Vestfirska fréttablaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR
30. APRÍL 1992
11. TBL. 18. ÁRG.
SÍMI94-4011
Norðmönnunum var vel fagnað á ísafirði, eins og vera bar. Smári Haraldsson bæjarstjóri og Gunnar Jónsson skipamiðlari
hafnarstjóri (t.h.) færir norska skipstjóranum áletraða tertu. A henni stóð (á Ijúfustu norsku) á ísafirði og norski togarinn
Velkominn til Isafjarðar, Remöy! við hafnarkantinn.
Norskur rækjutogari umskipar
afla á ísafírði
— brotið blað í viðskiptum við erlend skip
I fyrrinótt (aðfaranótt mið-
vikudags) kom norski rækju-
togarinn REMOY frá Ála-
sundi til Isafjarðar. Skipið
hafði verið á veiðum á Dohrn-
banka og verður aflanum um-
skipað til útflutnings um Isa-
fjarðarhöfn. Hafnarstjórn Isa-
tjarðar tók á móti formlega á
móti skipinu ásamt bæjar-
stjóranum Smára Haralds-
syni.
Móttökuathöfn var á vegum
hafnarstjórnar í skipinu í
gærmorgun. „Þetta eru merki-
leg tímamót. því nú fá erlend
rækjuskip að landa hér á
grundvelli þeirra nýju laga,
sem sett hafa verið um landan-
ir erlendra skipa í íslenskum
höfnum. Við höfum lengi bar-
ist fyrir því að fá að þjónusta
skip. Frá gamalli tíð hafa út-
lend skip komið til ísafjarðar,
ekki síst norsk og hefur það
sett svip á bæinn og gefið
nokkuð í aðra hönd. Það hefur
vantað að þau fengju að landa
hér og nú er það fengið. Þetta
er góð viðbót við þær skipa-
komur sem við höfum. Þetta
er bæði efnahagslegt, félags-
legt og menningarlegt atriði.
Eg reikna með því að skipin
dreifist á íslenskar hafnir og
þau muni koma þar sem þeim
hcntar. Ef þau fá góða þjón-
ustu hér á ísafirði, sem ég veit
þau fá, þá óttast ég ekki að
þau komi ekki hingað", sagði
Smári Haraldson, bæjarstjóri
á Isafirði, en hann er einnig
hafnarstjóri, í samtali við VF
um borð i Remoy.
Gunnar Jónsson skipamiðl-
ari, sem er umboðsmaður
norsku skipanna, sagði í við-
tali við Vestfirska: „Ég vona
að þetta sé upphafið á löngum
ogfarsælum viðskiptum. Mað-
ur sér bara til hvernig til tekst
og hversu harða samkeppni
við fáum. Veiðitímabil rækju-
skipanna er búið 1. júní og
hefst aftur í haust. Það skiptir
auðvitað máli að þær landanir
sem eiga sér stað til 1. júní
lendi á réttri höfn og straumur
skipanna verði ekki markaður
annað. Viðskipti koma auðvit-
að ekki af sjálfu sér og í þeim
er samkeppni. Þess vegna
verður að vinna vel til þess að
standa sig í samkepninni. Ef
Kærkontin stund á ísafirði - norskur togari kaupir þjónustu af
heimamönnum. Frá vinstri: Gunnar Sigurðsson. Birkir Þor-
steinsson og Veturliði Veturliðason.
skipin fá góða þjónustu, þá
gengur þetta vei.“
Smári bæjarstjóri kvað það
vel mögulegt að sendir yrðu
menn til Noregs á næstunni ef
þeim sýndist eitthvert gagn af
þessu samstarfi.
Fyrirhugað er að útgerðar-
stjóri skipsins komi til ísa-
fjarðar og ræði við hafnaryfir-
völd um landanir skipa hans.
Hermann Skúlason, for-
maður hafnarstjórnar, sagðist
í samtali við Vestfirska vera
mjög ánægður með að skipin
væru farin að koma. „Ég vona
að hægt verði að veita þeim
góða þjónustu og laða þau
að“, sagði Hermann.
-GHj.
I. maí á Isafirði
- baráttufundur
í Alþýðuhúsinu
1. maí hátíðahöldin á ísafirði verða með hefðbundnu
sniði. Baráttufundur verður í Alþýðuhúsinu kl 14.00.
Smári Haraldsson bæjarstjóri flytur ræðu dagsins og er
hann fulltrúi Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum.
Ávörp flytja þau Ásdís Hansdóttir frá Verkalýðsfélaginu
Baldri og Tryggvi Sigtryggsson frá Félagi járniðnaðar-
manna á ísafirði. Baldur Geirmundsson flytur einleik á
harmonikku og Lúðrasveit ísafjarðar leikur baráttulög.
Stjórnandi er Sigurður Friðrik Lúðviksson.
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Alþýðuhúsinu kl.
>5.00 og aftur kl. 16.30. Sýnd verður ævintýramyndin
„Leitin að týnda lampanum“ eftir Walt Disney.
Sýning á verkum Reynis Torfasonar verður opnuð í
húsi Verkatýðsfélagsins Baldurs, Pólgötu 2, kl. 15.00.
Merki dagsins verða afgreidd til sölubarna 1. maí kl.
II. 00 í húsi Vfl. Batdurs, Pólgötu 2.
mwm
Freydís, hin nýja Fokker 50 vél Flugleiða, kemur í fyrsta sinn
til lendingar á Isafirði á laugardaginn eftir beint flug frá Amster-
dam. Sjá baksíðu.
Félag rækju- og hörpudisk-
framleiÖenda um kvóta
á úthafsrækju:
veikum grunni“
Á aðalfundi Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda,
sem haldinn var snemma í þessum mánuði, var samþykkt
samhljóða að flytja skrifstofu félagsins frá Reykjavík til
Akureyrar.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum: „Fyrir
liggur yfirlýsing fiskifræðinga að ekki sé vitað með vissu
um stofnstærð úthafsrækju við Island og svo virðist sem
úthafsrækjukvótar fram til þessa séu meira eða minna
ágiskanir á veikum vísindalegum grunni. Fundurinn fagn-
ar ákvörðun um fjölstofna rannsóknir, sem vænta má
niðurstöðu úr eftir 4 til 5 ár. Þar til niðurstöður slíkra rann-
sókna liggja fyrir bendir fundurinn á nauðsyn breytts fyrir-
komulags úthafsrækjuveiða. Skorar fundurinn því á
sjávarútvegsráðherra að rýmka nú þegar veiðiheimildir á
úthafsrækju."
Stjórn félagsins skipa Halldór Jónsson Hvammstanga
formaður, Guðmundur Agnarsson ísáfirði, Auðunn Karls-
son Súðavík, Ari Guðmundsson Siglufirði, og Ellert Krist-
insson Stykkishólmi. I varastjórn eru Soffanías Cecilsson
Grundarfirði, Þorsteinn Erlingsson Keflavík og Óttar
Yngvason Reykjavík.
Lárus Jónsson lét af starfi framkvæmdastjóra félagsins
á árinu en við tók Pétur Bjarnason.
Muggur kaupir Hrað-
frystihús Ólafsvíkur
GuðmundurTryggvi Sigurðsson útgerðarmaður, rækju-
vinnslumaður og fiskverkandi úr Hnífsdal hefur keypt
Hraðfrystihús Ólafsvíkur af Fiskveiðasjóði og mun hefja
þar vinnslu á næstu dögum.
Guðmundur er betur þekktur á heimaslóðum undir nafn-
inu Muggur. Hann er nú búsettur á Hvammstanga og
kemur víða við sögu i útgerð og vinnslu (t.d. Leiti hf í
Hnífsdal, Meleyri á Hvammstanga, Jöfur KE, Hersir HF
og Siggi Sveins ÍS). Og nú bætir hann á sig frystihúsi á
Snæfellsnesi með vínnslulínum fyrir þorsk, karfa, kola og
rækju.
Bíldudal.
Mannlaus bifreið rann af veginum við Haganes við Bíldudal
ofan í fjöru á sumardaginn fyrsta. Ökumaður hafði skroppið út
til að taka nokkrar myndir.
Mikið hvassviðrí var þegar óhappið varð. Eftir að maðurinn hafði
lokið myndatökunni hugðist hann fara aftur í bifreiðina en sá þá hvar
hún rann niður hlíðina, sem er brött og 10-15 metra há, og hafnaði á
hliðinni í grýttri fjörunni.
Hjálp barst fljótt og gekk vel að ná bílnum upp. Hann er af gerðinni
Volvo Lapplander, ökufær eftir óhappið, en nokkuð skemmdur á
annarri hliðinni.
R. Schmidt.
Fermingargjafir í úrvali
Hljómtækjasamstæður ■ 14“ sjónvörp ■ Ferðatæki m/geislaspilara ■ Upptökuvélar
Ferðatæki m/án kassettu ■ Vasadiskó ■ Hársnyrtivörur ■ Útvarpsvekjarar
Headphonar og.
VÖNDUÐ TÆKIÁ JAPIS VERÐI
öóóódýr
VERSLUN & ÞJÓNUSTA
PÓLLINN HF.
Verslun ‘S* 3092