Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2012, Blaðsíða 10
R
annsókn eftirlitsaðila á Ís
landi á meintum brotum
útgerðarfélagsins Samherja
á lögum um gjaldeyrismál
er umfangsmeiri en kom
ið hefur fram í fjölmiðlum og teygir
anga sína meðal annars til dóttur
félaga Samherja á aflandseyjunni
Kýpur. Eignarhaldið á nokkrum evr
ópskum dótturfélögum Samherja er
í gegnum þessi félög, meðal annars
nýstofnað færeyskt dótturfélag Sam
herja sem og pólskt dótturfélag þess.
Mörg alþjóðleg fyrirtæki notast við
eignarhaldsfélög á aflandseyjum
eins og Kýpur og Tortóla vegna þess
skattalega hagræðis sem af því getur
hlotist.
Í umfjöllun fjölmiðla, aðallega
Kastljósi Ríkissjónvarpsins sem
greindi fyrst frá málinu, hefur komið
fram að Seðlabanki Íslands hafi látið
til skarar skríða og hafið rannsókn á
Samherja vegna gruns um að fyrir
tækið hafi selt fisk til þýsks dóttur
félags síns, DFFU, á undirverði. Sér
staklega var rætt um að karfi hefði
verið seldur til félagsins á undirverði.
Rannsakað hvort hagnaður hafi
orðið eftir erlendis
Með þessu á Samherji að hafa tekið
út hagnað af fiskveiðum hér á landi
í gegnum erlend dótturfélög með
óeðlilegum og jafnvel ólöglegum
hætti framhjá gjaldeyrishaftalögun
um sem sett voru á Íslandi eftir efna
hagshrunið 2008. Þessi hagnaður
Samherja á því, samkvæmt þessu, að
verða eftir í öðrum löndum en ekki
hér á landi. Gjaldeyriseftirlit Seðla
banka Íslands, sérstakur saksóknari
og tollstjórinn í Reykjavík tóku þátt
í húsleit hjá Samherja í lok síðasta
mánaðar vegna rannsóknarinnar.
Í viðtali Kastljóssins við Þorstein
Má Baldvinsson, forstjóra Samherja,
neitaði Þorsteinn því að Samherji
héldi eftir hagnaði í útlöndum af
sinni starfsemi. Orðrétt sagði hann:
„Við erum ekki að halda eftir nein
um hagnaði í útlöndum enda erum
við að reka fyrirtæki þar sem eru sið
uð þjóðfélög, hvort sem er í Þýska
landi eða Englandi og svo framveg
is. Eins og ég sagði, það er ekki hægt
að fjarlægja peninga út úr þessum
fyrirtækjum nema í gegnum arð
greiðslur.“
Stefán Jóhann Stefánsson, sem
sér um samskipti Seðlabankans við
fjölmiðla, neitar að tjá sig um rann
sóknina á Samherja. Hann segir
rannsóknina vera í gangi og að ekk
ert sé hægt að segja um gang hennar.
Katla skuldaði tæplega
13 milljarða
DV hefur hins vegar heimildir fyr
ir því að það sem komið hefur fram
um þessa rannsókn í fjölmiðlum
sé aðeins toppurinn á ísjakanum.
Rannsóknin er meðal annars talin
tengjast dótturfélögum Samherja
sem eru með starfsemi í Afríku og á
aflandseyjunni Kýpur.
Eitt af félögunum sem um ræð
ir hét Katla Seafood, nú Polaris Sea
food, fyrirtæki sem stofnað var utan
um starfsemi Samherja í Máritaníu
og Marokkó sem áður var í eigu út
gerðarfyrirtækisins Sjóla í Hafnar
firði. Kaupverðið nam nærri 12 millj
örðum króna samkvæmt skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis. Meðal
þess sem keypt var voru átta verk
smiðju og þjónustuskip sem voru í
eigu Sjóla. Í ársbyrjun 2008 skuldaði
Katla Seafood Glitni tæplega 13
milljarða króna vegna kaupanna á
erlendri starfsemi Sjóla. Við banka
hrunið námu skuldir Kötlu Seafood
við Glitni rúmlega tuttugu milljörð
um króna.
Tvö aflandsfélög á Kýpur
Kötlu var skipt upp í félögin Merc
ury Seafood og Polaris Seafood í
ársbyrjun 2008 og tóku þessi félög
við hluta af eignum Kötlu, meðal
annars þremur fiskiskipum. Þessi
tvö félög, Mercury og Polaris, áttu
tvö dótturfélög sem skráð eru á Kýp
ur, Fidelity Bond Investments Ltd.
og Miginato Holdings Ltd. Hlutafé
hvors félags um sig nam tæplega
1.500 milljónum dollara árið 2010.
Þá hafði Mercury runnið inn í Pol
aris ásamt tveimur öðrum dóttur
félögum Samherja.
Í stofngögnum Fidelity Bond In
vestments frá Limassol á Kýpur, sem
send voru til endurskoðanda Sam
herja í byrjun febrúar 2009, kem
ur fram að félagið hafi verið stofnað
þar í landi í lok janúar það ár. Stjórn
endur félagsins heita Irene Anastas
iou og Eleni Charalampous. Annað
aflandsfélagið var því stofnað eftir ís
lenska efnahagshrunið 2008 og eftir
setningu gjaldeyrishaftalaganna í
kjölfar hrunsins.
Tilvist þessara félaga kemur nokk
uð á óvart þar sem Þorsteinn Már
sagði aðspurður í umræddu Kast
ljósviðtali að Samherji ætti ekki félög
í skattaskjólum. Í viðtalinu spurði Jó
hannes Kr. Kristjánsson Þorstein Má
hvort Samherji eða tengd félög ættu
fyrirtæki í skattaskjóli. Sagði Þor
steinn að svo væri ekki. „Nei, hefur
aldrei átt, aldrei nokkurn tímann,“
sagði Þorsteinn.
Milljarðaeignir á Kýpur
Í ársreikningum Mercury og Polaris
eru þessi dótturfélög á Kýpur verð
metin á samtals 80 milljónir dollara,
um tíu milljarða króna, í árslok 2009.
Ekki er skilgreint í ársreikningunum
í hverju verðmæti þessara aflands
félaga felst. Eigið fé Mercury og Pol
aris nam samtals nærri 155 millj
ónum dollara, nærri 20 milljörðum
króna, í árslok 2009. Eignarhlutirnir í
aflandsfélögunum á Kýpur námu því
rúmlega helmingi af eignum þessara
tveggja dótturfélaga.
Polaris Seafood var eitt af þeim
fyrirtækjum á Íslandi sem skilaði
hvað mestum hagnaði árið 2009,
samtals 3,9 milljörðum. Félagið var
í tuttugasta sæti yfir þau félög sem
skiluðu mestum hagnaði í landinu.
Um 30 milljarða eignir
Í árslok 2010, eftir sameiningu
Mercury og Polaris undir nafni þess
síðarnefnda, voru eignarhlutirnir
í þessum tveimur dótturfélögum
Samherji á milljarða
í SkattaSkjóli á kýpur
10 Fréttir 18. apríl 2012 Miðvikudagur
n Rannsókn Seðlabankans snýr að meintum gjaldeyrisbrotum n Aflandsfélög eiga í erlendri starfsemi Samherja
Keyptu erlenda starfsemi Sjóla Árið 2007 keypti Samherji erlenda starfsemi hafnfirska útgerðarfyrirtækisins Sjólaskipa. Fyrirtækið
Katla Seafood var stofnað utan um þessa starfsemi í Máritaníu og Marokkó. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sést hér ásamt
öðrum forsvarsmönnum Samherja og eigendum Sjólaskipa.
Útgerð rannsökuð Samherji er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. Það sætir nú
rannsókn vegna meintra brota á gjaldeyrislögum. Hér má sjá frystitogarann Björgvin EA 311
úr Samherjaflotanum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Félagið átti
í árslok tvö
dótturfélög, Fidelity
Bond Investments
Ltd. og Miginato
Holdings Ltd.
Dómsuppsög-
unni sjónvarpað
Dómsuppsögu í landsdómi verður
sjónvarpað af bæði RÚV og Stöð
2. Dómur í málinu verður kveð
inn upp í Þjóðmenningarhúsinu
á mánudag. Réttarhöldin stóðu í
tvær vikur fyrr á árinu en ekki var
sýnt frá þeim þar sem bæði hljóð
og myndupptökur voru bannaðar.
Báðar sjónvarpsstöðvarnar
sendu dómnum formlegt erindi
þar sem þess var farið á leit að
útsending frá dómsuppsögunni
yrði heimiluð. Engin slík beiðni
barst dómnum áður en málið var
dómtekið og var því í raun aldrei
tekin efnisleg afstaða til mynd og
hljóðupptöku frá málflutningi og
vitnaleiðslum.
Gripu olíuþjófa
Lögreglunni á Suðurnesjum var
um helgina tilkynnt um óeðlilegar
mannaferðir við húsnæði fyrirtæk
is í Reykjanesbæ. Vísbendingar
leiddu til þess að lögreglumenn
höfðu fljótlega upp á tveimur karl
mönnum sem grunaðir voru um
að hafa verið í óða önn að stela
olíu úr tanki steypubifreiðar í eigu
fyrirtækisins þegar styggð kom að
þeim og þeir höfðu sig á brott. Við
steypubílinn fundust þrír brúsar;
einn hálfur af olíu og tveir tómir.
Að auki voru slöngur á vettvangi.
Mennirnir voru yfirheyrðir og
látnir lausir að því loknu.
Fundurinn
sem ekki var
„Það misfórust eitthvað skilaboð
á milli þingsins og ráðuneytisins
varðandi það hvort ráðherra kæm
ist eða ekki,“ segir Árni Þór Sig
urðsson, formaður utanríkismála
nefndar, en Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra mætti til fundar
nefndarinnar á þriðjudagsmorg
un þótt nefndin hafi ekki gert slíkt
hið sama. Þar með er ekki sagt að
nefndin hafi skrópað enda barst
aldrei boð um breyttan fundar
tíma til nefndarinnar.
Ráðherra hafði boðað komu
sína á fund nefndarinnar klukkan
hálf níu að morgni þriðjudagsins
17. apríl en fundur nefndarinnar
hefst oftar en ekki klukkan níu að
morgni. Þótt sá tími sé sveigjan
legur og stjórnist að einhverju
leyti af því hvenær nefndarmenn
og gestir nefndarinnar sjá sér fært
að mæta. „Össur vissi ekki annað
en að þau skilaboð hefðu borist
þinginu að hann myndi koma. Ég
fékk þau ekki þannig að ég gerði
ekki ráð fyrir honum. Þess vegna
var fundurinn boðaður klukk
an níu en ekki hálf níu eins og
annars hefði verið,“ segir Árni um
fundinn. „Þetta er nú ekki stór
mál,“ segir hann enda sé málið
bara klaufaskapur. „Þetta var bara
handvömm í kerfinu hérna og
raunar ekkert um það að segja.
Svona kemur fyrir.“