Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017 Hvað þarf einstaklingur að hafa í tekjur? Þröskuldur efri millistéttar: Heildarlaun: 635 þús. kr. Þröskuldur neðri millistéttar: Heildarlaun: 515 þús. kr. Þröskuldur lágstéttar: Heildarlaun: 333 þús. kr. Lægri heildarlaun duga ekki fyrir grunn framfærslu. Hástétt Efri millistétt Lægri millistétt Lágstétt Örbirgð Stjórnendur 30% 60% 10% 0% 0% Sérfræðingar 0% 45% 30% 25% 0% Tæknar og sérmenntað starfsfólk 0% 40% 25% 35% 0% Skrifstofufólk 0% 10% 25% 65% 0% Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk 0% 0% 25% 50% 25% Iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk 0% 30% 30% 40% 0% Véla- og vélgæslufólk 0% 15% 40% 45% 0% Ósérhæft starfsfólk 0% 0% 20% 60% 20% Með aukinni menntun hefur fjölgað í millistétt sé miðað við menningarlega og sögulega flokkun. En með fjölgun í millistétt hafa launakjör millistéttarfólks líka dregist saman. Þeim hefur því fjölgað sem sinna hefðbundnum millistéttarstörfum en sem búa við lágstéttarkjör. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Flokkun í stéttir er mis fyrirferða- mikil í umræðunni. Í bandarískum stjórnmálum er gerður veigamik- ill munur á lágstétt og millistétt og stjórnmálamenn ávarpa þessa hópa með ólíkum hætti. Það sem brenn- ur á millistéttinni eru oft hagsmun- ir sem eru utan seilingar hjá lág- stéttinni. Aukið aðgengi að lánsfé og lægri vextir geta bætt húsnæð- isstöðu millistéttarinnar á meðan fjölgun félagslegra íbúða og þak á húsaleigu er raunhæfari lausnir gagnvart lágstéttinni. Andstaða við stéttatali Á Íslandi snýst stjórnmálaumræð- an mest um almennar aðgerðir sem ætlað er að bæta hag meðalfólks en síður um sértækar aðgerðir til að mæta þörfum hinna verst settu. Ástæður þessa eru sögulegar. Annars vegar er sú hugmynd rót- gróin að Ísland sé stéttlaust samfé- lag. Hins vegar höfum við lifað langt valdaskeið nýfrjálshyggjunnar sem lítur á stétt sem persónulegt mál en ekki félagslegt. Hinn fátæki er ekki fátækur vegna félagslegra aðstæðna sem má laga heldur vegna þess að hann er gallaður ríkur maður. Besta leiðin til að fækka fátækum er að vinna sig upp úr henni, segja prestar nýfrjálshyggjunnar. En hver er staðan á Íslandi? Hversu stór er lágstéttin? Helmingurinn lágstétt Bandaríkjamenn eru líklegri en Evrópumenn til að búa til skýran Hástétt 3% Efri millistétt 26% Neðri millistétt 26% Lágstétt 37% Örbrigð 8% Byggt á framfærsluviðmiðum velferðarráðuneytisins miðað við einstaklingsframfærslu og upplýsingum Hagstofunnar um reglubundin heildarlaun á vinnumarkaði, uppreiknuð miðað við hækkun launavísitölu. Skipting launafólks í stéttir á Íslandi Svo skiptist íslenskt launafólk í stéttir á Ísland ef framfærsluviðmið velferðarráðuneytisins eru notuð til grundvallar. Yst til hægri er launafólk sem nær ekki grunnviðmiðum, getur ekki sinnt grunnþörfum með reglulegum heildarlaunum sínum eftir skatta, lífeyrisiðgjöldum og húsnæðiskostnaði. Þar næst kemur lágstéttin, sem hefur ráðstöfunartekjur eftir skatta, iðgjöld og húsnæð- iskostnað frá grunnviðmiðum og upp að 20 prósentum undir dæmigerðum meðalútgjöldum. Þá kemur lægri millistétt sem er með til ráðstöfunar frá meðalútgjöldum og niður í 20 prósent undir meðaltalinu. Millistéttin er síðan með til ráðstöfunar frá meðalútgjöldum og upp að þingfararkaupi, sem er tæp milljón krónur á mánuði. Efst er hástéttin, Alþingismenn og betur settir. Millistétt í huganum, lágstétt í veskinu greinarmun á millistétt og lágstétt. Þar hafa margar stofnanir reiknað út hvar mörkin liggja; hversu há laun þú þarft að hafa til að geta upp- fyllt hefðbundna millistéttardrauma um eigið hús, bíl, eftirlaunasjóð og stuðning við menntun barna. Ef þessar tölur eru færðar til Ís- land og leiðrétt fyrir ólíku verðlagi má segja að rétt tæpur helmingur launþega nái ekki upp í millistétt. Þegar lífeyrisþegum hefur verið bætt við er ljóst að vel rúmur helm- ingur Íslendinga nær ekki að klifra upp í millistétt í Bandaríkjunum. En þessi samanburður er ekki sanngjarn. Þótt velferðarkerfið hafi verið höggvið mikið niður að undan- förnu þurfa Íslendingar ekki að borga eins mikið úr eigin vasa af vel- ferðarþjónustu og Bandaríkjamenn. Fátækari fátækir Í Evrópu er algengara að miða út frá meðallaunum. Þeir eru þá lágstétt sem eru með minna en 20 prósent af meðallaunum og þau lifa við fátækt sem ná ekki hálfum meðallaunum. Gallinn við þennan samanburð er að launakúrfan er mjög misjöfn milli landa. Á Íslandi eru meðallaun- in til dæmis mjög lág í samanburði við næstu lönd og því mælast iðu- lega tiltölulega fáir fátækir á Íslandi. Þetta sést vel þegar borið er saman ráðstöfunarfé þeirra sem eru skil- greindir fátækir í ólíkum löndum með þessari aðferð. Þá standa fá- tækir á Íslandi yfirleitt langt að baki fátækum í öðrum löndum. 13 þúsund í örbirgð Tilraun velferðarráðuneytisins til að mæla annars vegar dæmigerð út- gjöld fólks og meta hins vegar grunn- framfærslu, lágmark þess sem fólk þarf til að lifa, er athygli verð. Þar vantar reyndar húsnæðiskostnað (leigu, afborganir og vexti, viðhald, rafmagn og hita) en ef við bætum við áætlum um það getum við dregið línur sem geta markað skil örbirgð- ar og lágstéttar við grunnframfærsl- una, lágstéttar og neðri millistéttar við um 80 prósent af meðalframfær- slu og síðan neðri og efri millistéttar við meðalframfærsluna. Ef við drögum þessar línur síð- an eftir reglulegum heildarlaunum fólks, samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar, kemur í ljós að um 8 pró- sent launafólks hefur lægri heildar- tekjur, það er heildarlaun fyrir fulla vinna, en sem nægja fyrir grunn- framfærslu. Þetta fólk dregur ekki fram lífið af launum sínum og er háð aðstoð ættingja eða góðgerða- samtaka. Áætla má að þetta séu um þrettán þúsund manns og bætast þeir við hóp öryrkja, ellilífeyrisþega og annarra utan vinnumarkaðar sem berjast daglega við fátækt. Hér er miðað við einstaklinga. Tveir einstaklingar sem búa saman geta dreift hluta af framfærslu- byrðinni, en börnum fylgir hins vegar aukin byrði. Segja má að þetta sé því mælikvarði á stéttarstöðu einstaklinga, hver staða launafólks er án tillits til fjölskyldugerðar. Meirihlutinn í lág- og lægri miðstétt Miðað við þessa mælikvarða tilheyr- ir um 37 prósent vinnandi fólks lág- stétt. Þetta er fólk sem hefur ekki laun til að standa undir skuldsettum íbúðarkaupum, er á mörkum þess að eiga fyrir eigin bíl og getur örugg- lega ekki safnað sparifé. Sögulega er það fólk í þessari stöðu sem hefur knúið á um félagslegar lausnir í hús- næðismálum, almenningssamgöng- ur og stuðning frá almannatrygging- um og/eða skattkerfinu. Fyrir ofan þennan hóp er neðri millistétt sem eru um 26 prósent launafólks, miðað við þennan mæli- kvarða. Þetta fólk er á mörkum þess að hafa fjárhagslega getu til að geta safnað upp í útborgun íbúðar, á ekki fyrir bíl nema að neita sér um margt annað og getur í sjálfu sér ekki veitt sér mikið. Hagsmunir þess eru um margt líkir hagsmunum lágstéttar- innar, það hefur sambærilegan hag af uppbyggingu velferðarkerfisins og samneyslunnar. Fáir í góðum málum Miðað við þessar breiðu línur myndu um 26 prósent launafólks flokkast í efri millistétt. Svo má flokka 3 prósent sem hástétt, ef við skerum línuna við þingfararkaup. Það eru því ekki nema 29 prósent landsmanna sem hafa fjárhagslega burði til að láta hefðbundna milli- stéttardrauma rætast; eignast eig- ið húsnæði, bifreið, safnað í sjóð og búa við fjárhagslegt öryggi. Það var fólk úr þessum hópi sem fékk mest út úr skuldaniðurfærslu síðustu ríkisstjórnar og á margan hátt hefur stjórnmálaumræða liðinna ára snúist um hagsmuni hans. Það skýrir að mörgu leyti þá reiði sem blossað hefur upp í tengslum við umræðu um fátækt um síðustu vikum. Stór hluti landsmanna get- ur miklu fremur tengt við erfiðleika þeirra sem eru að berjast fyrir lífi sínu á mörkum fátæktar og þeirra sem hafa sogast niður í djúpa fátækt, en það fólk sem stjórnvöld virðast miða við þegar þau eru þess fullviss að fólk hafi það gott og sé fullt bjart- sýni þegar það horfir fram á veginn. Líklega er sá hópur ekki stærri en sá sem gefur upp stuðning við þessa ríkisstjórn eða flokkana sem standa að baki henni.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.