Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 6
Lestrargleði á Gljúfra
steini á aðventunni
Aðventan er á næsta leiti og komið
að því að rithöfundar lesi upp úr
nýjum bókum á Gljúfrasteini. Þetta
er í fjórtánda sinn sem gestum er
boðið að hlýða á upplestur á að-
ventunni í stofunni á Gljúfrasteini.
Upplestrarnir fara fram á sunnu-
dögum og hefjast stundvíslega kl.
16:00. Aðgangur er ókeypis. Næsta
sunnudag, 2. desember, mæta fjórir
rithöfundar til leiks: Þórdís Gísla-
dóttir, Sigga Dögg, Einar Kárason og
Arnar Már Arngrímsson. Höfundar
munu lesa upp úr nýútkomnum
bókum sínum. Nánari upplýsingar
um dagskrá aðventunnar má finna á
www.gljufrasteinn.is
Aðventukvöld í
kirkjunni 9. desember
Annan sunnudag í aðventu, 9.
desember kl. 20:00, fer fram hið
árlega aðventukvöld í Lágafells-
kirkju. Meðal tónlistarflytjenda eru:
Nemendur úr Listaskóla Mos-
fellsbæjar, Einar Clausen, Sigrún
Harðardóttir og Kristín Lárusdóttir
ásamt Kirkjukór Lágafellssóknar.
Organisti og tónlistarstjórnandi er
Þórður Sigurðarson. Sr. Ragnheiður
Jónsdóttir og sr. Arndís Linn leiða
stundina. Ræðumaður kvöldsins
er Hilmar Gunnarsson. Kaffiveit-
ingar verða í safnaðarheimilinu að
aflokinni dagskrá í kirkjunni.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Jólamarkaður Skálatúns 2018
Jólamarkaður í
Ásgarði 8. desember
Ásgarður handverkstæði verður
með sinn árlega jólamarkað og
kaffisölu í húsnæði Ásgarðs að
Álafossvegi 14 og 22 laugardaginn
8. desember á milli kl: 12.00 og
17.00. Allar leikfangalínur Ásgarðs
verða til sýnis og sölu, einnig verða
kaffi, súkkulaði og kökur til sölu
gegn vægu gjaldi. Góðir gestir líta
í heimsókn og taka lagið. Hvað er
betra en að byrja jólaundirbúning-
inn á því að fara í Ásgarð þann 8.
desember, versla jólagjafir og setjast
síðan við borð með listamönnum
Ásgarðs, drekka heitt ekta súkkulaði
með rjóma?
Leggja í fimm mánaða rannsóknarleiðangur um heiminn • Standa fyrir hópfjármögnun
Ætla að afla sér þekkingar
um langlífi og heilsuhreysti
Hjónin Vala Mörk og Guðjón Svansson eru
á leið í spennandi rannsóknarleiðangur í
janúar næstkomandi. Hjónin reka æfinga-
stöðina Kettlebells Iceland á Reykjavegi í
Mosfellsbæ.
Vala er menntaður iðjuþjálfi og vann
í mörg ár á Reykjalundi, Guðjón er sam-
skiptafræðingur og starfar sem ráðgjafi í
orkustjórnun hjá Hagvangi auk þess að
skrifa heilsupistla í Mosfelling. Vala og Gaui
eiga fjóra drengi á aldrinum 7-23 ára.
Dvelja á stöðum þar sem fólk lifir lengst
„Við Vala og tveir yngstu drengirnir okkar
erum að elta hjartað og erum á leið í fimm
mánaða rannsóknarleiðangur í janúar. För-
um á staði þar sem fólk lifir lengst og við
besta heilsu. Við ætlum að taka viðtöl við
heimamenn, lifa eins og þeir og komast að
leyndardómum þeirra frá fyrstu hendi. Svo
ætlum við að skrifa bók og gefa út haustið
2019 og halda fyrirlestra víða um Ísland
og segja frá því sem við höfum komist að.
Vonandi náum við að fjármagna það verk-
efni, en nú stendur yfir hópfjármögnun á
síðunni Karolina Fund,“ segir Gaui.
Í fimm mánuði um fimm blá svæði
„Blue Zones eru fimm svæði í heiminum
þar sem langlífi og góð heilsa fram á síðasta
dag er regla frekar en undantekning. Við
viljum læra af þessum svæðum hvernig við
getum dregið verulega úr stressi og álagi,
forðast lífsstílstengda sjúkdóma, bæta
heilsuna og lifað lengi – betur.
Bæirnir sem tilheyra Blue Zones svæð-
unum eru Loma Linda í Bandaríkjunum,
Nicoya-skaginn á Kosta Ríka og eyjurnar
Okinawa í Japan, Ikaria á Grikklandi og
Sardinía á Ítalíu,“ segir Vala en bókin kemur
til með að heita Lifum lengi – betur.
Gulrótin hvatning til að fara af stað
„Stundum þarf hvatningu eða smá
spark í rass til þess að láta drauma verða
að veruleika. Þann 29. maí þegar við hjónin
fengum afhenda Gulrótina, lýðheilsuvið-
urkenningu Mosfellsbæjar fyrir brautryðj-
endastarf í þágu heilsueflingar og bættrar
lýðheilsu bæjarins, ákváðum við að láta
slag standa. Fara í Blue Zones ferð, komast
að leyndarmálum þessara fimm samfélaga
og miðla síðan áfram til Íslendinga því sem
við myndum komast að.
Við erum gríðarlega þakklát þeim sem
taka þátt í að fjármagna þetta með okkur
og dreifa boðskapnum áfram. Okkur langar
virkilega að láta þetta gerast.“
Allar nánari upplýsingar má finna á síð-
unni www.karolinafund.com undir Lifum
lengi – betur.
vala, patrekur orri, snorri valur og guðjón
Aurskriða féll
úr Reykjafjalli
Í sðustu viku féll aurskriða úr Reykjafjalli ofan við Reyki í Mos-
fellsbæ. Skriðan kemur í kjölfar mikilla leysinga að undanförnu og
skilur eftir sig ljótt sár í suðurhlíð fjallsins.
„Það hrynur oft úr þessari brekku, enda mjög brött,“ segir Jón
Magnús Jónsson bóndi en fólkið á Reykjum man vel eftir skriðum
hér á árum áður þegar þær fylltu skurði á túnunum.
Aurskriður geta fallið allt árið, þó eru þær algengastar á haustin
og vorin. Oft eru fjallshlíðar óstöðugar og þarf einungis smá
rigningu eða hitabreytingu til að koma skriðum af stað
skriðan skilur
eftir sig sár