Alþýðublaðið - 27.11.1935, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.11.1935, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGINN 27. nóv. 1935. ALÞYÐUBLAÐIÐ Stórbrim og hríð við Húnaflóa. 2 bátar ónýtast og margír sKemmast BLÖNDUÓSI, 26./11. FO. Síðast liðna nótt gerði norð- vestan stórbrim og hríðarveður við austanverðan Húnaflóia. Gökk sjór yfir bryggjuna á Blönduósi og vörupall, sem varnargarður hlífir þó fyrir brimi. — Uppskip- unarbátar og smærri bátar flutt- ust til, og 2 smábátar ónýttust. Skemdir urðu og á sumum hinna stærri báta, en þó ekki verulegar. Búið var að flytja þangað kjöt og gærur frá Magnúsi Stefánssyni kaupmanna, og átti að senda það með Lagarfossi. Einar Thorsteins- son kaupmaður átti þar einnig kjöt, en því var bjargað. — Við björgun bátanna varð eimn maður, Ólafur Jónsson, á milli þeirra, er þeir hentust saman, og hlaut af nokkur meiðsl, en ekki hætíuleg. — Við bryggjuendann hefir brim- ið skoláð burtu nokkru af vegin- um á 2—4 metra vegalengd, svo að ófært er bílum. Á Skagaströnd var álíka sjó- gangur. Bátar hentust hver á ann- an en skemdust lítið. Einin mað- ur, Haraldur Nikulásson, rifbrotn- aði við björgun bátanna. Bátar eyðileggjast á Sandi. SANDI, 26./11. FO. Síðast liðna nótt gerði á vestan- verðu Snæfellsnesi storm og ó- venjumikið brim í Lendingarstöð- íerksmlíjan Bún Selur beztu og ódýrustu LIKKISTURNAR. Fyrirliggjandi af öllum stærðum og gerðum. um, og tók út marga árabáta. Tveir bátar brotnuðiu í spón. Var anriar eign bræðranna Péturs og Gísla Guðbjartssona, en hinn áttu bræðurnir Jóhannes og Kristvin Guðbrandssynir. — Aðrir bátar brotnuðu meira og minna, og hefðu flestir árabátar frá Sandi farist, ef menn hefðu ekki komið í tæka tíð á vettvang. Verkameao á Seyð- isfiröi aloeita konnD- nnistam. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. SEYÐISFIRÐI. ERKAMANNAFÉLAGIÐ Fram hér á Seyðisfirði hélt fund á sunnudag til að ræða mn hið svokallaða „samfylkingartilboð“, sem Kommúnistaflokkurinn sendi Jón Rafnsson með hingað austur um daginn. Eftir allsnarpar umræður var „samfylkingar“-tillögu Jóns Rafnssonar visað frá með rök- studdri dagskrá. Jón Sigurðsson, erindreki Al- þýðusambands Islands, er vænt- anlegur hingað með Esju 29. þ. m. Gl. Italir kenna rign- ingunum í Ogaden um ósigurinn. LONDON, 26. nóv. FB. Itölsku blöðin birta fregnir um það, að vegna feiknamikillar úr- ftomu í Ogadenhéraði hafi fram- sókn ítala stöðvast. Segir, að fregnir frá Modagisco bermi, að svo sé úrkoman mikil, að vöxtur hafi hlaupið í ár og læki og sums staða hafi flætt yfir heil svæði. (United Press.) Athuflasemd. Huxley Ólafsson útgerðarmaður og meðfram'kvæmdarstjóri í hf. Sandgerði skrifar sl. laugardag í Alþýðublaðið um toll á fiskbein- um. Ég kemst ekki hjá að gera örlitla athugasemd við þessa grein, af þvi hún birtist á þessum vettvangi. Huxley er illa við fiskbeina- tollinn, og telur að hann lendi all- ur á útgerðannönnum, teða „þeim. I sem framleiða hráefnið", eins og j hann orðar það. Það kemur ber- lega í ljós, að það, sem hefiri knúð hann til að skrifa þessa fróðlegu grein, er hin mikla spurning, hvernig útgerðarmenn geti grætt sem mest á beinunum. Og þessi spurning leiðir hann út á þær vegleysur, að gera m. a. tillögu um, að tollínum verði af- iétt. Hann öfundar fiskimjöls- framleiöendurna, af því hann tel- ur að þeir losni við tollinn með því, að greiða útgerðarmönnum því minna, sem honum nemur, fyrir beinin. Hann segir, að þeim sé ekki trúandi til annars. Þietta er nú alt gott og blessað. En svo brýzt áhugamál útgerð- armannsíns út í eftirfarandi til- lögu, sem á að ráða bót á þessum tollavandræðum: „Að ríkið hafi strangt eftirlit með að útgerðar- menn fái fult qg rétt sannvirði fyrir sína vöru, þannig að ágóð- inn af mjölinu skiftist milli þeirra, sem framleiða hráefnið. Það er bersýnilegt, að þegar hann talar um þá, sem framleiða hrá- efnið, þá á hann ekki við hina upprunalegu framleiðendur, svo arðurinn á ekki að skiftast milli þeirra. Hann á við útgerðarmenn og hann vill að rikið tryggi gróða þeirra. Hann gleymir sjómönnun- mn, eins og þeir séu ekki til. Það virðist þó hafa legið nokkuð beint við að geta þeirra áhrifa. sem tollurinn befir á hlut sjó- manna, fyrst um þetta mál var talað. Það var þessi gleymska, sem mér fanst dálítið raunaleg, og sem kom mér til að gera þessa afsökun. Annars langar mig til að gefa hr. Huxley ól- afssyni útgerðarmanni og með- f ra mk væm darstjóra hf. Sand- gerðis þá bendingu, að ef hann hygst að gera lukku á ritvelli veilkamanna, þá verður hann að læra að dyljast betur en það, að sauðheimsikur og ósvifinn kapi- talismi gjóti á mann augunum frá hverjum pennadrætti. Að lokum vil ég, af því Hux- ley talar svo mikið um tolla í sínu skrifi, beina eftirfarandi spurningu til hans, og vona ég að honum sé Ijúft að leysa úr benni: Hvað tók hf. Sandgerði mikinn toll af sjómönnum veturinn 1934, þegar það borgaði þeim 5 krónur fyrir hvert tonn af beinum? Gísli H. Erlendsson. Bílar fara í fyrsta sinn yfir Lónsheiði. Nýlega fóru tveir bílar frá Hornafirði yfir Lónsheiði til Djúpavogs. Gekk ferðin vel. Bíl- stjórar og eigendur bílanna eru Helgi Guðmundsson og Guðm. Guðjónsson. 1 förinini voru nokkr- ir farþegar. Garðar Guðnason bílstjóri úr Hornafirði kom s. 1. sunnudag til Djúpavogs frá Reykjavík norður og austur um land. Flutti hann bílinn á báti yfir Berufjörð og fór áleiðis til Hornafjarðar sam- dægurs. (Eftir FO.) Séð um jarðarfarir. MT Sími 4094, Georg fyrverandi konnngnr kom heim til Grikklands í fyrrad. Stðrkostleg hðtiðahöíd i Aþeniihorg. EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS. KAUPMANNAHÖFN í gær. EOKG fyrrverandi Grikkja- konungur kom til Aþenu í gær til þess að taka við kon- ungdómi á Grikklandi á ný und- ir nafninu Georg annar. Símskeytin frá Aþenu herma í sambandi við þennan viðburð, að öll þjóðin sé eins og hún væri viti sínu f jær af gleði og hrifn- ingu yfir heimkomu konungsins. Stórkostleg hátíða- höld i Ajjemi. Aþena sjálf er öll skreytt flöggum og blómsveigum. Hvað- anæfa úr landinu hefir fólkið streymt til höfuðborgarinnar og það 'því fremur sem stjórnin lét lækka fargjöldin með járnbraut- unum í þeim tilgangi. Fyrsta verk konungsins á grískri jörð var að leggja krans á leiði hins óþekta hermanns. Þegar vagn konungsins stanz- aði við Hadrianshliðið, var kon- ungsfáninn dreginn að hún og konungsmarsinn leikinn af hljómsveit. Síðari var skotið af fallbyssum og öllum kirkju- klukkum borgarinnar hringt. En eftir það hélt borgarstjórinn í Aþenu, Kodizas ræðu og bauð konunginn velkominn. I svarræðu sinni sagði Georg konungur meðal annars: „Ég þakka kærlega fyrir hinr ar hjartanlegu móttökur. Ég er hamingjusamur yfir því að vera kominn aftur heim til föður- landsins, að fá að sjá mína elsk- uðu Aþenuborg og taka á móti hamingjuóskum yðar hér við ræturnar á Akropolis. Ég tek með djúpri geðshræringu á móti þessum hamingjuóskum, og skoða þær sem tákn þeirrar þjóðlegu einingar og bróðernis, sem í framtíðinni muni sameina alla Grikki í starfi þeirra fyrir föðurlandið." STAMPEN. ÍHAAiiOLYiíNCAR viTOim Telpupeysur allar stærðir, sérstaklega fallegar og ódýrar. Verzl. „Dyngja“. Silki- og ísgamssokkar frá 2,25 par. Bómullarsokkar 0,95 par. Silkisokkar í úrvali frá 2,90 par., misl., og 1,75 par., svartir. Barnasokkar, sérlega góðir, frá 1,55 par. Hosur á börn. Verzl. „Dyngja“. Kvenbolir í úrvali frá 1,75 stk. Kvenbuxur á 2,25. Sokka- bandastrengir, breiðir og mjó- ir. Verzl. „Dyngja“. Tvistar í Svuntur og Morgun- kjóla, góðir og ódýrir. Tilbúnir Morgunkjólar. Verzl. „Dyngja“. Kjóla- og Blússusilki frá 2,25 mtr. Georgette í Kjóla og Blúss- ur frá 2,80 mtr. Nýkomið svart, nýtt efni í Kjóla og Upphluts- skyrtur. VerzL „Dyngja“. Munlð súna 1974, Fiskbúðin Hverfisgötu 37. Ávalt nýr fisk- ur. Sólberg Eiríksson. Borðið í Ingólfsstræti 16. — Sími 1858. Hér skeður aldrei neitt Sagan cr cftir lækninn A. J. Cronin; hún gerist á sjúkrahúsi, og er endur- sögn atburða frá læknisáimn lians. MaMng úr íslenzk- mn hráefnam. Iönaðarnefnd neðri deildar flytur frumvarp um eirikaleyfi til að vinna málningu úr íslenzkum hráefnum. Samkvæmt þessu frumvarpi er þeim Einari Gíslasyni og Ósvaldi Knudsen málarameisturum veitt um næstu fimm ár eirikaleyfi til þess að vinna málningu úr ís- lenzkum hráefnum. Á þessum tíma er öðrum ó- heimilt að vinna málningu úr ís- lenzkum hráefnum til lölu. Nokkur huiti Norður-Kína segir skilið við Nanking. LONDON, 25. nóv. FB. LIÐLEGA VIKU hafa staðið yfir samkomulags- umleitanir með það mark fyrir augum, að stofna sjálfstætt ríki í Norður-Kína, þ. e. að fimm Norður-Kína-fylkin hefði sína eigin stjóm, óháða Nan- kingstjórninni. Hafa Japanar verið taldir standa hér á bak við, þeir sé hér að stofna nýtt leppríki, eins og þeir gerðu í Mansjúríu. Mjög óvíst þótti þó í síðustu viku, hvort haldið mundi verða áfram með stofnun nýs ríkis í Norður-Kína, vegna mótspyrnu þeirrar, sem þetta sætti í Kína, og óttuðust menn jafnvel, að til blóðugrar styrjaldar mundi koma, ef haldið yrði áfram við þessi áform. Nú hefir það nýtt gerst í mál- inu, að lýst hefir verið yfir stofnun óliáðs ríkis í austur- liluta þess svæðis Norður-Kína, sem Japanar hafa afvopnað, en markið er hið sama, að gera alt Norður-Kína að ríki óháðu Nan- kingstjórninni. Heppnist áform- in búast menn við, að samband hins nýja ríkis við Japan verði svipað og nú er milli Mansjú- ríu og Japan. (United Press). íiamall maður verð- ur fyrir reiðhjóli og fótbrotnar. Um kl. 1 e. h. síðast liðinn laugardag varð gamall miaður fyr- i reiðhjóli í Kirfcjustræti. Hjólreiðamaðurinn hélt leiðar sinnar, án þess að grenslast eftir því, hvort maðurinn hefði meitt sig eða ekki. Maðurinn, sem fyrir hjólinu varð, var Skúli Árnason fyrrum héraðslæknir. Hafði hjólið lent á vinsta fæti hans og brotið fótinn. Gat Skúii sjálfur komist af götunni. Hjólreiðamaðurinín hefir ekki fundist enn þá. Ægileg spreng- ing í úthverfi Oslo. Fimm verkamenn farast. OSLO, 23. nóv. FB. Fimm verkamenn biðu bana af völdum sprengingar, sem varð í gær hjá hinu nýja; mikla leiguhúsi Johnsensbræðra rétt fyrir utan Oslo. Kassi með dynamiti hafði verið lagður inn í hvíluskála verkamanna. Sprengingin var stórkostleg, og biðu fjórir verka- menn, er nærstaddir voru, þegar bana, en sá fimti slasaðist svo, að hann lézt á leiðinini i Ulevaal sjúkrahús. (NRP.) Duglegur söíumaður óskast til að selja bækur. Há sölulaun. Umsóknir sendist í póstbox 144 sem fyrst. Barnavagnar og kerrur tekn- ar til viðgerðar. Verksmiðjan Vagninn, Laufásveg 4. Smíða trúlofunarhringa. Jón Dalmannsson, gullsm., Vitastíg 20. VESTMENN eftir I>. f>. I>. er koruið út. G6ð kápa. Betra band. Bezt guli. Verð: 7,00 og 9,50. Ingóltur Jónsson cand. juris fyrv. bæjarstjóri. Allskonar lögfræðisstörf, mál- færzla, innheimta, samninga- gerðir, kaup og sala fasteigna. Bankastræti 7 (næstu hæð yfir Hljóðfærahúsinu). Sími 3656. Viðtalstími kl. 5—7 sd. Eikarskrtiorð. Nokkur ný og vönduð eikar- skrifborð til sölu á kr. 125.00. Góðir greiðsluskilmálar. Einnig alls konar húsgögn smíðuð eftir pöntun. Upplýsingar á Grettisgötu 69 frá kL 2—7. w ■■F' Drífandi Laugav. 63, simi 2393. 9 0 12 epii á 1 krónu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.