Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. J Ú N Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  143. tölublað  103. árgangur  ALBATROSS ER FYRSTA KVIK- MYND SNÆVARS DNA YRSU GLÆPASAGA ÁRSINS 2014 HAGRÆÐING MEÐ ÍSLENSKUM HUGBÚNAÐI BLÓÐDROPINN 41 ÞULA Á AKUREYRI 16FRUMSÝNING 39 Hægriflokkarnir í Danmörku eru ótvíræðir sigur- vegarar þing- kosninganna sem fram fóru þar í landi í gær. Fékk hin Bláa fylking þeirra 90 þing- menn gegn 85 þingmönnum Rauðu fylk- ingarinnar. Helle Thorning- Schmidt, fráfarandi forsætisráð- herra, lýsti því yfir í gærkvöld að hún myndi hætta sem formaður Jafnaðarmannaflokksins. Flestum að óvörum er Danski þjóðarflokkurinn orðinn annar stærsti flokkur Danmerkur með 37 þingmenn. Venstre-flokkur verð- andi forsætisráðherra, Lars Løkke Rasmussen, missti á sama tíma fylgi og þingmönnum hans fækkaði um 13 niður í 34. »20 Blá fylking hægriflokka sigraði í Danmörku Hættir Helle Thorning-Schmidt.  Helle Thorning- Schmidt segir af sér Vilja bætt vinnuumhverfi » Hjúkrunarfræðingar vilja auk hærri launa ýmsar breyt- ingar á vinnuumhverfi o.fl. » Þeir segjast ekki hafa fengið efnislega umræðu um þau mál við ríkið. Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Kröfugerð hjúkrunarfræðinga í kjaraviðræðum við íslenska ríkið er margþætt og snýr að ýmsu öðru en beinum launahækkunum. Taka kröfurnar þannig m.a. til endurmenntunar og símenntunar, veikindaréttar, forgangs í störf, áhalda og vinnufatnaðar, fjölskyldu- og styrktarsjóðs og aðkomu að stefnumótun í heilbrigðiskerfinu. Félag hjúkrunarfræðinga mun sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa lagt fram ýmis töluleg gögn í viðræðunum sem rökstuðning fyrir kröfum sínum. Meðal gagna eru línu- rit sem sýna launaþróun nokkurra stétta yfir fjórtán ára tímabil, bæði miðað við launavísitölu og miðað við krónutölu, töflur yfir meðaltalslaun 27 stéttarfélaga sem og yfirlit yfir kynjaskiptingu í fjölmörgum starfs- greinum. Þar má m.a. sjá að karlar eru í 2,5% stöðugilda hjúkrunar- fræðinga og konur í 97,5% stöðu- gilda. Félagið telur gögnin sýna fram á að 14-25% launamunur sé á milli hjúkrunarfræðinga og annarra háskólastétta. Þá hafi launahækkan- ir hjúkrunarfræðinga undanfarin ár skilað sér í mun lægri krónutölu en til annarra stétta. Kröfuliðirnir hátt í þrjátíu  Um 138% munur á dagvinnulaunum skurðlækna og hjúkrunarfræðinga en 94% sé litið til annarra lækna  Laun ljósmæðra um 10% hærri en hjúkrunarfræðinga MFjölþættar kröfur í hjúkrun »6 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Járnabinding Pólskir smiðir, starfsmenn undirverktaka, steypa upp stöðvarhús Þeistareykjavirkjunar. Undirstöðurnar eru vel bundnar járni. Framkvæmdastjóri Atvinnuþróun- arfélags Þingeyinga segir tímabært að fara yfir það með Landsvirkjun hvaða orkustraumar verði til og hve- nær og hvernig best sé að nýta þá til áframhaldandi atvinnuuppbygg- ingar á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Reinhard Reynisson segir að kísilver PCC sé ísbrjóturinn og önnur fyrirtæki geti komið í kjölfar- ið. Friðrik Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, nefnir að franska framleiðslufyrirtækið Saint Gobain hafi sýnt áhuga á að reisa þar verk- smiðju þegar önnur starfsemi væri komin á svæðið. Reinhard vill einnig kortleggja losun koltvísýrings frá virkjun og verksmiðju, sem líta eigi á sem hráefni frekar en mengun. Síðan sé verkefnið að finna fyrirtæki sem gætu nýtt hann til verðmæta- sköpunar. »14 Fleiri hafa sýnt Bakka áhuga  Vill gera verðmæti úr koltvísýringi Listakonurnar Harpa Rún Ólafsdóttir og Elín Anna Þórisdóttir voru í gær að undirbúa gjörning sinn „Með eld í brjósti“ sem verður í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 17 í dag. Þar munu þær og Kvennakórinn Katla kveikja baráttueld í 100 brjóstum. Það er liður í hátíðarhöldum dagsins. Kveikja baráttueld í hundrað brjóstum kvenna Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölbreytt hátíðardagskrá í dag í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi Ekkert samkomulag er milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu um þingfrestun, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins. Stöðugar við- ræður eru í gangi til að freista þess að ná slíku samkomulagi. Einkum mun vera tekist á um makrílfrumvarpið en einnig er ósamkomulag um afgreiðslu fleiri þingmála. Viðmælendur töldu ekki ólíklegt að þingfundir myndu halda áfram þó nokkra daga til viðbótar, enda á Al- þingi eftir að afgreiða stór mál, þar á meðal haftafrumvörpin. gudni@mbl.is Enn er allt í hnút á þingi  Óvíst um þinglok Enn fjölgar uppsögnum hjúkr- unarfræðinga á Landspítalanum og hafa 103 þeirra nú sagt upp störfum. Við töluna bætast upp- sagnir fleiri starfsstétta, en í heild eru uppsagnirnar 133. Stjórn Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga ákvað í gær að fela lögmanni félagsins að höfða dómsmál gegn ríkinu vegna lagasetningar Alþingis á verkfall hjúkrunarfræðinga. 103 sagt upp á spítalanum UPPSÖGNUM FJÖLGAR Í KJÖLFAR LAGASETNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.