Fréttablaðið - 12.05.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.05.2015, Blaðsíða 10
12. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 UMHVERFISMÁL Um of er einblínt á tækifærin sem gætu legið í fram- kvæmdum á norðurslóðum, en þeirri áhættu sem þeim fylgir er allt of lítill gaumur gefinn. Þetta segir Lára Jóhannsdóttir, lekt- or í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Hún segir að jafnvægi skorti í umræðuna um norður slóðir. Bráðnun íss og fleiri umhverfis- breytingar hafa beint sjónum manna að norðurslóðum og þeim efnahagslega ávinningi sem nýting þeirra gæti haft í för með sér. Um þær verður fjallað á málþinginu Olíuríkið Ísland, sem verður hald- ið í Háskóla Íslands í dag. Þar verð- ur spurningunni um hvort framtíð Íslands liggi í olíuvinnslu á norður- slóðum velt upp. Lára mun skoða málið út frá sjónarhóli vátryggj- enda. „Það er annað sjónarhorn en hjá fjárfestum. Ekki er bara horft á málið út frá tækifærum, heldur áhættuþættirnir teknir með inn í. Það vantar balans í umræðuna.“ Lára segir þá áhættuþætti af ýmsum toga. „Þetta er landfræði- lega afskekkt svæði og einangr- að, það er skortur á innviðum og ýmis vandamál sem gætu komið upp varðandi leit og björgun. Þá eru tæknimálin spurningarmerki og svo kemur að þessu með trygg- ingarnar, hvort þær fást á þessu svæði.“ Lára segir að fyrirtæki sem hyggi á starfsemi á norðurslóð- um verði að huga sérstaklega vel að umhverfinu, náttúru og veður- fari. Þá komi orðsporsáhætta inn í, eins og sannaðist á olíuslysi BP í Mexíkóflóa árið 2010. „Þau þurfa að huga að því ef eitthvað kemur upp á, því mengunarslys getur skaðað ímynd. Því fylgir þessu áhætta um lögsóknir og skaðabóta- ábyrgð,“ segir Lára. Það geti leitt til þess að tryggingar á svæðinu verði mjög háar og jafnvel aðeins á færi stórfyrirtækja vegna kostn- aðar. Þá skorti rannsóknir á svæðinu, bæði grunnrannsóknir, en líka stöðugar rannsóknir eftir að starf- semi er farin í gang. Það þurfi að vakta svæðið vel. Á meðal þess sem komið verður inn á á málþinginu eru einmitt sið- rænu sjónarmiðin er lúta að lofts- lagsbreytingum og alþjóðlegum skuldbindingum. Lára segir mikil- vægt að gleyma sér ekki í mögu- leikunum. „Þegar menn ætla að ræða tækifærin þarf líka að taka áhættuna inn í reikninginn.“ Rannsóknarsetur um norður- slóðir og NEXUS, rannsóknarvett- vangur um öryggis- og varnarmál, standa fyrir málþinginu sem hefst klukkan 14 í dag. kolbeinn@frettabladid.is Áhætta í umsvifum á norðurslóðum Rannsóknir skortir á norðurslóðum áður en farið verður í umsvifamiklar fram- kvæmdir þar. Um of er einblínt á tækifærin sem þar liggja en minna horft á áhættu. Málþing um hvort Ísland geti orðið olíuríki verður haldið í dag. NORÐURSLÓÐIR Rannsóknir skortir á norðurslóðum svo hægt sé að taka ákvarðanir um hvort og þá hvernig verði farið í fram- kvæmdir þar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þau þurfa að huga að því ef eitthvað kemur upp á, því mengunar- slys getur skaðað ímynd. Því fylgir þessu áhætta um lögsóknir og skaðabótaábyrgð. Lára Jóhannsdóttir, lektor í umhverfis- og auðlindafræði. EINSTÖK TILBOÐ! Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ GERÐU FRÁBÆR KAUP CHEVROLET CAPTIVA METAN Nýskr. 09/11, ekinn 67 þús. km. bensín,metan, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.780.000 TILBOÐSVERÐ! 3.280 þús. VW PASSAT ALLTRACK Nýskr. 12/12, ekinn 139 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.480.000 TILBOÐ kr. 3.790 þús. SUBARU LEGACY SPORT WAG Nýskr. 05/07, ekinn 159 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 1.690.000 TILBOÐ kr. 1.350 þús. BMW 320i Nýskr. 02/10, ekinn 63 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.990.000 TILBOÐ kr. 3.490 þús. SUZUKI GRAND VITARA Nýskr. 06/10, ekinn 111 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.190.000 TILBOÐ kr. 2.490 þús. RENAULT MEGANE SP TOURER Nýskr. 08/12, ekinn 60 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.990.000 TILBOÐ kr. 2.590 þús. HYUNDAI i40 WAGON COMFORT Nýskr. 09/10, ekinn 133 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.990.000 TILBOÐ kr. 3.490 þús. Rnr. 282034 Rnr. 102636 Rnr. 120534 Rnr. 142267 Rnr. 120556 Rnr. 142478 Rnr. 120462 GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM WWW.BÍLALAND.IS EVRÓPUSAMBANDIÐ Federica Mogh erini, utanríkis- og öryggis- málastjóri ESB, hefur beðið Sam- einuðu þjóðirnar um aðstoð við að leysa upp þau glæpasamtök sem skipuleggja smygl á fólki til Evr- ópu. „Við þurfum að treysta á ykkar aðstoð til að bjarga mannslífum,“ sagði Mogherini á fundi sínum með fulltrúum öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna, þar sem hún ræddi fyrirhugaðar aðgerðir sam- bandsins til að takast á við flótta- mannavandann í Miðjarðarhafi. Líbísk stjórnvöld hafa mótmælt aðgerðaáætlun Evrópusambands- ins og segja áætlanir ESB vera óljósar og þær valdi stjórnvöldum áhyggjum. ESB leitar nú leyfis SÞ um að stöðva eða eyðileggja skip smyglara innan landhelgi Líbíu. Rúmlega 60 þúsund manns hafa reynt að flýja yfir Miðjarðarhaf á þessu ári og talið er að um 1.800 hafi drukknað. Flestir flóttamannanna eru að flýja undan stríði og fátækt og koma margir frá Sýrlandi, Erítreu, Nígeríu og Sómalíu. - aí, vh Evrópusambandið biðlar til Sameinu þjóðanna um aðstoð vegna flóttafólks: Biður um aðstoð vegna smyglara MIKILL FJÖLDI Talið er að um 60 þúsund manns hafi reynt að flýja yfir Miðjarðarhaf á þessu ári og að 1.800 hafi drukknað. Varðskipið Týr hefur verið við björgunarstörf í Miðjarðarhafi undanfarna mánuði. MYND/LANDHELGISGÆSLAN SAMFÉLAG Fólksflótti frá Íslandi er að aukast á ný. Þetta sýna tölur Hagstofunnar. Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun segir suma vera að flýja ástandið hér heima en uppbókað er í námskeið þar sem fólki er kennt að flytja til Norður- landa. Tæplega ellefu þúsund Íslend- ingar hafa flutt til útlanda frá aldamótum sé horft á fjölda brott- fluttra umfram aðflutta. Verulega dró úr landflótta á árinu 2013 en hann jókst ný í fyrra þegar 760 fleiri Íslendingar fluttu frá land- inu en til þess. Á fyrstu þrem- ur mánuðum þessa árs var talan komin upp í 370 samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í gær. Vinnumálastofnun aðstoðar fólk sem vill finna atvinnu í útlöndum en Þóra Ágústsdóttir, verkefna- stjóri hjá stofnuninni, segir að um sé að ræða fólk á öllum aldri. „Það var ofboðslega mikil aukn- ing fyrst eftir hrun 2009 og 2010. Svo hefur þetta minnkað en þetta er orðið nokkuð stöðugt núna og er búið að vera í nokkur ár,“ segir Þóra. Flestir eru að leita sér vinnu í Noregi en þar á eftir koma Dan- mörk og Svíþjóð. - hks Tæplega ellefu þúsund Íslendingar hafa flutt til útlanda frá aldamótum: Fólksflótti frá Íslandi eykst Í ATVINNULEIT Vinnumálastofnun aðstoðar fólk sem vill finna atvinnu í útlöndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 7 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 E -3 F B C 1 7 5 E -3 E 8 0 1 7 5 E -3 D 4 4 1 7 5 E -3 C 0 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.