Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.05.2005, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.05.2005, Blaðsíða 1
����������������������������������������������������������� ��������������������� �������� Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1 Composite C M Y CM MY CY CMY K 19. tölublað • 26. árgangur Fimmtudaguri nn 12. maí 200 5 Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222 Fimm Suðurnesjastúlkur eru þessa dagana að búa sig undir þátttöku í Fegurðarsam-keppni Íslands sem fer fram á Broadway þann 20. þessa mánaðar. Þær Petrúnella Skúladóttir, Sigurlaug Guðmunds- dóttir, Harpa Gunnarsdóttir, Thelma Rut Tryggva- dóttir og Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir voru staddar í Bláa Lóninu fyrir fáeinum dögum ásamt öðrum keppendum þar sem verið var að taka upp kynningarefni fyrir fyrir keppnina. Myndatökumenn Skjás Eins, sem sýnir beint frá keppninni, voru að taka upp auglýsingaskeið fyrir útivistarmerkið Cintamani og er óhætt að segja að stúlkurnar hafi tekið sig vel út í fatnaðinum, enda fallegustu fljóð landsins þar samankomin. Eftir myndatökur brá hópurinn sér svo í Lónið þar sem dekrað var við þær og fengu allar súlkurnar nudd, sem var vel þegið. Fleiri myndir frá þessum fegurðardegi í Bláa lóninu eru á vef Víkurfrétta, www.vf.is Okkar fulltrúar í Fegurðar- samkeppni Íslands 2005 Heiðarselsbörnin á Grjóteyri Börnin á Heiðarseli fóru í sveitaferð að bænum Grjóteyri við Meðalfellsvatn í Kjós um helg-ina. Farið var með tveimur rútum og á einka- bílum og áttu börnin glaðan dag í fjósinu og hlöð- unni þar sem þau máttu strjúka dýrunum og halda á þeim minnstu. Eftir að hafa klappað beljunum á kollinn var hægt að fá að halda á lömbum og gefa kálfunum pela. Þá voru þarna fjölmörg önnur dýr. Myndagallerý úr sveitaferð Heiðarsels má finna á vef Víkurfrétta, www.vf.is Bergásballið víðfræga fór fram í Stapa um síðustu helgi og var mætingin að venju framúr- skarandi. Dansgólf ið var þéttskipað og Stapinn und- irlagður af hressu og kátu fólki sem skemmti sér hið besta. Ljósmyndari Víkur- frétta lét sig ekki vanta en óhætt er að segja að Bergás- ballið hafi farið vel fram. Myndir frá Bergásballinu eru á vf.is Bergásmyndir á www.vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.