Feykir


Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 7

Feykir - 11.06.2009, Blaðsíða 7
23/2009 Feykir 7 Leikkona, leikstjóri, höfundur Sólveig mun sjálfleika mömmu Lykils auk þess að leikstýra verkinu. Lykill er aftur á móti leikinn af Sigurlaugu Vordísi. -Við erum alls 13 leikarar og flytjendur sem komum fram á sýningunni auk þess sem við erum með live fiðluleikara og saxafónleikara líka. Við erum í raun tveir hópar sem höfum verið að æfa verkið. Við hér fyrir norðan og síðan eru stelpur fyrir sunnan sem hafa æft undir dyggri leiðsöng Hreindísar Ylvu Garðsdóttur Holm en hún fékk til Uðs við sig ungar stelpur sem hafa mikla reynslu af söng og leik. Hreindísi til aðstoðar hefur verið Petra Pétursdóttir danshöfundur. Þetta eru frábærar stelpur allar saman og söngleikur er algjör ástríða hjá þeim. Við tókum góða æfingahelgi hér fýrir norðan um daginn og þá opnaði hún Erla Gígja, amma Hreindísar Ylvu, heimili sitt fyrir þeim. Það er svo dásamlegt hvað allir sem ég hef þurft að leita til hafa verið tilbúnir að hjálpa og ég hef allsstaðar mætt svo mikilli jákvæðni. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum sem hafa aðstoðað mig á einhvern hátt. Hefur þú leikstýrt áður? -Nei, en einhvertímann er allt fyrst. Ég hef bara svo sterkar skoðanir á því hvernig þetta á allt að saman að vera að það hefði aldrei gengið upp að hafa einhvern annan sem leikstjóra, svarar Sólveig og hlær. - Annars þarf lítið að leikstýra þessu frábæra fólki. Þegar ég settist niður með Sigurlaugu (LykU) og hún fór að lesa rulluna sína hljómaði hann frá henni nákvæmlega eins og ég heyrði hann þegar ég var að skrifa. Þetta algjörlega smaU enda SiUa frábær leikkona. Svo leikur þú sjálf. -Já ég leik mömmu hans LykUs sem er að leita að honum í gegnum sýninguna. Síðan samdi ég og syng sj álflokalagið í sýningunni þar sem mamma Lykils syngur tU hans. Einar Bragi Bragason, tónlistarstjóri sýningarinnar hefur útsett lagið frábærlega og ég er mjög ánægð. Eins samdi ég stefið sem hljómar í lokin á meðan við þökkum áhorfendum fyrir komuna. Önnur tónUst í verkinu kemur úr hinum ýmsu áttum en það var rosalega mikU vinna að afla sér upplýsinga um hvert ætti að sækja og ganga frá leyfum fyrir henni sem og fyrir myndbrotunum sem ég nota í sýningunni. Þetta stendur víst ekki í neinni handbók eða er kennt í áfanganum „sótt um Kristófer og Kolbrún leyfi 101„- segir Sólveig og hlær. -En allt hafðist þetta nú á endanum, ég kann þetta næst. Ég skU það mikið betur núna afhverju það er ekki gert meira af því að setja upp svona sýningar, útskýrir Sólveig. Hefur þú samið tónlist áður? -Já, ég get eJdd neitað því. Ég fæ oft melódíur í hugann en það er eklci fyrr en nú í seinni tíð sem ég er farin að passa betur upp á þær og geyma. Ég hef hins vegar aldrei unnið neitt með þær áður en á pottþétt eftir að gera meira af því. Þetta er svo rosalega skemmtUegt. Langar aó sýna verkió víóar Aðspurð segir Sólveig að sig langi að sýna verldð á fleiri stöðum. Þetta er svo sannarlega ekki verkefni sem maður vinnur til þess að fá eitthvað í vasann, tæknilega hliðin á svona sýningu er óhjákvæmUega mjög dýr, útsetning á tónlist, leiga á búnaði, sviðsmynd, öll leyfi og annað slíkt. Draumurinn er, ef útkoman verður réttu megin við núUið, að reyna að fara eitthvað meira með þetta, heimsækja nálægar sveitir kannski. Við verðum nú reyndar trúlega með JUuta af stykldnu á Kántrýdögum á Skagaströnd en Heba Líf Jónsdóttir sem leikur Línu langsokk í sýningunni er einmitt frá Skagaströnd. Hún fær því tækifæri til þess að skemmta sínu fólld sem vonandi fjölmennir lílca á sýninguna þann 17. júní á Sauðárlcróki. Stefnir þú á að gera eitthvað meira af svona löguðu? -Já, af hverju eJdd. Það eru reyndar ekki mörg tækifæri til þess að gera eitthvað svona en þá verður maður bara að vera duglegur að skapa þau sjálfur eldd satt. Kannsld er þessi sýning mín bara upphaf að einhverju meiru. Maður er aUavegana búin að læra mikið af því að setja upp þessa sýningu og er þá frekar tilbúin til þess að fara út í eitthvað meira núna., segir Sólveig skælbrosandi að vanda. Sýningin verður eins og áður segir þann 17. júní og hefst klukkan 17:00. Miðaverð verður lcrónur 1500 fyrir fimm ára og eldri. Sigurlaug Vordís og Sálveig sem Lykill og mamma hans Ástir á tímum ömmu og afa Sönn ástarsaga kemst á prent Út er komin bókin Ástin á tímum ömmu og afa eftir Önnu Hinrilcsdóttur. Er bólcin byggð á bréfum og dagbókum Bjarna Jónassonar - kennara, sveitahöfðingja og samvinnumanns í Húnaþingi á öndverðri 20. öld. útkominni bókarinnar býður höfundur til dagskrár í félagsheimilinu Húnaveri sunnudaginn 14. júní kl. 15. V „ Anna! Viltu verða konan mín? Heldurðu að þú getir elskað mig? Jeg bið eldd einungis um hönd þína, jeg bið um hjarta þitt. Eigi jeg ekld enn hug þinn, vonast jeg eftir að geta unnið hann, því ástinni er ekkert ómáttugt." Bjarni Jónasson biðlaði fyrst bréfleiðis til Önnu Sigurjónsdóttur 4. febrúar 1920 og lét elcki hugfallast þó hann fengi afsvar í fyrstu. í bókinni Ástin á tímum ömmu og afa er ástarsaga þeirra rakin í gegnum fjölda bréfa Biarna til Önnu og dagbækur hans frá árunum 1908-1926. Bjarni var kennari, fræðimaður, bóndi og sveitarhöfðingi í Bólstaðarhlíðarhreppi og Anna var húsmóðir á bújörð þeirra hjóna. Þau voru meðal helstu máttarstólpa í sinni heimasveit og áttu ríkan þátt í uppbyggingu samfélagsins í Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhlfðarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu drjúgan hluta tuttugustu aldar. Þá tóku þau Anna og Bjarni mikinn þátt í sóknarstarfi í Bólstaðarhlíðarkirkju og uppbyggingu félagsheimilisins Húnavers. Anna var ennfremur meðal stofnfélaga kvenfélags sveitarinnar og vann alla tíð mikið starf í þágu félagsins. í bókinni er stiklað á stóru um lífshlaup Önnu og Bjama en einkum dvalist við þriðja áratug tuttugustu aldar - fyrstu kynni, tilhugalíf og fyrstu hjúskaparár. Bréf Bjarna og dagbækur segja ekki aðeins sögu þeirra hjóna heldur draga einnig upp lifandi mynd af lífi alþýðufólks til sveita og íslensku samfélagi þess tíma. Þá segja bækumar merka sögu af ferð sveitapilts til mennta upp úr aldamótunum 1900 en Bjarni hleypti ungur heimdraganum og sótti menntun til Kennaraskóians í Reykjavík á fyrstu starfsámm skólans. Lokaverkefni Önnu til M.A prófs Ástin á tímum ömmu og afa var lokaverkefni höfundar, Önnu Hinriksdóttur, til M.A.-prófs í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Islands. Anna er dótturdóttir Bjarna Jónassonar og Önnu Margrétar Sigurjónsdóttur, dóttir Kolfinnu Bjamadóttur, kennara í Reykjavík. Anna hefur unnið við miðlun af ýmsum toga - ritstörf, þýðingar, dagskrárgerð í sjónvarpi, vefmiðlun og hönnun sögusýninga - síðan hún lauk B.A.-námi í kvikmynda- og fjölmiðlafræði 1991. Ástin á tímum ömmu og afa kom út 23. apríl sl. Verkið er gefið út af Háskólaútgáfunni í fræðibókaritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar sem ritstýrt er af sagnfræðingunum Davíð Ólafssyni, Má Jónssyni og Sigurði Gylfa Magnússyni.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.