Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2011, Blaðsíða 14
Besti fiskurinn n Lofið fær veitingastaðurinn Sólon en viðskiptavinur sendi eftirfarandi: „Ég fer reglulega á Sólon í hádeginu því þar er alltaf besti fiskurinn. Fiskurinn og súpa dagsins kosta einungis 1.850 krónur. Þetta er alltaf eins og listaverk og algjörlega gómsætur matur og hollur. Svo er þjónustan frábær,“ segir viðskiptavinurinn ánægði. Fékk ekki matinn n Lastið að þessu sinni fær Stöðin á Ártúnshöfða „Ég fór þangað rétt fyrir lokun, fékk afgreiðslu og pant- aði hamborgara og franskar. Þegar ég hafði beðið í tíu mínútur kom af- greiðslumaður í lúguna og tilkynnti mér að það væri búið að loka lúgunni. Ég gæti farið inn og sótt þetta sjálf en ég sleppti því bara og fór. Það hefði verið ágætt ef ég hefði verið látin vita strax. Þetta fundust mér skrýtin vinnubrögð,“ segir viðskiptavinur Stöðvarinnar. 14 | Neytendur 7. september 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 236,3 kr. 236,3 kr. Algengt verð 236,1 kr. 236,1 kr. Höfuðborgarsv. 236,0 kr. 236,0 kr. Algengt verð 236,3 kr. 236,3 kr. Algengt verð 238,0 kr. 236,3 kr. Melabraut 236,1 kr. 236,1 kr. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Metanverð hækkar Verð á metani hækkaði um mánaða- mótin í annað skiptið á þessu ári. Á sorpa.is segir að á stjórnarfundi fyrirtækisins, sem haldinn var 29. ágúst, hafi verið ákveðið að hækka verð metans um 4,50 krónur á Nm3 án virðisaukaskatts. Hafi þetta verið gert til að mæta kostnaði við stækk- un hreinsistöðvar í Álfsnesi sem mæta skal aukinni eftirspurn. Verð á metani er því komið í 126 krónur á Nm3 en í byrjun árs var það á 114 krónur og nemur hækkunin frá ára- mótum tæpum 10 prósentum. Árið 2007 þegar fyrsta metanstöðin var opnuð kostaði gasið 88 krónur Nm3. n Ber, jurtir og rætur til matseldar og annarra nota má finna víða n Margir hafa aftengst náttúrunni og vita ekki hvar skal leita fanga Lifðu af landinu „Það er gaman að prófa sig áfram og því oftar sem maður reynir og því fjölbreytt- ari tegundir sem maður prófar færist maður nær náttúrunni. Þ að eru gömul sannindi að það vaxi við hús manns það sem maður hefur þörf fyr- ir,“ segir Guðrún Tryggva- dóttir, frumkvöðull og fram- kvæmdastjóri natturan.is. Hún bætir við að það eigi kannski ekki við þann sem býr í blokk í borginni en hann þurfi þó ekki að leita langt til að finna villtar jurtir sem hægt er að nýta. Á natturan.is má finna mikið magn upplýsinga um hvað fólk getur nýtt sér úr náttúrunni. Vitum ekki hvað náttúran getur boðið upp á Margir eru ómeðvitaðir um hvað náttúran hefur upp á að bjóða. Ef við erum ekki með matjurtagarð í garð- inum eða á svölunum teljum við eina ráðið að fara í búð og versla. Við ger- um okkur ekki grein fyrir öllum þeim fjölda af jurtum, berjum og rótum sem eru tilvaldar til matargerðar og eina sem við þurfum að gera er að fara rétt út fyrir bæjarmörkin til að finna það. Við erum komin langt frá upprunanum „Villtar jurtir vaxa allt í kringum okkur og það er mikilvægt að kynna fólki hvar það getur leitað fanga, hvar það er öruggt og til hvers hægt sé að nota jurtirnar. Við getum nýtt svo margt sem er í kringum okk- ur og sleppt því að fara í Bónus og kaupa rándýrt, dautt kál. Fólk ætti frekar að leita í kistu náttúrunnar,“ segir hún. Það sé búið að skera á sambandið á milli okkar og náttúr- unnar og vegna þess séum við kom- in svo langt frá upprunanum. Gam- an sé að fara út í náttúruna og prófa – finna hvaða jurtir tala til manns á einhvern hátt og gera tilraunir með þær, smakka og dást að þeim. „Það er gaman að prófa sig áfram og því oftar sem maður reynir og því fjöl- breyttari tegundir sem maður próf- ar færist maður nær náttúrunni.“ Guðrún leiddi blaðamann í sannleikann um nokkrar slíkar jurtir og aðrar náttúrugersemar sem fólk getur tínt eða safnað og notað við eldamennsku eða lík- amsumhirðu. Upplýsingarnar hér eru fengnar af síðunni natturan. is en að sjálfsögðu er fjöldi nýtan- legra jurta í náttúrunni mun meiri en hér er tekið fyrir og fólk hvatt til að fræðast um hvernig lifa má af landinu. Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is Úttekt Guðrún Tryggvadóttir Framkvæmdastjóri natturan.is segir að nútímamaðurinn sé ómeðvitaður um hvað náttúran geti gefið af sér. MYND: EINAR BERGMUNDUR Það má nota hinar ólíklegustu jurtir á ýmsan máta, svo sem til matargerðar eða sem rotvörn. Ýmsar jurtir: Það er fleira sem má sækja í sjóinn en fiskinn. Ýmiss konar þang, þara og skelfisk má nýta í matargerð og það er góð samverustund að ganga fjörur og finna eitthvað matarkyns. Sjávarfang: Hvönn er bragðsterk og hentar betur sem kryddjurt og heilsumeðal en grænmeti. Það á einkum við á meðan verið er að venjast henni en hún er svolítið beisk fyrir matarsmekk nútíma- manna. Hún hefur alla tíð haft orð á sér sem lækningajurt og því verið haldið fram að hún sé góð fyrir blóðrásina, bæti meltinguna og vinni gegn gigt. Háskóli Íslands mun hafa rannsakað hana og orðrómurinn um lækningagildi hennar hefur styrkst til muna. Farið er að framleiða úr henni urtaveig, seyði gegn krabbameini og hún kölluð ginseng Norðurlanda. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR Hreindýramosa er hægt að finna á gangi um heiðar og sé hann mjúkur og örlítið rakur er tilvalið að taka lúkufylli með heim og setja í flatbrauð eða heilhveitibollur. Best er að gera þetta strax því hann molnar þegar hann þornar og þó bragðið breytist ekki verður lítið úr honum. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR Skessujurt má nota til að fá góðan jurtakraft í næstum hvaða rétt sem er. Það er hægt að nota hana sem súpujurt og jurtakraft um leið og hún byrjar að vaxa en þegar líður á sumarið er tilvalið að skera hana niður og þurrka til vetrarins. Skessujurtin var áður fyrr einnig notuð í læknislegum tilgangi en hún hefur þvaglosandi áhrif, eykur matarlist og getur linað hósta og verki í brjóstholi. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR Fjallagrös eru notuð á ýmsa vegu, til dæmis til að koma í veg fyrir að sultur mygli en í þeim er rotvörn auk þess sem þau þykkja. Þau verða mjúk og laga sig að berja- og ávaxta- bragði og skilja eftir rétt mátulegan keim af grösugum heiðalöndum. Þau hafa verið nytjuð í margar aldir og voru þau þá meðal annars notuð soðin í blóðmör og seyði af þeim drukkið. Þau eru gríðarlega holl og næringarrík en eru sérstæð og svolítið erfitt að finna þeim stað í alþjóðlegri matarflóru. Á natturan.is segir að matgæðingar nútímans séu að fikra sig áfram í að nyta grösin með ferskum áherslum og Háskóli Íslands hafi tekið þjóðsöguna um lækningagildi þeirra alvarlega og hafið rannsóknir. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR Birki er ekki notað til matar en Guðrún segist nota birki í allt mögulegt, svo sem græna drykki, húðolíur, græðismyrsl og te. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR Kræklingur finnst víða við Ísland. Það er til er gömul og góð þumalputtaregla um kræklingatínslu en hún byggist á að ekki megi tína þá yfir þá sumarmánuði sem ekki innihalda bókstafinn r í nafni sínu. Samkvæmt upp- lýsingum frá Matvælastofnun er þetta í megindráttum rétt nema að fólk ætti ekki að tína krækling í september heldur. Hann telst sem sumar- mánuður í sjó. Mikilvægt er að fólk afli sér upplýsinga um stöðu kræklings á heimasíðu stofnunarinnar, mast.is, en þar eru birtar upplýsingar um hvar er óhætt að tína krækling. Grænhimna er skær- græn á lit og gljáandi eins og blautt salat. Hana má tína og þurrka, rista á pönnu og mylja. Henni má svo strá yfir hina ýmsu rétti eða súpur eins og bragðbætissalati. Söl er mest nýtt af sjávargróðri. Oft eru þau tekin á stórstraums- fjöru kringum höfuðdag eða 29. ágúst og hafa þá haft sumarið til að vaxa. Þau vaxa neðst í fjörunni og koma í ljós á fjöru. Þegar þau eru tínd er best að setja þau í netpoka svo sjórinn leki af þeim en svo eru þau þurrkuð flöt og þeim snúið svo þau þorni jafnt og vel. Þurr eru þau látin undir farg og þar þurfa þau að taka sig í nokkrar vikur svo sætan komi fram og þau verði bragðgóð. Sætan er hvít og heitir hneita. Blöðruþang má nota til að gera te. Þó það sé ekki sérlega bragðgott þykir það vinna vel á móti gigt, offitu og hægum skjaldkirtli og það er notað í margar megrunarblöndur. MYND: GUÐRúN TRYGGVADóTTIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.