Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2009, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2009, Blaðsíða 18
Mánudagur 21. desember 200918 Bækur Fyrri dómar HARMUR ENGLANNA Eftir Jón Kalman Stefánsson SVÖRTULOFT Eftir Arnald Indriðason ALLTAF SAMA SAGAN Eftir Þórarin Eldjárn JÓN LEIFS – LÍF Í TÓNUM Eftir Árna Heimi Ingólfsson HIMINNINN YFIR ÞINGVÖLLUM Eftir Steinar Braga PARADÍSARBORGIN Eftir Óttar Norðfjörð FRJÁLS OG ÓHÁÐUR Eftir Jónas Kristjánsson ÆVISAGA EINARS BENEDIKTSSONAR Eftir Einar Benediktsson FÖLSK NÓTA Eftir Ragnar Jónasson SAGA VIÐSKIPTARÁÐU- NEYTISINS 1939–1994 Eftir Hugrúnu Ösp Reynisdóttur SÓLSTJAKAR Eftir Viktor Arnar Ingólfsson ENN ER MORGUNN Eftir Böðvar Guðmundsson HYLDÝPI Eftir Stefán Mána TIL VESTURHEIMS Eftir Bergstein Jónsson VORMENN ÍSLANDS Eftir Mikael Torfason REYNDU AFTUR – ÆVISAGA MAGNÚSAR EIRÍKSSONAR Tómas Hermannsson skráði MILLI TRJÁNNA Eftir Gyrði Elíasson Á MANNAMÁLI Eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur SNORRI – ÆVISAGA SNORRA STURLUSONAR Eftir Óskar Guðmundsson MYND AF RAGNARI Í SMÁRA Eftir Jón Karl Helgason UMSÁTRIÐ Eftir Styrmi Gunnarsson KOMIN TIL AÐ VERA, NÓTTIN Eftir Ingunni Snædal FÆREYSKUR DANSUR Eftir Huldar Breiðfjörð SÖKNUÐUR – ÆVISAGA VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR Eftir Jón Ólafsson ÉG OG ÞÚ Eftir Jónínu Leósdóttur AÐ SIGRA SJÁLFAN SIG Eftir Gunnlaug Júlíusson MILLI MJALTA OG MESSU Eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur ORRUSTAN UM SPÁN Eftir Antony Beevor ENGINN RÆÐUR FÖR Eftir Runólf Ágústsson SJÚDDIRARÍ REI – ENDUR- MINNINGAR GYLFA ÆGISSON- AR Eftir Sólmund Hólm Sólmundarson HVÍTI TÍGURINN Eftir Aravind Adiga SPÁNAR KÓNGURINN - ÁSTAR- SAGA Eftir Sigurð Gylfa Magnússon UMMYNDANIR Eftir Óvíd AFTUR TIL POMPEI Eftir Kim M. Kimselius LEITIN AÐ AUDREY HEPBURN Eftir Bjarna Bjarnason Óvæntustu tíðindin í tilnefningum til Íslensku bók- menntaverðlaunanna í desemberbyrjun voru eflaust þau að skáldsagan Bankster eftir tiltölulega óþekktan höfund, Guðmund Óskarsson að nafni, fékk eina af þeim fimm sem til skiptanna voru. Þetta er þriðja skáldverk höfund- ar, áður hefur hann sent frá sér örsagnasafnið Vaxandi nánd og skáldsöguna Hola í lífi fyrrverandi golfara. Bankster gerist síðastliðinn vetur og segir frá ung- um bankastarfsmanni, Markúsi, og sambýliskonu hans, Hörpu. Bæði missa þau vinnuna í hruninu mikla í fyrra- haust, hann hjá Landsbankanum, hún hjá Kaupþingi. Markús er sögumaður bókarinnar, segir söguna í gegn- um dagbók sem hann byrjar að halda eftir katastrófuna, en skrif hennar og lestur ýmissa bóka er meira og minna það eina sem hann tekur sér fyrir hendur í svartholi at- vinnuleysisins sem hann er allt í einu staddur í. Harpa bregst öðruvísi við atvinnumissinum, útvegar sér strax vinnu sem afleysingakennari í grunnskóla og horfir á við- brögð unnustans í sífellt dekkra ljósi eftir því sem á líður. Guðmundi tekst hreint ágætlega upp við að lýsa tóm- leikatilfinningunni og vanmættinum sem Markús upplif- ir eftir að honum er sagt upp störfum. Og hann er næm- ur á ýmis smáatriði í hegðun og aðstæðum fólks sem lesandinn þekkir án þess endilega að hafa leitt hugann meðvitað að þeim, og færir persónurnar og frásögnina þannig nær lesandanum. Maður finnur til með Mark- úsi, og reyndar þeim báðum hjónaleysunum, þrátt fyrir að í tilviki Markúsar geri hann lítið sem ekkert til þess að vinna sér inn fyrir samúðinni. Og oft þvert á móti. Í styttra máli: persónusköpun Guðmundar er afar góð. Þar sem höfundurinn sjálfur er starfsmaður Lands- bankans ætlar maður að lýsing hans á andrúmsloftinu þar innandyra og í samskiptum starfsmanna sé allavega að töluverðu leyti sannleikanum samkvæm, eða eins og hann sem óbreyttur bankastarfsmaður skynjaði það og upplifði. Guðmundur var á hinn bóginn ekki einn þeirra fjölmörgu sem misstu vinnuna og þarf því að treysta á skáldagáfuna í þeim efnum, en þekkir þó vafalítið þó nokkra sem dreyptu á þeim bitra kaleik og hefur því sjálf- sagt getað sótt að einhverju leyti í reynslubrunn fyrrver- andi starfsfélaga. Bankster er haganlega saman sett skáldsaga um það hvernig tilveran liðast smátt og smátt í sundur hjá bankastarfsmanni sem vissi ekki betur, frekar en pöpull- inn, en að lífið fram undan liti bara dável út. Það sem helst má setja út á sögu Guðmundar fyrir mína parta er að faðir Markúsar kemur svo gott sem ekkert meira við sögu eftir að hafa átt áhugaverð samtöl við son sinn á fyrstu síðum bókarinnar í þann mund sem fjármálakerf- ið er að hrynja. Samtölin eru athyglisverð því þar ræða saman innanbúðarmaður í kerfinu og maður sem stend- ur algjörlega utan við það, það er faðir Markúsar sem er um leið fulltrúi allra þeirra lesenda sem horfðu utan frá á pappírsborg bankakerfisins fjúka út í buskann nán- ast á einni nóttu. Líklegt má telja að mörg svona samtöl hafi átt sér stað hér á landi þessa örlagaríku daga haust- ið 2008. Með öðrum orðum: Guðmundur er vel að verðlauna- tilnefningunni kominn þó án nokkurs vafa hefði verið hægt að taka önnur verk bókavertíðarinnar fram yfir án þess að það hefði verið á nokkurn hátt gagnrýni vert. KRISTJÁN HRAFN GUÐMUNDSSON SKÁLDSAGA Barlómur bankamanns BANKSTER Guðmundur Óskarsson Haganlega sam- an sett skáld- saga um það hvernig tilveran liðast smátt og smátt í sund- ur hjá atvinnu- lausum banka- manni. Útgefandi: Ormstunga Guðmundur Óskarsson Bankster er þriðja bók Guðmundar sem sjálfur er bankastarfsmaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.