Víkurfréttir - 24.05.1984, Blaðsíða 1
Suðurnesjamenn
gráta þurrum tárum
Eigum við Suðurnesja-
menn þá að votta Eimskipa-
félagi Islands samúð? Nei,
síður en svo. Það hefurekk-
ert viljað gera fyrir okkur,
fyrr en nú, þegar þeir sjá að
þeir missa flutninga okkar
yfir til annarra. Því grátum
við þurrum tárum, þó
Eimskip tapi þessum flutn-
ingum. - epj.
- þótt Eimskip tapi flutningum fyrir Varnarliðið
Að undanförnu hefur
mikið verið um það rætt í
ákveðnum fjölmiðlum, að
Eimskipafélag íslands, það
sama og áður gekk undir
nafninu „óskabarn þjóðar-
innar" og átti 70 ára afmæli
á dögunum, væri nú að
missa flutninga fyrir Varn-
arliðið. í Morgunblaðinu
hefur mikið verið rætt um
það geysilega tap sem Eim-
skip yrði fyrir ef þessum
málum yrði ekki bjargað í
þá átt að Eimskip fengi aftur
flutningana, en ekki hið
bandaríska skipafélag, sem
nú hefur yfirtekið þessa
flutninga.
En hvað erum við Suður-
nesjamenn að syrgja þessa
málalyktan? Eimskip hefur
ekki talið neina ástæðu til
að verða við óskum okkar
um að höfnin i Njarðvík yrði
notuð fyrir þessa flutninga,
- ekki fyrr en nú, að séð var
fram á að félagið gæti hugs-
anlega haldið í þessa flutn-
inga, ef þeir kæmu hér í
gegn.
Eimskip hefur hvað mest
breytt þeirri þróun, að
öllum vörum sem fara eiga
með því skipafélagi, yrði
ekið til Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur til útskipunar
og þeim vörum sem hingað
eiga að koma sé skipað upp
í þessum sömu höfnum.
Þessu til staðfestingar skal
bent á viðtal við Hörð Sigur-
gestsson, framkvæmda-
stjóra Eimskips, i Morgun-
blaöinu sl. haust.
Það var fyrst eftir að Haf-
skip-Suðurnes var stofnað,
að Eimskip fór að sýna
okkur eðlilega þjónustu og
bjóða gull og grænaskóga,
ef við skiptum áfram við það
fyrirtæki. Hafskip hefur
aftur á móti talið sjálfsagt
að verða við þessum óskum
Suðurnesjamanna, og
sama er varðandi hið
bandaríska skipafélag, sem
nú tekur við Varnarliðs-
flutningunum.
Ný lög um Hitaveitu Suðurnesja:
Yfirtekur alla orku-
veitu á Suðurnesjum
- þar á meðal sölu á raforku
Rétt fyrir sl. helgi sam-
þykkti Alþingi ný lög um
Hitaveitu Suðurnesja, sem
kveða meðal annars á um
það að Hitaveita Suður-
nesja spanni yfir allt það
sem Orkubú Suðurnesja
átti að taka til. Verður til-
gangurinn því framvegis sá,
að HS tekur að sér að virkja
jarðhita í Svartsengi og ann-
ars staðar á Reykjanesi, ef
hagkvæmt þykir. Einnig
mun HS taka að sér að reisa
og reka orkuver, aðveitur
og orkudreifikerfi á starfs-
svæði hennar og annast
Framh. á 14. sfðu
„Allt morandi I marhnút. . . “
- segja veiðigarpar í Keflavíkurhöfn
,,Þa6 er allt morartdi í marhnút hérna", sögóu tveir ungir veióigarpar, sem blaðamaóur
Vikur-frétta hitti nióri við Keflavikurhöfn. Hvaö geriö þið svo við fenginn? ,,Ekki neitt". Er
ekki séns að seij’ann? „Nei, hann er svo Ijótur að það vill hann enginn", sögðu þeir veiði-
garparnir sem hurfu á brott með þann Ijóta". - pket.
Orkuverið i Svartsengi.
Ný lög frá Alþingi:
Keflavíkur- og Njarðvíkur-
bær yfirtaki Landshöfnina
- en ríkissjóður taki á sig áhvílandi skuldir
Eitt þeirra frumvarpa sem
urðu að lögum nú á loka-
spretti Alþingis var varð-
andi breytingu á hafnalög-
um. En þar er m.a. kveðið á
um að Landshöfnin Kefla-
vík/Njarðvik verði afhent
sveitarfélögunum til eignar
og reksturs.
Sl. haust var viðkomandi
sveitarstjórnum sent málið
til umsagnar og hefur verið
greint frá svari Njarðvíkinga
um málið, sem töldu sig til
viðræðu um málið, en
bæjarstjórnin taldi sig þar
með á engan hátt skuld-
bundna í afstöðu t il
málsins.
Fyrr í þessum mánuði var
málið tekið fyrir í efri deild
Alþingis og þar kom fram
vilji þingmanna á að hafn-
irnar verði afhentar Kefla-
víkur- og Njarðvíkurbæ til
eignar, en að ríkissjóður
taki á sig áhvílandi skuldir.
Fyrir nokkrum misserum
urðu miklar umræður um
þessi mál hér í Víkur-frétt-
um, enda er ekkert eðlilegt
lengur að ríkissjóður reki
þessar hafnir frekar en aðr-
ar hér syðra. Auk þess sem
hægt er að gera ýmsar
breytingar varðandi rekstur
þeirra frekar, þegar
sveitarfélag ræður ríkjum,
en þegar stóri bróðir, hinn
hálftómi ríkiskassi á að ráða
öllu. - epj.
Frá Njarðvikurhöfn.