Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 36
L inda tekur á móti mér á heimili sínu á rigningar- eftirmiðdegi og býður mér kaffi við eldhús- borðið. Við byrjum á því að skoða bókina sem nýkomin er úr prentun og hún segist hafa þá tilfinningu þegar hún handleikur hana að þetta sé mjög gömul bók, hún hafi lifað með henni svo lengi. En hvað olli því að bókin var heil sjö ár í smíðum? „Þetta hafa verið erfiðir tímar. Ég lenti í miklu þunglyndi og var lengi að takast á við það að ég væri þunglynd. Ég fór til sálfræðings vegna ritteppu, mér fannst mér ganga svo illa að skrifa og ætlaði bara að fá hjálp með það. Hún fór að benda mér á að ég væri nú voðalega döpur og sorgmædd en mér fannst það bara alveg eðlilegt. Þegar hún var búin að benda mér á þetta nokkrum sinnum rann það loksins upp fyrir mér að ég þyrfti sennilega að gera eitthvað í því. Ég hafði hætt að reykja ári áður og var á lyfinu Champex dálítið lengur en ráðlagt er og hrapaði alveg niður þegar ég hætti á því. Ég var búin að reykja síðan ég var þrettán ára og fannst það vera eitthvað sem ég nauðsyn- lega þyrfti til að funkera og fannst alveg eðlilegt að ég væri döpur að vera hætt því. Mig fór fyrst að gruna að eitthvað væri að þegar ég náði engu sambandi við bókina sem ég var að lesa, en hugsaði með mér að þetta hlyti bara að vera svona leiðinleg bók og lagði hana á hill- una. En bækurnar héldu áfram að hlaðast upp á náttborðinu hálflesn- ar, mér fannst þær allar jafn leiðin- legar. Þegar ég var hætt að komast í gegnum Fréttablaðið á morgnana sá ég að þetta væri nú sennilega ekki alveg eðlilegt. Öll einbeiting og fókus hvarf og ég var alveg úti á þekju. Það tók langan tíma að ná sér upp aftur. Á þessum tíma var ég að vinna í fyrsta kaflanum í bókinni, og komin dálítið vel inn í hann, en mér gekk alveg rosalega illa. Þegar ég fór að skoða þessi ljóð eftir að ég fór að lagast þurfti ég að taka þau öll upp aftur. Það var allt í þeim sem átti að vera þar en þetta var eins og púsluspil sem er vitlaust raðað saman og það var mikil vinna að raða púslunum rétt. Það hefði verið miklu auðveldara fyrir mig að henda þessu bara en það var þarna allt sem ég vildi segja og ég var ekki tilbúin til þess.“ Palestína og Ísland Frelsi skiptist í þrjá kafla auk inn- gangs og Linda segir elsta hlutann, innganginn, vera frá árinu 2008 en nýjustu ljóðin í síðasta kafl- anum frá þessu ári. Miðkaflinn fjallar um ferð til Palestínu sem Linda fór árið 2010, rétt áður en þunglyndið skall á. Hún segist þó ekki hafa byrjað að skrifa þau ljóð fyrr en tveimur árum síðar. „Það stóð aldrei sérstaklega til að skrifa ljóðabálk um þessa ferð en svo fór þessi reynsla að leita á mig og þegar ég var búin með ljóðin fannst mér að þau ættu ofsalega vel heima þarna á milli hinna kaflanna sem fjalla um ástandið á Íslandi. Ég er mjög ánægð með það hvað þessi langi vinnslutími hefur unnið með handritinu og það hefur breyst af- skaplega mikið á þessum tíma. Ég hafði auðvitað einhverja hugmynd til að byrja með og sá strax 2008 að ég var með efni í höndunum sem mig langaði virkilega til að vinna með. Eins og alltaf þá þróaðist hugmyndin á vinnslutímanum en grunnhugmyndin og þemað eru þarna ennþá.“ Linda segist ekki hafa komist almennilega í gang með skrifin fyrr en hún fór frá Íslandi í nokkra mánuði til að vinna. „Þrjú síðustu ár hef ég farið til útlanda í nokkrar vikur á ári til að vinna og það hefur reynst mér rosalega vel. Ég hrökk í gang og náði að binda þessa þrjá kafla saman eins og þurfti að gera. Mér fannst þetta ferli reyndar orðið svo langdregið og leiðinlegt að ég vildi helst bara að þetta væri búið, en sem betur fer lét ég það ekki eftir mér að segja þetta klárað fyrr en ég var orðin fullkomlega ánægð með það.“ Sama ferli í drykkjuskap og stóriðju Þetta er mjög pólitísk bók, ertu orðin herskárri með aldrinum? „Já, hún er það, en það er ekkert nýtt hjá mér. Ljóðabækurnar mínar eru kannski ekkert sérstaklega pólitískar en skáldævisaga mín, Lygasaga, er mjög pólitísk. Ekki bara áfengispólitísk, eins og margir halda, heldur þjóðfélagspólitísk. Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K , S Í M I 5 1 2 8 1 8 1 VERIÐ VELKOMIN Á NÝJAN VEITINGASTAÐ Í RAUÐA HÚSINU VIÐ GÖMLU HÖFNINA Í REYKJAVÍK Gekk til sálfræðings vegna ritteppu Ljóðabókin Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur hefur verið lengi í smíðum, elstu ljóðin eru frá 2008 og þau nýjustu frá þessu ári. Ástæður þessa langa meðgöngutíma eru ýmsar; hrun, þunglyndi, barátta við predikunartóninn, svo nokkrar séu nefndar, en árangurinn er biðarinnar virði. „Ég held maður hafi áhrif með öllu sem maður gerir,” segir Linda Vilhjálmsdóttir. Ljóðabók hennar, Frelsi, var að koma út. Ljósmynd/Hari 36 viðtal Helgin 25.-27. september 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.