“ segir Hallóra ósátt. „Við hefðum ekki skilað af okkur íbúðinni hefðum við vitað þetta. Félagið leigir íbúðina núna út og því má segja að félagið hafi hagnast áfram á okkur.“ Að sögn Vals Rafns Halldórsson- ar í verkefnastjórn Elliða er unnið að lausn mála í samvinnu við sveit- arfélagið Ölfus. - hó / sjá síðu 12 Húsnæðissamvinnufélag eldri borgara í Þorlákshöfn í fjárhagskröggum: Föðurarfur fastur í búsetufélagi Við hefðum ekki skilað af okkur íbúðinni hefðum við vitað þetta. Halldóra Hafsteinsdóttir. HEILBRIGÐISMÁL Geir Gunnars- son landlæknir segir áhyggjuefni að íbúum á hvern starfandi lækni skuli vera að fjölga á Íslandi. Nú eru 295 íbúar á hvern starfandi lækni en stefnir í að þeir verði 390 eftir áratug. „Þetta er misslæmt eftir læknahópum, það vantar til dæmis fleiri heimilislækna, krabbameins- lækna og rönt- genlækna,“ segir Geir Gunnars- son sem telur að bæta þurfi starfsumhverfi lækna. „Það eru breytt viðhorf og ef við ætlum að fá lækna til starfa hér á landi þarf að bæta starfsum- hverfi þeirra,“ segir landlæknir. - jme / sjá síðu 4 Íslenskir læknar leita annað: Fleiri sjúklingar á hvern lækni GEIR GUNNARSSON FARIÐ YFIR TEIKNINGAR Framkvæmdir á Broadway eru í fullum gangi þessa dagana en þar mun Heilsumiðstöðin opna heilsuvakt, skurðstofur og endurhæfingarmiðstöð næsta vor. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÖGREGLUMÁL Lögmannafélag Íslands hefur frá því í apríl óskað eftir fundi með ríkissaksóknara til þess að ræða framkvæmd síma- hlustunar og hvernig farið er með upplýsingar sem úr henni fást. Þetta segir Jónas Þór Guðmunds- son, formaður Lögmannafélagsins. Jónas Þór fagnar því að Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- sætis- og dómsmálaráðherra, ætli að láta skoða hvort rétt sé staðið að símhlerunum. Ráðherra sagði í samtali við Stöð 2 á sunnudag að hann hygðist óska þess að réttarfarsnefnd fari yfir hvort sérstakur saksóknari hafi farið að reglum varðandi símhler- anir. Hann útilokaði heldur ekki að sérstök rannsóknarnefnd yrði sett á laggirnar til að komast að hinu sanna. Þá mun allsherjar- og mennta- málanefnd funda um símhleranir klukkan níu í dag og mun Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari mæta á þann fund. Jónas Þór fagn- ar því jafnframt að boðað hafi verið til þess fundar. „Við höfum litið svo á að regluverk- ið eins og það er sé nægilega traust. Og þess vegna hefur okkur komið á óvart að það séu einhverjar efasemd- ir um það hvað megi gera í þessu, hvað sé heimilt að gera í þessum efnum og svo það að framkvæmdin virðist vera ótraust.“ - fbj, jhh / sjá síðu 6 Hunsaði beiðnir um fundi vegna hlerana Frá því í apríl hefur Lögmannafélag Íslands óskað eftir fundi með ríkissaksóknara um framkvæmd símhlerana lögreglu. Enn hefur ekkert orðið af slíkum fundi. Við höfum litið svo á að regluverkið eins og það er sé nægilega traust. Jónas Þór Guðmundsson, formaður Lögmannafélagsins. Maven á Mars Vísindamenn vonast til að loft- hjúpurinn á Mars gefi geimfarinu Maven vísbendingar um það hvernig plánetan fór úr því að vera hlý og blaut í það að vera köld og þurr. 10 Stórfellt mjólkursvindl Sam- keppniseftirlitið segir Mjólkursam- söluna hafa árum saman brotið lög með því að selja keppinautum sínum hrámjólk á 17 prósent hærra verði en fyrirtæki tengd MS greiddu. 4 Björgun verður að fara Stjórn Faxaflóahafna gafst upp í gær eftir tíu ára viðræður við Björgun ehf. og segir upp lóðarleigu Björgunar við Sævarhöfða í Reykjavík. 6

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.