Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 30. APRlL 2008 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR PÉTUR MAR FRÁ SKALLAGRlMI Bakvörðurinn Pétur Már Sigurðsson spilar líklega ekki með Skallagrími í lceland Express-deildinni á næsta tíma- *- ■ M ^ Þar sem ^ann Ir || eraðöllum j líkindum á leið í skóla á Laugar- vatni.„Það er Ijóst að ég verð ekki með Skallagrími ef við komumst inn í skólann en ég hef ágæta tilfinningu fyrir umsókninni." íagði Pétur I samtali við karfan.is. Pétur gerði 9,6 stig að meðaltali I leik fyrir Skallagrím I vetur sem hafnði 16. sæti deildarkeppninnar og féll úr leik eftir tap fyrir Grindavik í úrslitakeppninni. Pétur þykir góð þriggja stiga skytta og félög á Suðurlandi eru nokkur með körfuknattleikslið. Skemmst er að minnast þess aö FSU komst upp í úrvalsdeild fyrr í vetur. BREYTTURTfMI A N1 DEILD KARLA Slðasta umferð N1 deildar karla I handknattleik hefur verið færð framar að beiðni félaganna. (stað þess að leika slðustu Umferðina sunnudaginn 4. maíverður hún leikinn föstudag- inn 2. maí og laug- ardaginn 3. mal. Það verðaValur og Fram sem mætast á föstudeginum klukkan 201 Vodafone höllinni. Afturelding og Stjarnan mætast að Varmá klukkan 13.30 á laugardeginum og hálfri klukkustund síðar verður flautað til leiks I Digranesi, þar sem HK og Haukar mætast, og I KA-heimilinu .þar sem Akureyri tekur á móti IBV. Þetta kemur fram á vef HSI. BARRY SMITH MEÐVAL f SUMAR Ljóst er að Barry Smith verður áfram I herbúðum knattspyrnuliðs Vals I sumar en hann skrifaöi undir nýjan samning við Hllðarendapilta I gær. Barry kemur til landsins bráðlega en hann er að jafna sig eftir aðgerð. Smith hefur leikið með Greenock Morton I skosku 1. deildinni I vetur. Smith hefur leikið með Val síðustu tvö ár eða síöan hann kom til félagsins frá Dundee I Skotlandi vorið 2006. Smith stóð sig vel sem miðvörðurhjáVal þegarfélagið vann Islands- meistaratitilinn slðasta sumar. FH átti I viðræðum við kappann I febrúar en upp úr viðræðunum slitnaði þegar FH-ingarákváðu að semja við Halldór Kristin Halldórsson, leikmann Leiknis, I hans stað. 100 Ara afmæli fram Knattspyrnufélagið Fram fagnar 100 ára afmaeli félagsins 1. maí með hátlðarhöldum. Uppselt er á 600 manna hátíðarhöld félagsins á Gullhömrum á miðvikudagskvöld. Athygli vekur að hátíðarhöldin verða haldin I Grafarholti en þetta gamalgróna félag hyggst nú slfta sig upp með rótum og flytja starfsemi sína I Grafarholt. Samningur á milli Fram og Reykjavíkurborgar verður rjndirritaður I Safamýri á morgun og er stefnt að því aö byggja upp glæsilega aðstöðu til fþróttaiðkunar á næstu árum. Um kvöldið leika svo Fram og Valur I úrslitum Lengjubikars- ins en sá leikur fer fram I Kórnum I Kópavogi. Brasilíski snillingurinn Ronaldo hefur flækst inn í kynlífshneyksli í Rio de Janeiro. Ronaldo dvelur þessa dagana í Brasilíu þar sem hann er í endurhæfingu eftir alvarleg meiðsli á hné. Hann meiddist gegn Livorno í febrúar og óttaðist að ferillinn væri kominn á endastöð. Ronaldo hefur hins vegar sagt að hann ætli sér að spila á nýjan leik. En það er ekki vegna fótboltans sem Ronaldo er nú kominn í fréttirn- ar. í Brasilíu er sagt frá því að hann hafl eytt aðfaranótt sunnudags í faðmi þriggja klæðskiptinga á hóteli í Rio en ekki er vitað að Ronaldo hafi verið í því liði áður. Meðal klæðskipt- inganna var Andre Albertino, betur þekkt sem Andrea á götum Rio, sem sagði í viðtali að Ronaldo hefði gefið honum lyf og hótað að setja allt heila klabbið á Youtube ef hann héldi sér ekki saman. Ronaldo hins vegar hef- ur sagt að hann sé raunverulega fórn- arlambið. Honum hafi verið gefin lyf og þremenningarnir ætíað að kúga fé út úr honum. Allt fór í háaloft inni á herberginu þegar Ronaldo var kominn í góðan gír og ætlaðist til að fá eitthvað fyrir peninginn. Þegar hins vegar Litíi- Villi kíkti fram, ekki einu sinni heldur þrisvar, trompaðist þessi áður besti knattspyrnumaður heims. Þótt ÞORLEIFUR SAMDIVIÐ GRINDAVÍK Bakvörðurinn Þorleifur Ólafsson skrifaði nýlega undir nýjan samning við Grindavlk og spilar því með liðinu i lceland Express- deild karla á næsta ári. Samningurinn er til tveggja ára en Þorleifurvannsig inn i A-landsliðs- hóp Sigurðar Ingimundarsonar síðastliðið sumar. Þorleifur gerði 11,9 stig að meðaltali í leik fýrir Grindavík [ vetur. Aðeins Páll Axel Vilbergsson, Adam Darboe og Jonathan Griffin spiluðu meira en Þorleifur I liði Grindavíkur samkvæmt vefnum karfan.is. BENEDIKT BOAS HINRIKSSON DLEKKI bladamadur skrifar: „1990 segirðu, það er aldeilis," sagði Eiríkur Önundarson greini- lega forviða yfir hversu hratt tím- inn flýgur. Eiríkur segir að ÍR-lið- ið hafi verið ósigrandi í sjöunda, áttunda og níunda flokíd. „Þá vorum við ÍR-ingar taplausir í þessum árgangi þrjú ár í röð. Ætli þetta sé ekki síðasta árið. Þetta var því nokkuð vanafast að taka á móti titlum." Leikmenn ÍR í flokkn- um héldust þó nokkuð fram í meistaraflokldnn. Guðni Ein- arsson, Halldór Kristmanns- son, Márus Arnarsson, Er- lingur Snær Erlingsson svo einhverjir séu nefndir. „Það voru nokkrir sem fóru síðan í „high school" í Bandaríkjunum en síðan varð ekkert framhald á því. Þetta var mjög sterkur flokk- ur. Björn Leósson þjálf- aði okkur á þessum tíma og þetta var yfir- burðaflokkur á þessum tíma, þessi þrjú ár.“ Eiríkur var í Breiða- bliki í upphafi en eftir að Blikar lögðu körfu- boltadeildina niður færði Eiríkur sig um set yfir í Breiðholt- ið. „Reyndar var ég líka mikið í fótbolt- anum en þegar ég var að fara í sjöunda bekk tóku Blikar þá furðulegu ákvörð- un að leggja niður ímí-: .-«# yngri flokkastarfið í ’ ' körfunni. Það var ekki annað að gera en fara í annað lið og það var hægt að labba í Breiðholtsskóla. Það lá vel við og svo skemmdi ekki að þeir voru helvíti góðir. En ég varð ekki ÍR-ingur fyrr en þarna og hef verið síðan." Líklegt að skórnir séu komnir uppíhillu Eiríkur hefur ekki enn gert upp við sig hvort hann taki fram skóna á ný eftír GAMLA FRETTIN Gamla fréttin að þessu sinni er 18 ára. Þá birtist mynd af efnilegum drengjum í ÍR sem voru nýbúnir að tryggja sér íslands- og bikarmeist- aratitilinn í 9. flokki. Eiríkur Önundarson var í þessum flokki sem tapaði vart leik í þrjú ár. sumarfrí. Fréttir hafa borist af því að hann hafi leikið sitt síðasta tímabil með ÍR að undanförnu en Eiríkur vill ekkert gefa upp. „Það er frekar lík- legt að ég sé hættur. Ég er ekki alveg tilbúinn að skrifa það í stein. Maður er aðeins að skoða hvernig sumar- ið fer í mann. Þetta var orðið helvíti súrt þegar maður var í meiðslum og gat ekki beitt sér af fullum krafti. Þá er þetta ekki jafnskemmtilegt og það er nú lykilatriði að maður hafi gam- an af þessu. Annars er ekkert vit að vera í þessu. En maður á aldrei að segja aldrei." huoimel • islenda- Ofl bJKermolslerer ÍR I körfuknaHielk 9. Ilokks 1990: Blrglr Körason, Halldór Krletmanruson, Elrlkur ónundareon, Jónas Valdbnareson, Höróur Tulinlus, Erilngur Erl- Ingsson, Ólafur Thoódórsson, Sœmundur Vaidlmarsson, Ómar Hannosson, MArus Arnar- son, Guónl Elnarsson, Lellur Guómundsson, Davló Hauksson og Olalur Jóhannsson Þj&Uari drengjanna er Bjorn Leósson og aóstoóarmaóur hans er Gunnar Sverrlsson. FRÉTTIN FRÁ 1990 Eiríkur varð (slands- og bikarmeistari með ÍR árið 1990. LIGGUR UNDIR FELDI Eirikur meltir nú livort hann taki fram skona að nýju eftir sumartrí. Ronaldo notar óvenjulega aðferö við að ná sér af hnémeiðslum: Ronaldo kominn í hitt liðið?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.