Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.1988, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 17.03.1988, Blaðsíða 1
 ímn Lar,dsfaók 101 11. tbl. 9. árg. Fimmtudagur Alvopnaðir hermenn á Hafnargöturúntinum ðk framan á vöru- bíl Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir Fegurðardrottning Suðurnesja 1988 GUÐBJÖRG FRÍÐA GUÐMUNDSDÓTTIR, 19ára Keflvíkingur, var kjörin „Fegurðardrottning Suðurnesja 1988“ í Glaumbergi á laugardagskvöldið. „Mér gekk vel þegar við komum fram, en ég þorði þó aldrei að hugsa til þess að ég gæti unnið“, sagði Guðbjörg Fríða. Ljósmyndafyrirsæta var kjörin Oddný Nanna Stefánsdóttir úr Keflavík, og Margrét Örlygsdóttir úr Njarðvík hreppti titilinn Vin- sælasta stúlkan. - Sjá nánari umfjöllun og myndir á bls. 4 og í mið- opnu. Nótt eina um síðustu helgi urðu lögreglumenn á eftirlitsferð um Hafnargöt- una í Keflavík varir við óvenjulega sjón. Um varað ræða herbíl þar sem í voru fjórir hermenn undir al- væpni. Voru þeir umsvifalaust stöðvaðir og þóttust hafa villst á leið sinni frá Rock- ville-stöðinni á Miðnes- heiði. Var þeim þegar vísað inn fyrir girðingu varnar- svæðisins, enda með öllu óheimilt að aka hér um götur undir vopnum. Sjóeldi hf.: Verður sjó- kvíaeldi hætt vegna galla í nót- unum? Sjóeldi hf. i Höfnum helur auglýst cl’tir tilbóðum í út- halskvíar sínar, sem staðsett- ar eru undir Vogastapa, ásaml legulærum og þjónustubátnum Tuma II. Asiæðan l'yrir auglýsingu þessari er sú staða sem komin er upp hjá fyrirtæk- inu, hvort hætta á þessu eldi eða ekki. Að sögn Jóns G. Gunn- laugssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, voru kvíar þessar, sem eru að Bridgestone-gerð, keyptar vegna þess að þær áttu að þola 7 metra ölduhæð. Þó ölduhæð hafi aldrei náð meiri hæð en 3'/: til 4 ntetra, hefði nótin samt gefið sig fjórum sinnum. Hefðu opn- ast allt að 10 metra göt og fiskurinn sloppið þar út. Sagði Jón að tjón af þessu væri komiðuppí 17 milljónir og því eigin áhætta orðin ansi mikil, þar seni framleið- endur vildu ekki viðurkenna að um galla í nótum kvíanna væri að ræða. Sitja þeir Sjó- eldismenn nú því uppi með gallaðar nætur sem netagerð- armenn hafa skoðað og fall- ist á að svo sé, en framleið- andi neitar að greiða. Sam- fara því hrynja tekjur af eld- inu en rekstrarkostnaður stendur áfram í stað. „Við verðum því nú að taka ákvörðun um það hvort haldið verði áfram, eða hing- að og ekki lengra. Eða þá að fara í málaferli við framleið- anda nótanna. Um aðra kosti er ekki að ræða“, sagði Jón í samtali við blaðið, „þess vegna höfum við auglýst þetta til sölu til þess að kanna viðbrögðin". Þó nokkuð var um sntá- óhöpp í snjókomunni og þungfærðinni á þriðjudag í síðustu viku. Bæði var um árekstra milli ökutækja að ræða og eins að ekið var á fasta hluti, s.s. Ijósastaura og rafmagnskassa. Einn þessara árekstra varð þó mjög harður, er fólksbifreið ók framan á vörubíl sem kom úr gagn- stæðri átt. Fólksbifreiðin var að taka fram úr og sá ökumaðurinn ekki vöru- bifreiðina sökum snjókom- unnar. Varð óhapp þetta á Garðvegi og af þvi hlaust rnikið eignatjón en slys óveruleg. Eldur í eldavél Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kvatt út í kvöldmatartímanum á mið- vikudag i liðinni viku. Var tilkynnt urn lausan eld að Hringbraut 78 i Keflavík. Er að var komið reyndist vera laus eldur i baki eldavélar í einni af íbúðum hússins. Tók slökkvistárfið skamma stund og tjón varðóverulegt. Hitaveitan hafnaði kröfu bæjarráðs Grinda- víkur Stjórn Hitaveitu Suður- nesja hefur hafnað ósk bæj- arráðs Grindavíkur um að rifta samningum um leigu á baðhúsinu við Bláa lónið og bjóða reksturinn út að nýju. Að sögn Ingólfs Að- alsteinssonar, forstjóra Hitaveitunnar, voru að dómi stjórnarinnar engin efnisleg rök fyrir því að framkvæma ósk bæjarráðs- ins. Nokkur óánægja hefur verið með þá ákvörðun Hitaveitunnar að semja við hæstbjóðanda og leyfa honum síðan að hækka gjaldskrána eins og hann hefur þegar gert. Kom þetta skýrt fram í grein Kristjáns Péturssonar hér í ölaðinu fyrir skemmstu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.