12 FRJÁLS VERSLUN 5. TBL. 2012 Jómfrúin | lækjargata 4 | 101 reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is Í stuttu máli ráðlagður skammtur; 10 mÍnútur á dag AÐ NÁ BETRI YFIRSÝN í VINNUNNI OG þEIRRI TILFINNINGU AÐ þÚ SéRT MEÐ ALLT Á hREINU: Hvernig geturðu breytt þessu? Auðvitað er ekkert eitt rétt svar en hér kemur tillaga frá mér sem ég skora á þig að prófa. ? taktu 10 mínútur í upphafi hvers dags til að: ? Hugleiða og fá skýra sýn á hvernig þú vilt að dagurinn verði og hverju þú ætlar að áorka áður en hann er að kvöldi kominn. ? skoðaðu daginn í samhengi við áætl- un sem þú kannt að hafa fyrir vikuna eða mán uðinn og settu þér dagsáæt- lun í samhengi við það. ? skoðaðu dagbókina þína, gerðu ráð- stafanir til þess að þú hafir nægan tíma til að undir búa þig fyrir hvern fund, símtal eða annað sem þú þarft að gera. ? ef þú ert með verkefni sem tekur 30 mín útur eða meira að gera og þú þarft að klára á ákveðnum degi eða fyrir ákveðinn dag, taktu þá frá tíma í dagbókinni til að sinna þessu verkefni. ? Farðu yfir verkefnalistann þinn (task -list ann, sem þú vonandi heldur vel utan um í outlook, toodleDo.com eða öðru sam bærilegu kerfi) og forgangs- raðaðu út frá mikilvægi og hversu mikið virði verkefnin skapa. ? skoðaðu hvort þú sért með verkefni á verk efnalistanum þínum sem þú ættir ekki að vinna eða betra væri að aðrir ynnu. ? Passaðu að þú bókir þig ekki svo þétt á fundi eða í verkefni að þú hafir ekki laus ar stundir til að vinna í mikilvægustu verk efnunum á ver k- efnalistanum. ? Passaðu að þú hafir tíma til að sinna líkams rækt af einhverju tagi, fara út að ganga eða hjóla eða mæta í rækt- ina til að brenna eða gera styrktar- æfingar eftir því sem þér hent ar hverju sinni. ? Passaðu að þú hafir tíma til að staldra við, draga djúpt andann og hugleiða hvort þú sért að vinna stefnumiðað og út frá þeirri sýn sem þú hefur fyrir daginn eða hvort þú sért farinn að hlaupa um eins og hamstur í hjóli. ? renndu yfir innkominn tölvupóst og full vissaðu þig um að þótt þú sért ekki búinn að svara eða bregðast við þeim öllum sértu að minnsta kosti kominn með yfirsýn yfir þann mikilvægasta og þann sem þú þarft að bregðast við innan dagsins. Í lok þessara 10 mínútna, í upphafi dags, áttu að vera vel undirbúinn fyrir ár ang urs ríkan dag þar sem þú upplifir að þú sért með allt á hreinu! Kannski eru þetta ekki réttu atriðin fyr ir þig og þú gerir þér annars konar lista en taktu samt alltaf 10 mínútur í upphafi dags til að fara yfir daginn sem framundan er og gerðu allt sem þú getur til að tryggja að hann verði góður og ár angursríkur. Kannast þú við að æða áfram dag hvern, eltast við og bregð ast við endalausu alls kyns áreiti umhugsunarlaust og skilja svo ekkert í því að áður en þú veist af er hver vikan og mán uð urinn liðinn, jafn vel árið, án þess að þú hafir gert það sem þú ætlaðir þér eða náð þeim árangri sem þú hafðir ætlað þér eða taldir að þú hefðir sett þér markmið um? Herdís Pála Pálsdóttir. Ekki missa af mikilvægu símtali Skiptiborðaþjónusta Já svarar símanum fyrir þitt fyrirtæki. Traust, örugg og fagleg svörun. 118 Gulu síðurnar Já.is Stjörnur.is Símaskrá Já í símann i.ja.is Hafðu samband í síma 522 3200 eða skiptibord@ja.is. TexT: Herdís Pála PálsdóTTir