Feykir - 16.04.1986, Blaðsíða 10
10 FEYKIR 8/1986
umsjón:
Þórhallur Ásmundsson
Tindastóll upp í fyrstu deild
Það fór aldrei svo að
strákarnir skiluðu sér ekki upp í
fyrstu deild fyrir rest. Síðustu
leikir úrslitakeppni annarrar
deildar Islandsmótsins í körfu-
knattleik fóru fram um næst
síðustu helgi.
í úrslitaleiknum í Borgarnesi
gegn Skallagrími var hver taug
spennt til hins ítrasta hjá
Tindastólsmönnum, nú var að
duga eða drepast. Og þegar mest
á reyndi sprakk liðið gjörsamlega
út eins og rós. Drengirnir léku
eins og englar allan leikinn og
áhorfendur gátu ekki stillt sig
um að klappa þeim lof í lófa, þó
þeir væru flestir á bandi
heimamanna. Dómarar leiksins
létu líka þau orð falla eftir
leikinn, að þeir hefðu ekki séð
jafn léttleikandi og skemmtilegt
lið í vetur eins og Tindastólsliðið
þetta kvöld. Tindastóll sigraði í
leiknum 95-63, eftir að hafa haft
yfir 45-38 í hálfleik og náðu
Borgnesingar aldrei að ógna
forystu þeirra. Þeir Kári Marís-
son þjálfari liðsins og Eiríkur
Sverrisson skorðuðu mest fyrir
Stólana rúm 20 stig, Eyjólfur
aðeins minna og þeir Birgir
Rafns, Halli Leifs og Kalli Jóns
12 stig. Allir leikmenn liðsins
stóðu sig mjög vel.
Eftir leikinn í Borgarnesi
héldu nokkrir leikmanna heim,
þar sem síðasti leikur keppninnar
gegn HSK á Selfossi skipti engu
máli. Sá leikur hefur sjálfsagt
ekki verið tekinn nógu alvarlega
og tapaðist 50-51. En hvað um
það Tindastóll er kominn upp í
fyrstu deild og verður gaman að
fylgjast með liðinu næsta vetur.
Af þessu tilefni sneri tíðinda-
maður Feykis sér til Þorgeirs
Inga Njálssonar formanns körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls (en
að sögn kunnugra hefur hans
atorka vegið þungt á metunum í
sambandi við velgengni liðsins).
Þorgeir er ættaður frá Stykkis-
hólmi en réðst að loknu
lögfræðinámi til starfa sem
fulltrúi sýslumanns og bæjar-
fógeta á Sauðárkróki síðast liðið
vor.
Hann hafði frá fyrri tíð æft
körfubolta í Stykkishólmi og
síðan í Reykjavík.
„Viðamikið starf íþrótta-
félaganna hvílir því miður í
flestum tilvikum á herðum alltof
fárra manna. Tindastóll er engin
undantekning, þar vantar fólk
til starfa. Ég hef talsvert unnið
að þessum málum á undan-
förnum árum og haft á þeim
áhuga. Var formaður knatt-
spymudeildar Snæfells í Stykkis-
hólmi á menntaskólaárunum og
síðan gjaldkeri knattspymudeildar
FH og stjórnarmaður í hand-
knattleiksdeild sama félags
þegar ég stundaði lögfræði-
námið. Þegar ég síðan vildi
leggja hönd á ' plóginn í
kraftmiklu starfi Tindastóls var
mér að sjálfsögðu vel tekið, eins
og öllum sem þessum málum
vilja leggja lið og það varð úr að
ég tók að mér formennsku í
körfuknattleiksdeildinni” sagði
Þorgeir um aðdragandann að
afskiptum hans af körfuknatt-
leik hér á Sauðárkróki.
Hann sagði ennfremur: „Fljót-
lega eftir að við hófum æfingar
gerði ég mér vonir um sigur í 2.
deild og þær vonir glæddust
alltaf eftir því sem leið á
veturinn. Við vorum á sigur-
braut, leikmenn tóku miklum
framförum, nýir leikmenn bættust
í hópinn og nýja íþróttahúsið
var tekið í notkun. Við bættist að
æfingasókn var góð og síðast en
ekki síst höfðum við frábæran
þjálfara, Kára Marísson, sem
með mikilli röggsemi hélt
mannskapnum við efnið.
Það var alltaf eitthvaðjákvætt
að ske og menn gerðu sér grein
fyrir því að loksins væri
grundvöllur fyrir því að Tinda-
stóll keppti af alvöru að 1.
deildarsæti og sá draumur
rættist. Sigurinn var að mínu
mati aldrei í verulegri hættu.
Ég er bjartsýnn á framtíðina.
Það er trú mín að liðið komi til
með að halda sæti sínu í 1. deild.
Þorgeir I. Njálsson
Liðið er mjög ungt og við eigum
marga efnilega einstaklinga í
yngri ílokkunum. T.d. varð 3. fl.
í 2. sæti Islandsmótsins nú í
vetur sem er fráþær árangur,
árangur sem lofar góðu um
framhaldið.
* *
Auglýsing
um tillögu að deiliskipulagi fyrir gamla bæinn á Sauðárkróki og breytingar
á aðalskipulagi Sauðárkróks.
Samkvæmt 17. gr. laga nr. 19/1964 er hér með auglýst eftir athugasemdum
við tillögu að deiliskipulagi fyrir gamla bæinn á Sauðárkróki.
Tillagan nær yfir svæði frá Gránuklauf að norðan suður að Knarrastíg,
Skólastíg og Faxatorgi. Að austan afmarkast svæðið af sjó og af Nöfum að
vestan. Samkvæmt tillögunni verða eftirtaldar breytingar á aðalskipulagi
Sauðárkróks 1982-2002:
• Tenging Aðalgötu við Strandveg flyst frá svæði gegnt Gömlu bryggju
norður að Klakstöð.
• Kambastíg (Kristjánsklauf) verður lokað fyrirakstri milli Skógargötu og
Kaupvangstorgs. ;•
• Lindargötu verður lokað fyrir akstri við Kaupvangstorg.
• Bjarkargötu (Freyjugötu) verður lokað fyrir akstri austan við
Aðalgötu nr. 18.
• Ný gata, Lindarbrekka, verður lögð frá norðurenda Skógargötu norður
á Lindargötu á móts við nýja tengingu Aðalgötu og Stfandvegar.
• Aðalgata verður vistgata.
• Iðnaðarsvæði milli Freyjugötu og Strandvegar verður íbúðarsvæði.
Uppdrættir, ásamt greinargerð, verða til sýnis á bæjarskrifstofu Sauðárkróks
við Faxatorg frá 23. apríl n.k. til 4. júní n.k. á venjulegum opnunartíma.
Hlutaðeigandi ber að skila athugasemdum sínum til bæjarstjóraeigi síðaren
18. júní n.k. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillöguna.
4. apríl 1986
Skipulagsstjóri ríkisins
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki
Þórður Þórðarson
ípróttir
Þrír
r
Islandsmeistarar
Það er vonum seinna að geta
frábærs árangurs skagfirskra
ungmenna á Meistaramóti íslands
innanhúss í flokki 12 ára og
yngri 1.-2. mars sl. Krakkarnir
stóðu sig frábærlega vel og unnu
m.a. þrjá Islandsmeistaratitla.
Atli Guðmundsson Fram sigraði
í 50 m hlaupi á 7,0 sek. og í
langstökki stökk 4,56 m.
Sigurlaug Gunnarsdóttir T.
sigraði í hástökki stökk 1,40 og
varð önnur í langstökki stökk
4,23 m. Þá varð Sæmundur
Sæmundsson Gl. þriðji í há-
stökki. í flokki 13-14 ára
hafnaði Sveinn A. Sæmundsson
Gl. í fjórða sæti í langstökki.
r
Iþróttamaður
Skagaflarðar
Á ársþingi UMSS í lok síðasta
mánaðar var ungur sprett-
hlaupari úr Tindastól, Friðrik
Steinsson útnefndur íþróttamaður
Skagafiarðar 1985. Friðrik náði
mjög góðum árangri á síðasta
ári, nú síðast á meistaramóti
Islands innanhúss í sínum
aldursflokki.
Glæsilegur
sigur
Krakkar úr Norðurlandskjör-.
dæmi vestra sigruðu í skólamóti
FRÍ, sem haldið var um fyrri
helgi. Þetta er í annað sinn sem
þátttakendur hér úr kjördæminu
vinna þessa árlegu keppni. Er
það stór glæsilegt ef miðað er við
títtnefnt íbúahlutfall.
Þátttakendur í mótinu eru 14
ára og yngri í tveimur aldurs-
hópum. Kléppnisstaðir eru í
Laugardalshöll og Baldurshaga.
Alls eru 8 fulltrúar frá hverju
kjördæmi og keppir hver þeirra í
tveimur greinum auk boðhlaups,
en greinarnar til samans eru 17.
Fræðslustofnanir í kjördæm-
unum sjá um val keppenda og
styðja þá til fararinnar. Fyrir
hönd Éræðsluskrifstofunnar á
Blönduósi valdi Þorsteinn Sigurðs-
son form. Iþróttanefndar USAH
keppendur úr kjördæminu og var
hann og fararstjóri.
(mó)
Ný fiugvél á Krókinn.
Sjö einstaklingar á Sauðárkróki tóku sig fyrir nokkru saman ásamt
Flugfélagi Sauðárkróks og keyptu 2ja sæta fiugvél af gerðinni Cessna
150. í stuttu spjalli við Stefán Kvertsson einn eigendanna, kom m.a.
fram að fiestir þeirra félaga eru algjörir byrjendur í fiugi. Þeir
hyggjast nú bæta úr þessu og setjast á skólabekk undir leiðsögn Finns
Þórs Friðrikssonar fiugkennara. /j„;\
Hinar frábæru Canon
reiknivélar fást hjá okkur
Gott verð
Viö erum óútreiknanlegir
í samningum
IMOIQéW-
SÆMUNDARGÖTU 1 - 550 SAUÐÁRKRÓKI
N.NR. 9343-3947 - SÍMI 95-5051