Feykir - 22.06.2005, Blaðsíða 4
4 Feytdr 24/2005
Brrrrrrrúúúúúúúúmmmmmm... tekið á þvi i drulluspyrnunni sem var frébær skemmtun.
Haldið upp á 100 ára afmæli mótorhjólsins á Sauðárkróki
Ámilli 1000-1500
manns í afmæiinu
„Afhjupun minnismerkisins var tvimælalaust
hápunkur hátíðarinnar," sagði Helga Eyjólfsdóttir,
einn skipuleggjenda afmælishátíðarinnar. Helga var
jafnframt eini kvenkyns keppandinn í
vélhjólakeppnunum helgarinnar.
Veðursins vegna voru
þátttakendur eitthvað færri en
vonir stóðu til, en þó er áætlað
að á bilinu 1200-1500 manns
hafi verið á svæðinu þegar mest
var. Þrátt íyrir að veðurguðirnir
hafi ekki verið hliðhollir
hjólafólkinu skemmti bæði
það og aðrir áhugasamir áhorf-
endur sér vel við að fylgjast
með hinum ýmsu vélhjóla-
keppnum sem frarn fóru
víðsvegar um bæinn á laugar-
deginum. Að mati Helgu stóð
aflijúpun minnismerkisins í
Varmahlíð á sunnudeginum
uppúr öllum dagskrárliðum á
hátíðinni, enda tilfinninga-
þrungin stund fyrir marga,
sérstaklega þá sem hafa misst
einhverja nákomna sér í
bifhjólaslysum.
Að veðrinu undanskildu
voru forsvarsmenn hátíðar-
innar mjög ánægðir með
hvernig til tókst og höfðu á
orði hversu vel hafi verið tekið
á móti þeirn. Vildu þeir koma á
framfæri þökkum til bæði
sveitarstjórnarinnar f>TÍr fram-
úrskarandi góðar undirtektir
og aðstoð við undirbúning
hátíðarinnar, þeirra fyrirtækja
sem styrktu þá með ýmsum
hætti og þá ekki síður til íbúa
Skagafjarðar tyrir að taka svo
fordómalaust á móti þeim sem
raun varð á.
Spyrnukappar á 25 ára gömlum hjólum þóttu flottir.
Nokkrir áhorfenda á götuspyrnunni - fjöldi fólks fylgdist spennt með keppninni.
Vígalegir drulluspyrnarar bíða eftir að röðin komi að þeim.
Fjöldi stórglæsilegra hjóia mátti sjá á Króknum og glöddu augu.
Ahorfendur áttuá tíðum fótum fjör að launa þegar drullukökurnar þeyttust út iloftið
undan spóli hjólanna. Ekki voru reyndar allir sem sluppu!