Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.05.1985, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 04.05.1985, Blaðsíða 1
Nemendur 9. bekkjar Grunnskóla Njarðvíkur: Uppvísir að grófu símaati í síðustu viku upplýst- ist ljótt athæfi nokk- urra nemenda í 9. bekk Grunnskóla Njarð- víkur. Höfðu þeir haft gaman að því að hringja heim til for- eldra barna í skólanum og tilkynna þeim að börn þeirra hefðu verið staðin að þjófnaði ým- ist í skólanum eða ann- ars staðar, og ættu því að mæta vegna málsins til viðkomandi yfír- valda. Þegar foreldr- arnir fóru að kanna málið nánar komu krakkarnir af fjöllum svo og viðkomandi aðilar sem áttu að hafa hringt. Þóttist sá sem hringdi ýmist vera skólastjóri, lögreglan eða ýmsir þekktir stjórnunaraðilar, og var leikur þessi gerður til að hrella viðkom- andi. Er hér um mjög grátt gaman að ræða sem er til þess eins fall- ið að vera fordæmt harðlega. Vonandi hafa skólayfírvöld því tekið föstum tökum á málinu núþegar. - epj. Frá sumardeginum fyrsta Ofanbyggðarvegur enn Sjá frásögn og fleiri myndir inni í blaðinu. ir sitja í fyrirrúmi en vitað, er að Hagvirki hefur boðið utanríkisráðuneytinu og aðalverktökum þjónustu sína annað hvort sem und- irverktaki eða með leigu á stórvirkum tækjum. Tæki þessi voru notuð við gerð virkjana á hálendinu og eru þau einu sinnar tegundar hérlendis. Jóhann Bergþórsson framkvæmdastjóri Hag- virkis hafði samband við blaðið og benti m.a. á þá staðreynd að mikill fjöldi Suðurnesjamanna starfar hjá fyrirtækinu, auk þess sem stærsti hluthafinn sé úr Njarðvíkunum. Þeir ættu því tvímælalaust líka rétt sem heimamenn. Hins vegar hefðu verk- takasamtökin unnið að því að „opna “ flugvöllinn fyrir meðlimum samtakanna og rjúfa þannig einokun aðal- verktaka. Hagvirki tilheyr- ir raunar ekki verktaka- samtökunum. -ehe. zzFyllti bátinn af ufsazz Hann Meinert Nilsen sem lengi hefur verið hér í hópi trillukarla í Njarðvík, sýndi það og sannaði sl. laugardag, að stundum má setja í bátinn þann afla sem hann ber, eða svo gott sem. En þá kom hann með bát sinn Gilmi GK 174 næstum fullan af ufsa til hafnar í Kcflavík. Aflann, á 3. tonn, hafði hann fengið ásamt Arnari syni sínum út af Garðskagaflösinni á handfæri. Sést Meinert á með- fylgjandi mynd í bátnuð áður en löndun hófst. - epj./ehe. á teikniborðinu -en framkvæmdir heljast á þessu árí Samkvæmt upplýsingum sem við höfum aflað okkur frá Islenskum Aðalverktök- um og varnarmáladeild utan ríkisráðuneytisins er fyrir- hugað að hefja framkvæmdir við svk. ofanbyggðaveg og flugvélastæði við nýju flug- stöðina eins fljótt og unnt er. Hönnun vegarins er að mestu lokið, en enn munu þó vera einhverjir lausir endar sem varnarliðið vill hafa lokaorðið um. Varðandi framkvæmd verksins, er talið líklegt að Suðurnesjamenn verði látn- Nýta verður vatnsauð- lind okkar með gát -stofnunin staðfestir ótta Suðurnesjamanna nesskaga, þá er samt langt frá því, að það sé óþrjótandi' segir í greinargerð sem Orkustofnun hefur sent frá sér og er samin af þeim Freysteini Sigurðssyni og Jóni Ingimundarsyni deild- arstjórum á Vatnsorkudeild stofnunarinnar. „Þó mikið vatn renni til sjávar á utanverðum Reykja Gijót af vörubflspalli veldur tjóni Sl. föstudag ók bif- reið á grjót sem hafði fallið af vörubílspalli eða dráttarvagni við gatnamót Sunnubraut- ar og Skólavegar í Kefla- vík. Urðu nokkrar skemmdir á bifreiðinni m.a. á felgum. Er blaðið fór í prent- un hafði ekki komið í ljós af hvaða vagni grjót- ið hafði hrunið. Er aldrei of brýnt fyrir ökumönn- um með grjót eða annað á bílum sínum, að gæta þess að slíkur farmur hrynji ekki af pallinum. epj. Síðan segir í greinargerð- inni: „Það verour að nýta þessa auðlind með gát og nota til þess þá þekkingu, sem þegar er fyrir hendi, og afla viðbótarþekkingar eftir þörfum. Sýna niðurstöður Orkustofnunar að eldri hugmyndir fá ekki staðist, en samkvæmt þeim átti grunnvatn að renna í stórum stíl út eftir Reykjanesskaga allar götur innan af háiendi iandsins. Svo gott sem allt grunnvatn á vestanverðum Reykjanesskaga er úrkoma sem fallið hefur á svæðinu. Ekkert bendir til að hluti sé komin af hálendinu og tiltæk gögn benda raunar til þess að svo geti ekki verið". - epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.