Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2010, Blaðsíða 19
föstudagur 3. september 2010 fréttir 19 Gaxa Raf - rettan n Sama tilfinning og bragð fyrir þá Sem reykja n án allra eiturefna, engin lykt og má reykja hvar Sem er Pantaðu á netinu, www.gaxa.is - Pöntunarsími: 865-6520 Startpakkinn aðeins 9.995 kr. Flokksbræður véla um miklar eignir Ekki augljós verðmæti Mörgum þótti kunningjaveldið og frændhygli ráða för þegar eignir rík- isins á Keflavíkurflugvelli voru seldar á almennum markaði. Runólfur Ág- ústsson var viðloðandi Háskólavalla- verkefnið og Keili frá upphafi. Hann hefur eitt og annað um þetta að segja, meðal annars að ekki hafi verið sjálf- gefið að gera verðmæti úr hálfgerð- um draugabæ. „Nánast allar herstöðvar sem Bandaríkjamenn hafa skilið efir sig í Evrópu hafa grotnað niður og orðið byrði á herðum nærliggjandi samfé- laga. Íslenska ríkið fékk þessar eign- ir gefins. Ákveðið var að selja þær og það komu nokkur tilboð. Ég var þátt- takandi í þessu fyrir hönd kaupenda og átti hlut í því sem varð Háskóla- vellir. Ég sá ekki annað en að þarna færi allt heiðarlega og rétt fram. Vera má að aðferðafræðin hafi ekki þótt nægilega góð en svona var þetta. Mitt hlutverk var að koma uppbygging- unni af stað, leiða saman skóla, fyr- irtæki, fjárfesta og síðast en ekki síst að leiða almenning á Suðurnesjum að þessu. Að þessu komu til dæmis verkalýðsfélög þar. Verkefnið var að finna þessu innihald og koma því af stað. Með þessu sköpuðust verðmæti sem ekki var sjálfgefið að yrði.“ Hörð gagnrýni Þess má geta að í kjölfar heiftarlegr- ar gagnrýni, meðal annars á Alþingi, vegna sölu eignanna á Keflavíkufr- lugvelli gerði Ríkisendurskoðun út- tekt á verklaginu við söluna enda höfðu komið fram alvarlegar ásak- anir um spillingu, frændhygli og að- stöðubrask við söluna eins og áður segir. Svo langt gekk málið að 22. október 2007 gaf Geir H. Haarde for- sætisráðherra út yfirlýsingu vegna málsins. Þar sagði meðal annars: „Þróunarfélag Keflavíkurflugvall- ar ehf. hefur reglulega upplýst bæði fjármálaráðuneytið og forsætisráðu- neytið, sem handhafa hlutabréfs rík- isins í félaginu, um fyrirkomulag sölu á eignum og önnur verkefni félagsins. Þá er rétt að geta þess að fjármála- ráðherra gaf Þróunarfélaginu 8. maí síðastliðinn almennt umboð til sölu fasteigna þannig að hver einstök sala hefur ekki verið borin upp við fjár- málaráðherra til samþykktar.“ Árni Mathiesen, þáverandi fjár- málaráðherra, afsalaði sér með öðr- um orðum eftirlitshlutverkinu með sölu eignanna. Á þeim tíma var Böðvar Jónsson, formaður bæjar- ráðs Reykjanesbæjar, aðstoðarmaður Árna Mathiesens eins og áður segir. Sami maður víða við borðið Ríkisendurskoðun gerði úttekt á starfsemi Þróunarfélags Keflavíkur- flugvallar eftir þetta og fann fátt at- hugavert við söluna þá. Ríkisendur- skoðun telur hins vegar nú að salan hafi verið ívilnandi og langt undir matsverði. Þó gerði Ríkisendurskoð- un strangar vanhæfisathugasemdir og þótti Árni Sigfússon sitja helst til víða við sama borðið. Í desember 2007, nokkru áður en skýrsla Ríkisendurskoðunar kom út, ritaði Ögmundur Jónasson, nú inn- anríkisráðherra, á vefsíðu sína að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefði þverbrotið samninga: „Eignir hafi verið seldar án útboðs til manna sem nátengdir séu Sjálfstæðisflokkn- um og meirihluta bæjarstjórnar Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanesbæ. Þar hafi gerendur setið báðum megin við borðið og selt eignir langt undir markaðsverði svo milljörðum skipt- ir. Seldar hafa verið 1700 íbúðir fyrir 14 milljarða á meðan markaðsverð þeirra miðað við fermetraverð íbúða í Reykjanesbæ er sagt vera 29 og hálfur milljarður! Stjórn Þróunarfélagsins hefur ekki orðið við margítrekuðum tilmælum um að afhenda Atla Gíslasyni, al- þingismanni, umbeðin gögn og gera þannig hreint fyrir sínum dyrum.“ Fjármálaráðherrann fyrrverandi Árni Mathiesen hafði sterk tengsl við meirihluta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ í gegnum aðstoðarmann sinn. Ljósanótt Reykjanesbær rambar á barmi greiðsluþrots.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.