Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Page 17
Fimmtudagur 2. apríl 2009 17Sport Terry Tryggði englandi sigur England er komið í afar þægilega stöðu í sínum riðli í undankeppni heimsmeistaramótsins með fullt hús stiga eða fimmtán eftir fimm leiki. Það lagði Úkraínu á Wembley-leikvanginum í gærkvöldi, 2-1, þar sem peter Crouch og John terry skoruðu mörkin. Crouch kom Englandi yfir í fyrri hálfleik áður en einvígi fyrrverandi og núverandi Chelsea-manna hófst. andriy Shevchenko var nærri því búinn að skemma veisluna hjá enskum þegar hann jafnaði metin á 74. mínútu en hann sagðist fyrir leikinn vera staðráðinn í að sýna að hann væri ekkert „flopp“ vegna tíma síns hjá Chelsea. annar maður sem svo sannarlega er ekkert flopp hjá Chelsea, fyrirliði enska landsliðsins John terry, skoraði þegar fimm mínútur voru eftir og tryggði Englandi sigur. Frábæru úrslitaeinvígi Hauka og KR í Iceland Express-deild kvenna lauk í gærkvöldi með 69-64 sigri Hauka í oddaleik að Ásvöllum. Mikil spenna var undir lokin þegar KR gerði hvað það gat til að tryggja sér sigur eða framlengingu en Slavica Dimovska, leikmaður Hauka, sýndi mikla yfir- vegun á vítalínunni og tryggði Hauk- um sigur. Hún var síðar kjörin mikil- vægasti leikmaður úrslitaeinvígisins. „Þetta var frábær leikur af beggja hálfu,“ sagði sigurreifur þjálfari Hauka, Yngvi Gunnlaugsson, við DV eftir leik. „Mætingin á leikinn var frábær og miðað við úrslitin í þess- um landsleik (Íslands og Skotlands) hefði fólk betur mætt til okkar.“ Sería liðanna bauð upp á mikla skemmtun í hverjum einasta leik. „Þetta byrjar náttúrlega þannig að heimavallarétturinn okkar fer fyrir bí þegar við töpum fyrsta leik. Svo vinn- um við hann aftur en það var bara ekki hægt að rýna í hvernig þess- ir leikir spiluðust. Eina sem maður vissi var hverjar væru í hópnum og svo fór maður bara með liðið inn á völl,“ sagði Yngvi sem hefur þjálfað sumar af Íslandsmeistarastelpunum lengi. „Fimm af stelpunum í liðinu hef ég þjálfað síðan þær voru ellefu ára og það er æðislegt að upplifa sig- ur með þeim í meistaraflokki og sjá þær stíga sín fyrstu skref í landslið- inu. Við höfum misst mikið úr liðinu sem varð Íslandsmeistari 2007 en þær stelpur sem eru eftir núna hafa einfaldlega viljað bæta sig þannig að það er alveg frábært að hafa endur- heimt titilinn,“ sagði Yngvi Gunn- laugsson Íslandsmeistari. tomas@dv.is Haukar eru Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta: „Hefðu beTur mæTT Til okkar“ umSJón: tómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is / sport@dv.is MAÐUR LEIKSINS svona sTóðu sTrÁkarnir sig GUNNLEIFUR V. GUNNLEIFSSON Átti ekkert í mörkunum. Varði vel inn á milli og greip þokkalega inn í. GRÉTAR RAFN STEINSSON Ekki sá grétar rafn sem maður er vanur að sjá. lét lítið á sér bera og ekki nægilega sterkur sóknarlega. KRISTJÁN ÖRN SIGURÐSSON Enn einn stjörnuleikurinn hjá Kristjáni með landsliðinu. Var mjög traustur og átti ekkert í mörkunum. HERMANN HREIÐARSSON Fyrirliðinn bar hjartað á erminni og lagði allt í sölurnar. nálægt því að skora jöfnunarmarkið undir lokin. BJARNI ÓLAFUR EIRÍKSSON Versti leikur Bjarna fyrir landsliðið. lét fífla sig hvað eftir annað í vörninni. arfadapur. ARON EINAR GUNNARSSON aron ekki líkur sjálfum sér. Sendingar mjög lélegar og var oft undir í baráttunni. Hans versti leikur. HELGI VALUR DANÍELSSON Var sendur inn á til að berjast og gerði það. Skilaði ágætum boltum frá sér inn á milli en kom út á pari. EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Furðulega seinn að skila boltanum frá sér og var oft maðurinn sem hægði á sóknarleik íslands. Það gerist ekki oft. PÁLMI RAFN PÁLMASON Byrjaði afleitlega en vann sig inn í leikinn. Átti stærstan þátt í markinu og var nálægt því að skora jöfnunarmarkið. INDRIÐI SIGURÐSSON Erfitt að meta miðvörð sem leikur á kantinum. gat varla skilað mikið betri leik. Skoraði markið. 4 5 6 78 9 10 2 3 4 5 6 7 8 5 6 7 8 9 10 4 5 6 78 9 10 0 1 2 34 5 6 1 2 3 45 6 7 3 4 5 6 7 8 9 2 3 4 56 7 8 3 4 5 67 8 9 4 5 6 78 9 10 ARNÓR SMÁRASON Kom virkilega sterkur inn. mikil fótboltaleg geta í Skagamanninum sem gagnaðist íslandi vel í leiknum. 4 5 6 78 9 10 EGGERT GUNNþÓR JÓNSSON (70. mín) 6 ÁRMANN SMÁRI BJÖRNSSON (80. mín) - Það var eins og vitað var að yrði. Skotar pressuðu stíft á íslenska landsliðið á fyrstu tuttugu mínút- unum í gær þegar liðin mættust í níunda riðli undankeppni heims- meistaramótins. Ekkert frekar en fyrri daginn náðu Skotar þó að skapa sér afgerandi marktæki- færi. Þeir eru bara ekkert betri en það enda höfðu þeir aðeins unnið einn leik af síðustu átta og það var gegn Íslandi! Skotland er því komið í bíl- stjórasætið um annað sætið í riðl- inum sem allt snerist um inni á vellinum í gær. Íslenska liðið lék oft á köflum vel þrátt fyrir að í það vantaði mikilvæga menn. Mögu- leikinn á öðru sætinu er ekki alveg úti, en vissulega fjarlægari vegna tapsins. Mörk gegn gangi leiksins Eftir að Ísland komst yfir erfið- asta hjallann, fyrstu tuttugu mín- úturnar, fór það að spila oft ágæt- lega. Svo fór að Ísland tók völdin í leiknum en það var einmitt þá sem Alan Hutton skildi Bjarna Ólaf Ei- ríksson eftir í bakverðinum, gaf boltann fyrir og Ross McCormack skoraði sitt fyrsta mark fyrir lands- liðið með bylmingsskoti eftir tæp- lega fjörutíu mínútna leik. Þegar markið kom var Ísland mun sterkari aðilinn í leiknum og var búið að gera sig líklegt við mark Skotanna. Margt mátti þó betur fara í leik íslenska liðsins hvað varðar skyndisóknir. Strák- arnir fengu fín færi á þeim en ákvarðanatökur oft slæmar á loka- sendingu og þar var Eiður Smári Guðjohnsen hvergi undanskilinn sem átti því miður ekki nægilega góðan leik. Skotar byrjuðu mun betur í seinni hálfleik en þá voru það Ís- lendingar sem sneru vörn í sókn. Pálmi Rafn Pálmason stóð af sér tæklingu og átti hörkuskot í stöng- ina sem Indriði Sigurðsson fylgdi eftir og jafnaði. Eftir það tók Ís- land völdin og litu hlutir mjög vel út næstu mínútur. Þá kom annað áfall. Eftir hornspyrnudóm sem var aldrei hornspyrna skoruðu Skotarnir aftur, nú Steven Fletcher sem var einnig að skora sitt fyrsta mark fyrir skoska landsliðið. Jákvætt en stigaskortur Ef farið er í leikinn ef og hefði má spyrja sig hvað hefði gerst ef Brynj- ar Björn hefði verið á miðjunni, Birkir Már á hægri kantinum, Emil á þeim vinstri og Heiðar Helguson í framlínunni, liðið sem Ólafur vill hvað helst stilla upp. Án þessara lykilmanna var íslenska liðið allt annað en lakari aðilinn í leiknum frekar en fyrri daginn þegar það mætir Skotum. Það virðist samt bara aldrei skipta máli hvernig er stillt upp, aldrei ætlum við að vinna Skotana. Arnór Smárason kom gífurlega sterkur inn og getur vel hafa tryggt sér sæti í byrjunarliðinu þegar Ís- land mætir Hollandi í sumar. Að sama skapi gerði Helgi Valur Dan- íelsson allt sem fyrir hann var lagt á miðjunni og þá kom Indriði Sig- urðsson skemmtilega á óvart á kantinum. Góð frammistaða Ís- lands og sýndi Ólafur Jóhannesson að hann veit alveg hvernig hann á að stilla upp liðinu en byrjunarlið- ið í leiknum vakti mikla undrun. Gegn því jákvæða áttu Aron Einar og Bjarni Ólafur líklega sína verstu landsleiki og þá vantaði Ísland mun betri frammistöðu frá Eiði Smára og Grétari Rafni. Það er alltaf talað um að liðið sé á réttri leið og það er það svo sann- arlega. Baráttan í liðinu undir lok- in þegar það reyndi hvað það gat að jafna eins og stórþjóð að tapa fyrir minna liði var virðingarverð. Þrátt fyrir beinu brautina eru að- eins fjögur stig í húsi og draumur- inn um HM orðinn fjarlægur. Ísland tapaði enn einum leiknum fyrir Skotlandi, nú 2–1, þegar liðin mættust á Hampden Park í gærkvöldi. Indriði Sigurðsson skoraði mark Íslands sem virðist fyrirmunað að sigra Skotland sama hversu vel liðið spilar. Skotar hafa unnið tvo leiki af síðustu níu, báða gegn Íslandi! Það ætlar aldrei að takast! TÓMAS þÓR þÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Svekktur Fyrirliðinn Hermann Hreiðarsson átti erfitt með sig eftir leik. MyND AFP Íslandsmeistarar 2009 Haukakonur hlaupa sigurhringinn með íslandsbikarinn í gærkvöldi. MyND RÓBERT REyNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.