Víkurfréttir - 02.04.1996, Blaðsíða 14
Bátasýning í Fræðasetrinu
I fræðasetrinu í Sandgerði
stendur nú yfir sýning á mód-
elbátum gerðum af ýmsum
einstaklingum af Suðurnesj-
um. Þar má sjá þekkta báta úr
fiskveiðiflotanum, bæði þá
sem enn fiska og þá sent btiið
er að leggja, eins og síðutog-
arana Mars RE 261 og And-
vara RE 8, sem eitt sinn hét
Sandgerðingur GK 517.
Einnig má sjá ýmis seglskip,
smábáta og módel af sögu-
frægum skipum og fantasíum
- báta sem aldrei hafa verið til
- og þó fylgir veiðileyfí einum
þeirra.
Aætlað er að sýningunni ljúki
sunnudaginn 14. apríl. Al-
mennur opnunartími er föstu-
daga, laugardaga og sunnu-
daga frá 13.00 til 17.00. Um
páska er lokað föstudaginn
langa og páskadag en opið
verður á skírdag, laugardag
fyrir páska og á annan í pásk-
um frá 13.00 til 17.00 alla
dagana.
Kratar alykta um Iteit mal
Almennur félagsfundur í sam-
bandi Alþýðuflokksfélaga á
Suðurnesjum var haldinn í
Keflavík 23. mars s.l. þar sem
ályktað var um hin ýmsu mál
er brenna heitast í þjóðfélag-
inu. Lýstu Alþýðuflokksfélag-
ar yfir fullum stuðningi við
stjórn HSS og SHS í þeirri
baráttu sem háð er við heil-
brigðisyfirvöld og hvetja
stjórnina til þess að hvika
hvergi þannig að tryggt sé að
Suðumesjamenn búi ekki við
lakari heilbrigðisþjónustu en
aðrir landsmenn.
Einnig skoruðu þeir á sjávar-
útvegsráðhena að endurskoða
úthlutaðan þorskkvóta fyrir
veiðiárið 1995-6 og auka
hann um a.m.k. 15-20 % í
ljósi þess að þorskgengd sé
mikil og vaxandi á öllum
miðum. Fordæmdu þeir aðför
heilbrigðisráðherra að fötluð-
um í landinu auk þess sem
þeir lýstu yfir þungum
áhyggjum af stöðu heilbrigð-
is- og tryggingarmála f land-
inu eins og þau hafa þróast
undir stjórn núverandi heil-
brigðismálaráðherra. Mót-
mæltu þeir aðfömm stjómar-
innar að launþegum í landinu
í fonni fmmvarps til laga um
Verkalýðsfélög og störf í
vinnudeilum og hvöttu hana
til þess að setjast niður með
öllum aðilum vinnumarkaðar-
ins og ná sátt með þeim um
drög að nútímalegri vinnulög-
gjöf sem tryggi hag allra og
þá ekki síst þeirra sem minnst
hafa borið úr býtum innan
verkalýðshreyfingarinnar í
gegnum árin.
Rondey kvaddur!
Uppskeruhátíð körfuknatt-
leiksdeildar UMFN fór fram
sl. föstudag. Santhliða upp-
skeruhátíðinni fór fram
kveðjuhóf fyrir Rondey
Robinson sem leikið hefur
með Njarðvíkingum sl. sex ár.
Rondey var leystur út með
gjöfum og fékk m.a. yfirlýs-
ingu frá bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar þar sem honum voru
þökkuð vel unnin stöif í upp-
byggingu körfuboltans í
körfuboltabænum.
A uppskeruhátíðinni vom þau
Teitur Örlygsson, Harpa
Magnúsdóttir og Sverrir Þór
Sverrisson valin bestu leik-
mennimir en mestar framfarir
sýndu Páll Kristinsson,
Rannveig Randversdóttir og
Ragnar Ragnarsson.
Páskamót Reynis í knattspyrnu
Um páskana fer fram knatt-
spyrnumót nteð þátttöku tjög-
urra liða í meistaraflokki
karla. Auk Reynismanna taka
þátt í mótinu ÍBV, FH og
Stjarnan. Mótið nefnist IS-
spor - páskamót Reynis. Allir
leikirnir fara fram á gantla
grasvellinum við íþróttamið-
stöðina í Sandgerði, fímmtu-
dag, föstudag og laugardag.
I öllum leikjunum verður leik-
ið til þrautar þannig að ef jafnt
er í leikslok fer fram víta-
spyrnukeppni. Ókeypis er á
alla leikina.
Niðurröðun leikjanna verður
þessi:
Fimmtudagur 4. apríl
kl. 14:00 Reynir-ÍBV
Föstudagur 5. apríl
kl. 11:00 Stjaman-FH
Laugardagur 6. apríl
kl. 11:00 Leikur um 3ja sætið
kl. 14:00 Úrslitaleikur.
Urslitakeppnin í körfubolta:
Fjóröi leikurinn á laugardag
tum á óvait og eftir þann leik
sagði Friðrik Rúnarsson þjál-
fari Grindvíkinga að sóknar-
leikur sinna manna hefði ekki
verið nægjanlega góður og
rnenn hefðu verð ragir. Vömin
hefði aftur á móti verið þolan-
leg og hann hefði ekki trú á
öðru en að Iið sitt myndi gera
betur næst sem og raunin varð
á. I leiknum á laugardaginn
lék Grindavíkurliðið frábær-
lega vel hvort heldur var f
vöm eða sókn og segja má að
svæðisvöm þeirra hafi reynst
Keflvíkingum erfiður ljár á
þúfu.
Keflavíkurstúlkur fögnuðu ekki aðeins glæstum sigri í meistara-
tlokki. Þær sigruðu einnig í minnibolta kvenna og urðu íslands-
meistarar og sjást hér ásamt Þórhalli Steinarssyni, körfuknatt-
leiksráðsmanni. VF-mynd/pket.
♦ Helgi Jónas Guðfinnsson, UMFG, var Keflvíkingum erf-
iður á sunnudaginn. Hér er hann í baráttu við Davíð Gris-
som.
Úrslit leikjanna í úrslit-
um keppninnar voru
þessi:
UMFG - Keflavík 66:75
(32:38)
Stig UMFG: Rodney Dobard
21, Guðmundur Bragson 12,
Helgi Jónas Guðfinnsson 11,
Hjörtur Harðarson 10, Marel
Guðlaugsson 9, Unndór
Sigurðsson 3.
Stig Keflavíkur: Falur
Harðarson 10, Guðjón
Skúlason 21, Dwight Stewart
14, Sigurður Ingimundarson
7, Davíð Grissom 5, Albert
Óskarsson 5, Jón Kr. Gfslason
2.
Keflavík - UMFG 54:86
(27:38)
Stig Keflavíkur: Albeit
Óskarsson 13, Davíð Grissom
12, Elentínus Margeirsson 7,
Dwight Stewart 6, Guðjón
Skúlason 5, Jón Kr. Gíslason
3, Gunnar Einarsson 3, Falur
Harðai son 3, Guðjón
Gylfason 2.
StigUMFG: Helgi
Guðfinnsson 25, Hjörtur
Harðarson 17, Rodney
Dobard 12, Unndór
Sigurðsson 11, Guðmundur
Bragason 10. Páll Axel
Vilbergsson 4, Ámi Bjömsson
3, Brynjar Harðarson 2, Marel
Guðlaugsson 2.
Úrslitakeppni úrvalsdeildar-
innar verður haldið áfram á
laugaidaginn í Keflavík þegar
heimamenn mæta Grind-
víkingum í fjórða leiknum.
Vegna þess hversu blaðið fór
snemma í vinnslu í dag lágu
úrslit leiksins í Grindavík í
kvöld ekki fyrir, en fyrir þann
leik var staðan jöfn 1:1. Það
lið sem fyrr sigrar í fjórum
leikjum hlýtur Islandsmeist-
aratitilinn og Ijóst er að liðin
verða að mætast að minnsta-
kosti í tvígagn enn.
Eftir glæstan sigur í Grinda-
vík í fyrsta leiknum fékk
Keflavíkurliðið óvæntan skell
á heimavelli á sunnudaginn
þegar liðið tapaði með 32
stiga mun fyrir Grindvík-
ingum. „þessi leikur var með
ólíkindum og þá sérstakelga
kafli í síðari hálfleik. Við
vomm inn í leiknum þegar 5
mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik, en þá kom langur
kafli þar sem ekkert gekk hjá
okkur og Grindvíkingar settu
30 stig gegn aðeins tveim
stigum okkar. Eg er búinn að
skoða þennan kafla og það
kom í ljós að við tókum 20
skot og hittum aðeins úr einu.
Af þessu 20 skotum var að-
eins eitt utan 3ja stiga línunn-
ar - hin vom öll inni í teig og
færin voru alls ekki léleg,“
sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari
og leikmaður Keflvíkinga.
„Annað var líka mjög ein-
kennilegt í þessum leik og
það var að við fengum ekkert
vítaskot í öllum leiknum - því
hef ég aldrei kynnst fyrr.
Grindvíkingar fengu 31
vítaskot og hittu úr 22 þannig
að þeir settu 22 stig af vítalín-
unni en við ekkert. Þetta er
alveg með ólíkindum. Annars
vil ég vera bjartsýnn og við
munum væntanlega koma
með eitthvað nýtt á móti
svæðisvörninni hjá þeim.“
sagði Jón Kr. Gíslason
ennfremur.
Sigur Keflvíkinga í fyrsta
leiknum í Grindavík kom tles-
íslandsmeistarar í minnibolta
14
Y íkurfréttir