Víkurfréttir - 09.01.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 9. JANÚAR 2014 • 1 . TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Nico
tinel
l Fru
it 96
stk -
kr. 2
250,
-
TILB
OÐ
VIKU
NNA
R
Reykjanesbær í vetrarbúningi
Fær reglulega
bónorð á götum úti
- Ásta Rós er ofurhugi og ævintýramanneskja fram í fingurgóma
Var 249 kg
og óttaðist dauðann
- Eyþór Árni tekur þátt í The Biggest Loser Ísland
Kemst lengst
í því sem er
skemmtilegast
- Ástrós Brynjarsdóttir íþróttakona í viðtali
Vegagerðin krafin um hundruð milljóna bætur?
Íbúar Suðurnesja hafa fengið að finna fyrir hálku og
svellbunkum síðustu vikur. Nú er aðeins að draga úr
vetrarhörkunni og hiti verður yfir frostmarki næstu
daga. Þannig mun svellið hörfa og hvíta snjófölin
einnig. Ljósmyndari Víkurfrétta flaug yfir Reykja-
nesbæ á gamlársdag og tók þá meðfylgjandi mynd
sem sýnir bæinn í vetrarbúningi. Fremst á myndinni
má sjá Fitjarnar í Njarðvík
Vegagerðin sagði einhliða upp samningi við Samband sveitar-
félaga á Suðurnesjum (SSS) um einka-
leyfi á áætlunarferðum flugrútunnar til
og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem
hefjast áttu nú í ársbyrjun. Stjórn SSS
ætlar að bregðast við þessari ólögmætu
ákvörðun að þeirra mati og krefjast bóta
sem hugsanlega gætu numið hundr-
uðum milljóna króna.
Málið var rætt á bæjarstjórnarfundi
í Reykjanesbæ í vikunni. Samkeppnis-
stofnun hefur gefið það út að sveitarfélögin
myndu hagnast um 500 milljónir króna á
einkaleyfi flugrútunnar. Samningur SSS
og Vegagerðarinnar var undirritaður í
febrúar 2012 en hann fjallar einnig um
skipulagningu og umsjón með almenn-
ingssamgöngum á Suðurnesjum. Hagn-
aður af einkaleyfisakstrinum átti í raun
að kosta almenningssamgöngur á Suður-
nesjum. Síðastliðið haust var undirritaður
samningur við SBK um að sjá um akstur-
inn sem átti að hefja flugrútu-aksturinn
í byrjun árs 2014. Samkeppniseftirlitið
gerði verulegar athugasemdir við samn-
inginn og sendi ályktun þess efnis í júní á
sl. ári. Þar er bent á að samningurinn feli í
sér alvarlegar samkeppnishindranir.
Formaður Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum sagði við Morgunblaðið 13.
des. sl. að SSS væri í erfiðri stöðu og gæti
ekki annað en framfylgt samningi sem
það gerði við SBK um aksturinn.
Forráðamenn Kynnisferða sögðu að ef
útboðinu yrði framfylgt yrði því mætt af
hörku með kæru en fyrirtækið hefur sinn
flugrútuakstri milli Keflavíkur og Reykja-
víkur í mörg ár. Forráðamenn Allra handa
hafa einnig mótmælt þessum gjörningi.
Upphafið að samningi Vegagerðarinnar
við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
má rekja til lok árs 2011 en þá voru sam-
þykkt lög á Alþingi um breytingu á lögum
um fólksflutninga hér á landi.
n Vegagerðin sleit einhliða samningi við SSS um einkaleyfi á „flugrútunni“: