Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 18
18 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað LAGERSALA Lín Design Laugavegi 178 (næsta hús við verslun Lín Design) www.lindesign.is LAGERSALA 40-80% afsláttur Laugardag & sunnudag (kl 10-16 báða dagana) LAGERSALAN er flutt á Laugaveg 178 næsta hús við verslun Lín DesignAthRúmfatnaður handklæðiPúðar, Dúkar, löberar Barnavörur Sögulegar myndir af „árás á Alþingi“ Þ essar ljósmyndir sýna atburðarásina með allt öðrum hætti en ákæruvaldið lýsti henni,“ segir Lár- us Páll Birgisson ljósmynd- ari í samtali við DV. Hann var fremstur í þeim hópi sem fór áhorfendamegin inn á Alþingi 8. desember 2008, í fylkingu sem síðan var sökuð um að hafa gert árás á þingið. Lárus Páll tók alls 84 ljósmyndir á stigapallinum, þar sem hóp- urinn var stöðvaður. Eins og komið hefur fram voru níu- menningarnir sýknaðir af ákæru um „árás á Alþingi“ en í dómnum kom meðal annars fram að þeim hefði átt að vera heimilt að fara upp á þingpall- ana. Þrátt fyrir að ljósmynda- tökunnar hafi verið getið við skýrslutöku lögreglu, báðu hvorki lögregla né ákæruvald nokkurn tíma um að þær yrðu lagðar fram sem gögn í málinu. Þær birtast í fyrsta sinn í heim- ildamyndinni Ge9n, sem hefur verið til sýninga í Bíó Paradís. Haukur Már Helgason, leik- stjóri Ge9n, segir myndirnar gefa kvikmyndinni aukið heimildavægi. „Myndirnar eru heimildaefni hans á vettvangi – en atriðin, þar sem hann flettir gegnum þær og segir söguna með hjálp þeirra, eru líka heimildaefni,“ segir Hauk- ur Már. Engar grímur „Myndirnar sýna að það var ekkert verið að beita fólk of- beldi þarna inni, en því hafði verið haldið fram af ýmsum. Þá hefur líka verið sagt að hóp- urinn hafi verið grímuklæddur en eins og myndirnar sýna voru fæstir þarna eitthvað að reyna að fela sig,“ segir Lárus Páll, sem fer í heimildamynd- inni í gegnum myndirnar og lýsir atburðarásinni eins og hún kom honum fyrir sjónir á vettvangi. Lárus Páll segir að hann hafi aldrei verið beðinn um að leggja myndirnar fyrir dóminn, sem honum finnist sérstakt, þar sem þær sýni að mörgu leyti fram á rangfærslur á mál- flutningi ákæruvaldsins. „Á myndunum sést meðal ann- ars að sú hurð sem einhverjir áttu að vera að reyna að brjóta sér leið í gegnum var á bak við mig, en þar stóð ég allan tím- ann og tók myndirnar, og hún var því aldrei í eiginlegri hættu á að brotna.“ Dramatísk glíma Haukur Már segir að Lárus hafi verið byrjaður að sýna nokkrum kunningjum mynd- irnar þegar hann bað um að fá að setja upp myndavél og taka þetta upp. „Þetta var eftir að megintökum á efni mynd- arinnar var lokið, en mér varð eiginlega samstundis ljóst að þarna væri komin umgjörðin, frásagnarramminn: enginn hefur áður séð hvað gerðist þarna inni. Sem, ef marka má myndirnar, var síðan auðvitað næstum ekki neitt.“ Haukur Már segir þetta hafa verið skemmtilega og drama- tíska glímu: „Hvernig gerir maður eitthvað spennandi úr því að sýna myndir sem næst- um ekkert er að gerast á? Í fyrsta lagi hjálpar auðvitað hvað Lárus sjálfur er fyndinn og skemmti- legur sögumaður. Í öðru lagi kemur til þessi íróníska spenna milli þess sem haldið var fram allan tímann, meðal annars af ákæruvaldinu, og þess sem myndirnar sýna. Í þriðja lagi vinnur maður síðan úr þessu með klippingu – myndirnar kallast á við það sem kemur fram í öðrum atriðum, bæði það sem sagt er og sýnt.“ Tröllasögur hraktar Haukur Már segir að kvik- myndin fari að þessu leyti fram úr öllum málsgögnum, því hvorki lögregla né ákæru- valdið hafi falast eftir að sjá þessar ljósmyndir, þrátt fyrir að vita af þeim. „Mætur maður sagðist gera kvikmyndir til að heimspekingar fullyrtu aðeins hægar en þeir annars venja sig á. Tröllasögur, hvort sem er heimspekilegar eða póli- tískar, reiða sig ansi oft á það sem sést ekki berum augum. Tröllasögurnar af níumenn- ingunum voru kannski ekki ýkja heimspekilegar, en þarna er hliðstæða: myndirnar skapa ákveðið viðnám gegn fullyrð- ingagleði sem annars virðist oft hafa það frekar náðugt hér á landinu.“ Aðspurður hvort um sögu- legar myndir sé að ræða seg- ir Lárus Páll að sagan ein geti dæmt um það. „Þetta er að minnsta kosti ágætis heimild um hvað það var sem gekk á þarna inni.“ Hann segist ekki ætla að setja myndirnar upp á sýningu á næstunni en hvetur forvitna til þess að sjá Ge9n, þar sem fjöldi mynda er sýnd- ur. Aðspurður hvað hann ætli að gera við þær, segir hann: „Ég veit það ekki, ætli ég eigi þær ekki bara, svo fara þær kannski í einhverjar sögubæk- ur í framtíðinni en maður veit það ekki.“ Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is n Sögulegar ljósmyndir af níumenningum innan úr stigapalli Alþingis n Hvorki lögregla né ákæruvald bað um að fá að sjá myndirnar n Myndirnar skapa viðnám gegn fullyrðingagleði, segir leikstjóri Ge9n „Myndirnar sýna að það var ekkert verið að beita fólk ofbeldi þarna inni. Ákærðir Þessir ungu menn, Kolbeinn og Andri, voru handteknir á staðnum og síðar ákærðir fyrir árás á Alþingi ásamt sjö öðrum. MynDir LÁruS PÁLL BirGiSSon Bros og hróp Lögreglumaður brosir á meðan Snorri Páll, einn níumenn- inganna hrópar, hann var síðar ákærður fyrir árás á Alþingi en loks sýknaður. Átök á stigapalli Þingverðir og lögreglumaður stöðvuðu ungan mann sem reyndi að komast upp á þingpallana eins og honum var heimilt sam- kvæmt dómi. Ákæruvaldið bað aldrei um að sjá myndirnar. Grímuklædd ungmenni Því var lengi haldið fram að hópurinn hafi verið grímuklæddur en á þessari mynd er enginn með grímu. ryskingar Lárus Páll segir þetta einu myndina af 84 sem mögulegt sé að túlka sem ofbeldi í garð þingvarða eða lögreglumanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.