Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2009, Blaðsíða 44
Föstudagur 12. júní 200944 Sakamál Helen Jewett myrt Helen jewett var háklassa vændis- kona í new York á fjórða áratug nítjándu aldar. Helen var myrt í apríl 1836 og vakti morðið, réttarhöldin sem fylgdu og sýknudómur yfir meintum morðingja hennar mikla athygli og fönguðu athygli fjölmiðla þess tíma. Helen jewett hét réttu nafni dorcas doyen og hóf feril sinn í vændinu í Maine-fylki undir fölsku nafni, en endaði bæði feril sinn og ævi í new York Lesið um morðið á Helen jewett í næsta helgarblaði dV. Aðgerð jólAsveinn Eric, Parick og Samúel svifust einskis til að komast yfir peninga. Marjorie var opin stúlka og féll fyrir Eric enda vissi hún ekki að hann væri úlfur í sauðargæru. Á heigulslegan hátt komu þremenningarnir Marjorie í opna skjöldu, myrtu hana og gerðu sér glaðan dag með peningum hennar. Þeir kölluðu sig Aðgerð jólasveinn- inn, voru þrír að tölu, án markmiðs í lífinu og atvinnulausir. Þeir voru hrottafullir og eini tilgangur dag- legs lífs þeirra var að komast yfir fé með hverjum þeim hætti sem hugsast gat, öðrum en með vinnu. Þegar einhverjum þeirra lánað- ist að koma höndum yfir annarra manna fjármuni eða bankakort sendi viðkomandi, sigrihrósandi smáskilaboð til hinna: „Jólasveinn- inn er kominn“ og síðan var farið í verslunarleiðangur. Blinduð af ást Marjorie Vigouroux var af allt öðru sauðahúsi. Marjorie var tvítug að aldri og starfaði sem öldrunar- hjúkrunarfræðingur í Nimes í suð- urhluta Frakklands, á sama sjúkra- húsi og móðir hennar. Marjorie kynntist Eric Martin- ez, forsprakka jólasveinsgengis- ins, í gegnum netið og hann heill- aði hana upp úr skónum með tali á rómantískum nótum og boðum á fína veitingastaði og fyrr en varði varð hún ástfangin af honum. Lít- ið vissi hún um þá grimmd og það miskunnarleysi sem bjó innra með honum. Marjorie hafði með skynsemi terkist að safna 3.000 evrum inn á bankareikning sinn og þegar leið að jólum 2003 hafði hún borið upphæðina saman við lista yfir þá sem hún hugðist gefa jólagjöf það árið. Sér til mikillar furðu tók hún eftir að þrjú eyðublöð voru horfin úr ávísanahefti hennar. Móðir Marjorie spurði hvort ekki væri mögulegt að Eric hefði tekið þrjár óútfylltar ávísanir, en Marjorie var blinduð af ást: „Nei, það er ekki mögulegt. Eric myndi aldrei gera slíkt.“ Páskasunnudagur 2004 Samband Erics og Marjorie hélt áfram með rómantísku snakki og veitingahúsaferðum. Daginn fyr- ir páskasunnudag 2004 bauð Eric henni til stefnumóts á heimili hans. Árla kvölds á páskasunnudag bar Marjorie að garði í íbúð Erics, en Eric var ekki einn heldur voru þar einnig Patrick, bróðir Erics, og Samúel, vinur bræðranna. Marjorie var í eðli sínu opin og vingjarnleg stúlka, en engu að síður fékk hún strax illan bifur á Samúel og ekki bætti úr skák að engu líkara var en þeir hefðu beðið hennar. Að sjálfsögðu hafði Marjoeie ekki hugmynd um að Samúel hafði um morguninn hringt í fjölda vina, en enginn hafði viljað eyða páska- sunnudegi með honum. Það var ekki fyrr en hann hringdi í Patrick að hann var boðinn velkominn og einnig lofað að það yrðu stúlkur í boðinu. Samúel kom til bræðranna um tvöleytið og mikil drykkja upphófst og ákváðu þremenningarnir að dópa Marjorie þegar hún kæmi og ræna hana síðan. Barin með steikarpönnu „Við ákváðum að gera henni fyrir- sát. Patrick hafði falið þunga eldun- arpotta á bak við sjónvarpið, reiðu- búna til að nota til að berja hana í höfuðið,“ sagði Samúel síðar. Marjorie kom þremenningun- um á óvart með því að koma inn í íbúðina án þess að hafa hringt dyrabjöllunni. „Þegar hún stefndi á eldhúsið gaf Eric henni koss, tók síðan upp steikarpönnu og barði hana í höf- uðið. Marjorie hrataði aftur á bak og sagði: „Eric, hvað ertu að gera?““ sagði Samúel við yfirheyrslur. Við höggið hrasaði Marjorie í áttina að Patrick sem stjakaði henni til Samúels. „Hún rétti handleggina að mér. Ég lamdi hana fimm sinn- um með potti,“ sagði Samúel. Marjorie mátti sín lítils og þrátt fyrir að hún reyndi að verjast voru höggin svo þung að hringarnir á fingrum hennar brotnuðu. Ætlaði aldrei að deyja „Þetta tók allt of langan tíma. Hún ætlaði ekki að deyja. Því tók ég lausan hluta borðs og lamdi hana þrisvar sinnum. Mér fannst best að binda enda á þjáningar hennar. Við börðum hana allir – við hætt- um fyrst þegar við töldum hana dauða,“ sagði Eric. Síðan settu Patrick og Samú- el plastpoka yfir höfuðið á henni til að koma í veg fyrir að einhverj- ir hlutar andlits hennar yrðu eftir. „Þá hrópaði einhver okkar: „Hún hreyfist! Hún hlýtur að vera enn á lífi!“ Svo ég gaf henni eitt högg til viðbótar,“ sagði Eric. Morðingjarnir þrír vöfðu lík Marjorie inn í teppi og drógu það niður stiga fjölbýlishússins. Lík- inu var síðan hent í farangursrými bíls Samúels: „Ég ók til heimil- is mömmu minnar og setti líkið í frystikistu í bílskúrnum.“ Samúel vildi vera öruggur ef Marjorie væri ekki dáin og tók því garðsláttuvél og setti ofan á lok frystikistunnar. Jólasveinninn kominn Daginn eftir fékk Amandine Salvi, vinkona Erics, smáskilaboð: „Að- gerð jólasveinn! Við erum rík! – Eric.“ Amandine vissi hvað skila- boðin þýddu og hóaði í Anthony Gigot, kærastann, og sagði að hóp- urinn myndi hittast á McDonalds. Hópurinn bókaði herbergi á hóteli og skemmti sér konunglega, enda með ávísanahefti Marjor- ie í farteskinu. Amandine var ekki mjög ólík Marjorie og framvísaði ávísunum á báða bóga. Á meðan illfyglin úðuðu í sig kræsingum sagði Eric Amandie og Anthony að þeir hefðu myrt Marj- orie. Tveimur dögum síðar flæktu Amandine og Anthony sig enn frekar í morðið þegar þau fóru með Eric, Patrick og Samúel í bílskúr- inn, tóku líkið, óku til Aigues-Mort- es og hentu því í einn kanalinn. Auðrakin slóð Eftir að líkið fannst tók ekki langan tíma að fá úr því skorið af hverjum það væri, enda hafði móðir Marj- orie tilkynnt hvarf hennar til lög- reglunnar. Lögreglan rannsakaði kortafærslur á korti Marjorie og fyrr en varði leiddi slóðin til hand- töku Erics Martinez, Patricks og Samúels, auk Amandine og Anth- onys. Andrúmsloftinu í réttarsalnum er best lýst með orðum lögfræð- ings fjölskyldu Marjorie, sem hann beindi gegn sakborningum: „Þið eruð allir heiglar. Heiglar því þið réðust á unga stúlku, heiglar því þið voruð þrír gegn einni, heiglar því þið réðust að henni aftan frá, heiglar því þið notuðuð vopn gegn andvaralausu, varnarlausu fórnar- lambi.“ Eric og Patrick fengu lífstíðar- dóm og Samúel fékk þrjátíu ára fangelsisdóm. Amandine og Anth- ony fengu tólf ára dóm hvort. uMsjón: koLbeinn þorsteinsson, kolbeinn@dv.is Marjorie Vigouroux Var blinduð af ást til verðandi morðingja síns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.