Alþýðublaðið - 20.11.1939, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.11.1939, Blaðsíða 4
MANUDAGUR 20. NÖV. 1939. GAMLA BtÓ Maria Antomette. Heinisfræg og hrífandi fögur Metro Goldwyn Mayer stórmynd, að nokkru leyti gerð samkv. æfiaögu drottningarinnar eftir Stefan Zweig. Aðal- hiutverk: Marie Anéoinette NORMA SHEARER Axel Fersen greifi TYRONE POWER Lúðvík XV. IOHN BARRYMORE Lúðvik XVI. ROBERT MARfeEY I. O. G. T. AFMÆLISFAGNAÐUR st. Ein- ingin nr. 14 miðvikudag 22. p. m. Fundur hefst kl. 8 St. Daní- elsher heimsækir. Að fundi lokn um: Sjóinleikur, Steppdans, Akrobatik, fjórhentur píanóleik- Ur, Templarakórinn syngur Dans. Einingarfélagar og aðrir templarar vitji aðgöngumiða á morguin þráðjudag kl, 4—7. . s ST. VERÐANDI nr. 9. Fundur annað kvöld kl. 8- 1. Inntaka /nýrra félaga. 2. Erindi: Hr. Guðjón Jónsson. 3. Hljóðfæra- sláttur: Hr. Svend Guðjohnsen. Bílar frá Dúkkur frá Skip frá Húsgögn frá Kubbar frá Saumakassar frá Töskur frá Myndabækur frá Dátamót frá Smíðatól frá Sparibyssur frá Flugvélar frá Dýr, ýmiskonar frá Spil, ýmiskonar frá 0,85—12,00 1,50—14,75 0,50—7,50 1,00—6,25 2,00—17,50 1,00—3,50 1,00—3,00 0,50—2,00 2,25—6,00 1,50—4,75 0,50—2,65 0,75—4,75 0,85—6,50 1,00—10,00 Bankastræti 11. ENSKI FLUGMAÐURINN Frh. af la síðu. hér, að vegna stroksins kæmist hið íslenzka ríki hjá því, að kosta „tippihaid“ flugmannanna, ef til vill svo árum skipti. En hvað um það. Flugforing- inn er hingað kominn með frú sína, en án flugvélarinnar, og það hefir verið látið í veðri vaka, að hann eigi að halda til á Bessastöðum, einu fornfræg- asta höfuðbóli landsins, meðan styrjöldin stendur yfir- Maður- inn hlýtur að skoðast sem fangi hér og því sjálfsagt, að frjáls- ræði hans séu takmörk sett. Það nær auðvitað engri átt, að taka á móti þessum manni sem fjandmanni, enda hefir víst engum dottið það í hug. En allt fyrir það er framkoma sumra blaðanna hér í bænum nú, þeg- ar Englendingurinn stígur á land, jafn fráleit fyrir því. Það er einna líkast því, sem hingað sé kominn þjóðhöfðingi eða ein- hver velgerðamaður Islands, en ekki óbreyttur maður, sem þó, öðrum fremur, hefir virt að vettugi lög landsins- Því hefir verið haldið fram, að drengskaparyfirlýsing sú, sem Mr. Barnes undirritaði, hafi verið á ensku, en í Eng- landi afsakaði hann sig með því, að hann hafi ekki skilið málið. Enskuna, eða hvað? Og hvers vegna skrifar maðurinn undir það, sem hann skilur ekki? Þótt mótorhjólið, sem hann kemur með, bendi til þess, að hann skoði sig hér sem frjálsan mann, nær ekki nokkurri átt, að íslenzkt blað skuli telja það sjálfsagt, að hann fari hér al- gerlega frjáls ferða sinna, eins og Morgunblaðið. Og að tæpa á því, að þessi maður, sem svo freklega hefir gerzt brotlegur við lög landsins, ætti að hafa forréttindi umfram landsmenn sjálfa, með því að fá undanþágu frá ákvæðum benzínlaganna og leyfi til þéss að aka mótorhjóli sínu, er alveg dæmalaust og al- gerlega óþolandi undirlægju- háttur. Þá er rétt að benda á annað í þessu sambandi: Þessum enska flugforingja, sem hefir brotið drengskaparloforð sitt og hlutleysi lands okkar og er sendUr hingað sem stríðsfangi, er, þegar hann kemur hingað, fengið eitt frægasta höfuðból landsins til að búa á. En þýzkt skip strýkur hér úr höfninni, án þess að taka pappíra og greiða hafnargjöld. Fjórir ó- breyttir, fátækir sjómenn strjúka af skipinu og flýja hing- að í land í stað þess að fara út og eiga á hættu að verða send- ir á vígvellina undir merkjum þýzka nazismans. Með þessa menn er farið sem afbrota- menn. Þeim er ekki fengið höf- uðból til afnota, þeir eru fluttir austur á Litla-Hraun — 1 fang- elsi — og það er fyrir mestu náð ef þýzkir vinir þeirra hér fá að tala við þá í nokkrar mín- útur. Hér er um atferli að ræða af íslendinga hálfu, sem er þeim ósamboðið og algerlega ó- þolandi. TÉKKÓSLÓVAKIA Frh. af la síðu. alvöru og var auðheyrilega mjög hrærður. Ræða hans hef- ir vakið hina mestu furðu með- al Tékka. Jan Masaryk, fyrrv. sendi- herra Tékkóslóvakíu í London, kvaðst hafa leynilegar upplýs- ingar um það, að Hacha sé raunverulega fangi. Tékkóslóvakía, segir Masa- ryk, er stærstu fangabúðir Hit- lers- Þegar réttur tími ér kom- inn mun öll þjóðin rísa upp og varpa af sér okinu. Aftökurnar í Tékkóslóvákíu undangengna tvo sólarhringa munu hafa sömu áhrif í Tékkóslóvakíu og fregnin um aftöku hjúkrunar- konunnar Edith Cavell hafði á almenningsálitið í Englandi í heimsstyrj öldinni. Þýzk blöð skýra ekki frá þeim atburðum, sem eru að gerast í Tékkóslóvakíu. Morgiunn, Júlí-desember hefti yfirstamd- andi árganigs er nýkomið út. Efni: A landamærunum, eftir sr. Jón Auðuns, Miðilshæfileikinn, frh. eftir Einar Loftsson, Daginn eftir dauðann. Bókafregn, Stól- ræða, eftir Pétur Magnússon, Vallanesi, Þjiónusta Englanna, nið urlag, þýtt af K. D., Mi'ðlar sem mála, eftir séra Jón Auðuns, Sál- arrannsóknir og sálfarir, erindi eftir K. D., Skyggnilýsing í síma eftir Sólveigu Jónsdóttur, Styrj- aldarspár eftir K. D., Dulrænar gáfur, ný bók eftir Horaoe Leaf, Kærkomin gjöf, eftir Jón Auiðuns, Vinátta varir eftir dauðann, þýtt af K. D. o. m. fl. Kappskák fór I gær fram á milli Tafl- félags Reykjavíkur og Taflfélags alþýðil. Var teflt á 14 borðum og fóru leikar svo, að Taflfélag Reykjavikur vann 9 skákir og Taflfélag alþýðu 5. Niðstién kuun ánistaflokksins sampykklr ai á- vlta Benlamín. itta meðlimir mifistiðrn- arinnar vildn láta reka taann fiegar i stað. 1V| IÐSTJÓRNARFUND- UR kommúnista- flokksins hefir staðið yfir hér í bænum undanfarna viku og hefir þar allt logað í innbyrðisdeilum. Fundinum var slitið á laugar- dagskvöld, án þess að nokkur sætt tækist og hyggjast báðir deiluaðilar nú að heyja stríðið hvor gegn öðrum úti í flokks- félögunum þar sem þau eru til. Á síðasta fundi miðstjórnar- innar voru samþykktar ávítur á Benjamín Eiríksson fyrir að hafa gefið út bækling á móti utanríkispólitík Rússlands og stefnu Stalins. Voru þessar á- vítur látnar nægja í bili. Hins vegar vildu 8 miðstjórnarmeð- limir láta reka Benjamín úr flokknum þegar í stað. Þessir 8 menn eru: Brynjólfur Bjarna- son, Einar Olgeirsson, Halldór Kiljan Laxness, Elísabet Eiríks- dóttir, Gunnar Benediktsson, Þóroddur Guðmundsson, Pétur Laxdal og Jón Rafnsson- Rússlandsmálin voru aðalmál fundarins og úrslitin urðu þau að sömu línunni verður fylgt eins og áður. Blað flokksins á að berjast fyrir stefnu Stalins eins og hingað til. 700 króoHm stol ið úr bðniBðs- klefa f.R. hússins ¥ FYRRADAG var stolið 700 krónum af tveim Þjóðverj- um, sem voru að lteika badmin- ton í Í.R-húsinu. Peningana höfðu þeir í veskj- um sínum, en veskin voru í vös- um þeirra og fötin skilin eftir f búningsklefa 'íþróttahússins. Var búningsklefinn ólæstur. Auk peninganna var stolið vegahréfi annars Þjóðverjans- Úr veski annars var stolið 400 krónum, en 300 krónum úr veski hins. Þjófurinn er ófund- inn ennþá. Mennt er máttur. Starfshópur F. U. J. mætir á þriðjudaginn 21. þ. m. á skrif- stofu Alþýðusambandsins. Mun- ið að mæta stundvíslega og tak- ið með ykkur þá félaga sem ætla að vera með í honum í vetur. Frelsi alþýðuinnar verður aðvera hennar eigin verk. Útbreiðið Alþýðublaðið. f DA6 Næturlaeknír er Úlafur Þ. Þor- steinssion, Mánagötu 4, simi 2255. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. OTVARPIÐ: 19,20 Þingfréttir. 19.50 Fréttir. 20,15 Um daginn og veginn (Sig- fús Halldórs frá Höfnum). 20,35 Tvísöngur (Gunnar Pálsson og Guðmundur Marteins- son): a) Rubenstein: 1. Engillinn. 2. Wanderers NaohtUed- b) Schlesinger: Draumar drengsins. c) Faure: Cruci- fix. d) Jón Laxdal: Gunnar og Kolskeggur. 21,00 Kvennaþáttur: Norræn kvennasamvinna (frú Sig- ríður Eiríksdóttir). 21,25 Otvarpshljómsveitin: þýzk og ungversk þjóðlög- 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. Dagskrá efri deildar alþingis í dag. 1. Frv. til 1. um sölu og útflutning á vörum. 1. umr. 2. Frv. til 1. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna að veita uppliýsingar um ferðir skipa. 1. umr. Neðri deild. 1. Frv. til 1. um almennan vinnuskóla ríkisins. 1. umr. 2. Frv. til 1. um bneyt. á 1. um fræðslu barna. .1. umr. Samsæti fyrir skákmeistarana, sem fóru tH Buenos Aires verður haldjð að Hótel Borg næstkomandi mið- vikuda.g. Borðhaldið hefst kl. 7V2. Áskriftaiisti liggur frammi í 'Hó- tel Borg. Listsýningiu opnuðu í gær að Hótel Heklu Barbara Moray Williams og Magnús Á. Árnason. Er listsýn- ingin opin daglega kl. 10—10. Barnabækur. Nýkomnar eru á bókamiarkað- inn 2 nýjar barnabækur: Gulliver í Putalandi og Litli fílasmalinn. Bókanna verður nánar getið síð- ar. Jói frændi heitir kvikmynd frá Golumbia, sém Nýja Bíó sýnir núna. Að- alhlutverkin leika Edith Fellows og Leo Carillo. Farfuglafundur verður í Kaupþingssalnum á þriðjudagskvöld kl. 9. Húsinu lok að kl. 10. Til skemmtunar verður m. a. að Þórbergur Þórðarson segir draugasögu. Þá verður ein- söngur og hljóðfæraleikur. Kaðlar til björgunar úr bruna. Eins og kunnugt er, útvegaði Slysavarnaféiagið á síðastliðnum vetri fjöldamörgum heimilum og nokkrum gistihúsum kaðla með hemlaútbúnaði og belti, sem fes-t er við glugga í háum timburhús- um og grípa má til ef bruna ber að höndum 0g fólk á ekki annars úrkosta til að forða lífi sínu. Það, isem féiagið lét útbúa af kiöðlum þessum, síðastliðinn vet- ur og vor, seldist þá alveg upp, en nú hefir félagið enn Iátið út- búa allmikið aí köðlum þessum svo almenningur eigi kost á að fá sér þá. y y ni nvja bio Jói frænði. Hðtel Biiife Gullfalleg og áhrifarík kvik- mynd frá Columbia film er ■hvarvetna hefir hlotið feikna vinsældir. Aðalhlutverkin leika: | í kvöld U.1SSI EDITH FELLOWS og Gnlla 1 LEO CARILLO. Manngæska — mildi — ástúð — þetta þrent eru einkunn-B anorð þessarar óvienju góðu 1 -myndar er alla mun hrífa og i ímargur miun sjá oftar en | Dérarins: Steppdans einu sinni. . , 1 Inga Elis: Hatrósfðtin Akrobatik úr Plastik I FATABÚÐINNI. 1 Jarðarför Guðlaugar I. Jónsdóttur fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21. nóv. nk. og hefst með kveðjuathöfn á heimili hennar, Smáragötu 6, kl. IV2 e. h. Aðstandendur. RIDER HAGGARD: KYNJALANDIÐ Spennandi frá upphafi til enda, 528 bls. í stóru broti. KOSTAR AÐEINS KR. 3,00. Rider Haggard er heimsfrægur fyrir Afríkusögur sínar. Margir kannast við Náma Salómons og Hvítramannaíand, sem báðar hafa komið út á íslenzku. Kynjalandið er ein af beztu sögum Rider Haggards. Fæst í afgreiðslu Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8, Rvík. Dnmmveðnr m hádegi í dag. TT LUKKAN að ganga eitt í dag skall á þrumuveður, eitt hið mesta, sem hér hefir verið lengi og stóð það í rúman hálftíma. Heyrðust geysilegar drunur, eldingar sáust og Ijósagangur. Fylgdi mikil haglskúr. Ljósið í Kotinu heitir nýútkomin skáldsaga, gef- in út á ísafirði, eftir ísfirzkan böfuind. Heitir höfundurinn Óskar Guðjónsson og er kornungur máð ur. Er jætta fyrsta bók hans og þykir hann fara vel af stað. Eftirmæli og fleira. Hesturinn minn er dáinn fyrir xnokkru og étinn upp til agna. Fyrir það befi ég fengið forláta jakka eins og þann sem pabbi minn var í þegar hann var á þessu landi. Annars var hann oftast á sjó því hann var for- maður mikill eins og Grímur Loð inkinn og Skeggárlandi, sem voru forfeður hans, og góð nærföt fékk ég einnig því klárinn var feitur fram á elli ár. Hann er hnappa, 3 á bakborð og 3 á stjórnborð, þ. e. jakkinn en ekki hesturmn. Skinnið læt ég elta -og drífa og pólera. Þaö er alveg eins og klárinn var í lifanda lííi með bl.etti á bægri eða vimstri hliö og kolablett á hryggnum og glóbjart faxið. Nú hefi ég þ-að of- aná mér í rúminu -og er gott iskjól að, en-da er ég nú einn í húsinu, mun-du harðar sviftingar verða ief Glámur kæmi og hal- &ði í fieldinn. Annars líður mér vel þó leíðinlegt sé síðan Guð- mumdiur vinur minn fór og íagð- ist á Land-akot, hann er bezti maður sem ég hefi búið hjá. — Nú er Guðmumdur búinn að selja alla fugl-ana og þá er és aleinn en að fugli vil ég ekki verðía. Oddur Sigurgeirsson. Útbreiðið Alþýðublaðið! T ™ SADiver í Pntalðidi og Litli (flasmaliei eru besfu barnabækur ársins. — Nýkomuar á markabimn. Prýddar mðrgum ágætis myndum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.