Vestfirska fréttablaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 1
46. tbl. 10. árg.
vestfirska
8. nóv. 1984
FRETTABLAÐID
TIL REYKJAVIKUR
TIL AKUREYRAR
FLUGLEIÐIR
Verslunin
ísafiröi sími 3103
íslandsmót Sundsambandsins, 2. deild
Vestfirðingar sigursælir
— Bolvíkingar unnu sæti í 1. deild
Um síðustu helgi var haldið í
Reykjavík, íslandsmót sund-
sambands Islands í annarri
deild. Tvö lið frá Vestfjörðum,
frá Bolungarvík og Isafirði,
hrepptu tvö efstu sætin og fara
Bolvíkingar því upp í 1. deild.
Bolvíkingar unnu nokkuð
öruggan sigur og fengu 198.5
stig. Vestri frá ísafirði var svo
með 166 stig, í þriðja sæti varð
KR og svo komu hin liðin eitt af
öðru en alls kepptu 7 lið á mót-
inu. Bolvíkinga bíður nú erfið
barátta í 1. deild á næsta ári en
ef þeir halda sig á þeirri fram-
farabraut sem þeir hafa verið á
undanfarin ár, má reikna með
því að þeir ættu vel að geta
staðið uppi í hárinu á þeim lið-
um sem þar keppa.
Lið Bolungarvíkur, sem sigraði í 2. deildar keppninni. Við hlið Bolvíkinganna stendur Egill Bjömsson,
fyrirliði Vestra, en lið Vestra varð í 2. sæti. Ljósm. Mbl. Júlíus.
Ráðherra vill kvótakerfið
Vestfirðingar vilja skrapdagakerfið aftur
Fiskiþing var sett í Reykjavík á
mánudaginn. Að lokinni
setningarræðu fiskimálastjóra
flutti sjávarútvegsmálaráherra
ávarp þar sem m.a. lýsti þeim
vilja sínum að haldið yrði áfram
að stýra veiðum með kvótakerfi.
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við Jón Pál Halldórs-
son, framkvæmdastjóra Norð-
urtangans og varafiskimála-
stjóra og spurði hann frétta af
þinginu.
Aðalmál þingsins er tví-
mælalaust fiskveiðistefna næstu
ára og hafði Jón Páll framsögu 1
því máli á þriðjudaginn. Þar
lagði hann til að mótuð yrði
fiskveiðistefna til næstu 5 ára
þar sem leyfilegur hámarksafli
á þorskveiðum yrði á bilinu 315
— 385 lestir á ári og hámark
annars bolfisks yrði 270 — 330
tonn. Til samanburðar skal þess
getið að Hafrannsóknarstofnun
hefur lagt til að heildarafli
þorsks á næsta ári verði 200
þúsund lestir og af öðrum bol-
fiski verði ekki farið yfir 220
þúsund tonn. I ár er leyft að
veiða 250 þúsund tonn af þorski
og 270 þúsund tonn af öðrum
tegundum bolfisks.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Vf. hefur Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsraðherra
ákveðið að leggja fram frum-
varp til laga á Alþingi þar sem
honum yrði heimilað að stjóma
Rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi
Sjómenn vilja hærra verð
óvíst hvenær veiðar hefjast
Mikil óvissa ríkir nú um það
hvenær rækjuveiðar á Isa-
fjarðardjúpi hefjast þó að
Sjávarútvegsráðuneytið sé bú-
ið að gefa leyfi fyrir því að þær
hefjist n.k. föstudag.
Rækjusjómenn hafa sent
frá sér yfirlýsingu, sem birtist
á öðrum stað í blaðinu, þar
sem segir að þeir muni ekki
ráða sig í skipsrúm á rækju-
veiðum á meðan það verð er
greitt fyrir rækjuna sem Verð-
lagsráð sjávarútvegsins hefur
ákveðið.
Eigendur rækjubáta vilja
ekki heldur hefja veiðar nema
þeir fái greitt hærra verð fyrir
rækju, en það sem Verðlags-
ráð hefur ákveðið. Að sögn
Einars Hreinssonar hjá smá-
bátaeigendafélaginu Huginn,
gera þeir kröfu um sama verð
og greitt var á síðustu vertíð.
Það verð sem nú er greitt er
um 15% lægra.
Þeir rækjukaupendur sem
Vestfirska fréttablaðið hafði
samband við segjast ekki hafa
neinar forsendur til að greiða
hærra verð en lög gera ráð
fyrir og því gæti vel farið svo
að ekkert verði af rækjuveið-
um á ísafjarðardjúpi fyrr en
eftir áramót, en þá verður á-
kveðið nýtt rækjuverð.
veiðum næstu 3 ár. Sjávarút-
vegsráðherra lýsti þeirri skoðun
sinni á fiskiþingi að halda ætti
áfram með kvótakerfið á næsta
ári og tóku margir þingfulltrúar
í sama streng.
Vestfirðingar og Reykvíking-
ar á þingingu eru andvígir
kvótakerfinu og telja að það eigi
að setja skrapdagakerfið upp
aftur, sbr. tillögu síðasta Fjórð-
ungsþings Fiskideildanna á
Vestfjörðum, þar sem lögð var
fram tillaga um það hvemig
staðið skuli að skipulagningu
fiskveiða.
Jón Páll var spurður að því
hvort hann teldi það óhætt að
veiða 315 þús. lestir þegar Haf-
rannsóknarstofnun vill einungis
mæla með 200 þús. lesta heild-
arafla.
„Ég hefði aldrei lagt þetta til
fyrir ári síðan. Þá voru aðstæður
allt aðrar og alvarlegar blikur á
lofti. Það er öllum ljóst sem að
til þekkja að sjávarhiti hefur
hækkað mikið, það er miklu
meira æti í sjónum og stórauk-
inn afli á sóknareiningu, “sagði
Jón Páll og sagðist því telja það
alveg óhætt að leggja til að
veiðamar yrðu þetta mikið
meiri en Hafrannsóknarstofn-
um leggur til. Hann benti einnig
á það að sveifla úr 460 þúsund
tonna þorskafla niður í 250
þúsund á 4 árum og úr milljón
lesta loðnuafla 1978 og 1979
niður í ekki neitt árið 1982, væri
miklu meira en nokkur at-
vinnugrein gæti þolað.
Rafmagn
lagt í
Vigur
Orkubú Vestfjarða hefur
lagt rafmagn í Vigur og
fækkað með því þeim bæjum
á Vestfjörðum sem eiga eftir
að tengjast raforkukerfi
Orkubúsins.
Raflínan er lögð úr Ögri
niður í fjöru í Skötufirði og
síðan er sæstrengur sem er
tæpra 4 km. langur yfir í
Vigur. Kristján Haraldsson,
Orkubússtjóri, vildi koma á
framfæri ábendingu til sjó-
manna um að þeir hugi vel
að merkjum á þessu svæði og
gæti þess að hrófla ekki við
strengnum með veiðarfær-
um.
Enn er eftir að ieggja raf-
magn heim á nokkra bæi við
Isafjarðardjúp og Arnar-
fjörð. Sveitarafvæðingin er
kostuð af ríkinu og er Orku-
búið aðeins verktaki þess við
þessar framkvæmdir.
Broadway og
Flugleioir
Selja
helgarferðir
suður
Síðastliðið haust gekk veit-
ingahúsið Broadway fyrir
skemmtunum fyrir aldraða
borgara og nefndust herlegheit-
in, „Hin gömlu kynni gleymast
ei.“
Þessar skemmtanir urðu
mjög vinsælar og varð uppselt á
þær flestar. Nú er ætlunin að
fara aftur af stað með þessar
skemmtanir og í tengslum við
þær bjóða Flugleiðir, Broad-
way, Hótel Esja og Hótel Loft-
leiðir upp á sérstök kjör á flugi
og gistingu fyrir 67 ára og eldri.
Sem dæmi um verð má nefna
að ferð fyrir einn Isfirðing með
gistingu í tvær nætur, flugi og
aðgöngumiða á skemmtunina
er 2901 kr.
Flugleiðir og Broadway
hyggja einnig á samvinnu við að
selja landsbyggðarfólki helgar-
ferðir suður með innifalinn að-
göngumiða á skemmtun með
Ríó (hét Ríó tríó í gamla daga)
og 15 manna stórhljómsveit
Gunnars Þórðarsonar. Svona
pakki getur kostað 3.798 kr.
fyrir ísfirðing sem gistir í tvær
nætur í tveggja manna herbergi.