Tíminn - 30.06.1937, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.06.1937, Blaðsíða 2
110 TIMINN Úrslit kosninganna 20. júní. F ramsóknarf lokkurínn Sjálfsfæðisflokkurínn Alþýðuflokkurinn Kommúnistaflokkurinn Bændaflokkurinn Vestur-ísaf jarðarsýsla. Hér fara á eftir atkvæðatöl- nrnar í einstökum kjördæmum, og til samanburðar atkvæða- tölur kosninganna 1934, sam- kvæmt skýrslum Hagstofunn- ar. Þar sem niðurstöður nú eru ekki enn komnar til landkjör- stjórnar getur hugsast að ein- hverjar af tölunum séu ekki rákvæmlega réttar, en þar skalckar þó hvergi svo að neinu máli skipti. [Skammstafanir: A = Al- þýðuflokkur, B = Bændaflokk- nr, F = Framsóknarflokkur, K = Kommúnistaflokkur, S = Sjálfstæðisflokkur Þ = Þjóð- einissinnaflokkur, U = Utan flokka]. Reyk javík: E-listi (S) 10138 atkv. A-listi (A) 4135 atkv. D-listi (K) 2742 atkv. C-listi (F) 1047 atkv. B-(land)listi (B) 59 atkv. Kosnir eru: Magnús Jónsson, Jakob Möller, Pétur Halldórs- son og Sigurður Kristjánsson af E-lista, Héðinn Valdimars- son af A-lista og Einar Olgeirs- son af D-lista. í kosningunum 1934 fékk E- listi (S) 7525 atkv., A-listi (A) 5039, D-listi (K) 1014, C-listi (F) 805, F-lis’ti (Þ) 215 og B- listi (B) 183. Hafnarf jörður; Kosinn er Bjarni Snæbjörns- son (S) með 996 atkv. Emil Jónsson (A) fékk 935 atkv., landlisti Framsóknarfl. 7, land- listi Kommúnista 6 og landlisti Bændafl. 4. 1934: Emil Jónsson (A) 1064, Þorleifur Jónsson (S) 781, Björn Bjarnason (K) 31, landlisti Framsóknarfl. 7, land- listi Bændafl. 5. Gullbringu- og Kjósarsýsla: Kosinn er Ólafur Thors (S) með 1504 atkv. Sigfús Sigur- hjartarson (A) fékk 593, Finn- bogi Guðmundsson (Þ) 118, landlisti Framsóknarfl. 86 og Haukur Björnsson (K) 58 atkv. 1934: Ólafur Thons (S) 1240, Sigfús Sigurhjartarson (A) 309, Klemenz Jónsson (F) 187, Finnbogi Guðmundsson (Þ) 84, Hjörtur Helgason (K) 48 og Jónas Bjömsson (B) 31 atkv. Borgaif jarðarsýsla: Kosinn er Pétur Ottesen (S) með 730 atkv. Sigurður Jónas- son (F) íekk 398, Guðjón Bald- vinsson (A) 288, landlisti Bændafl. 40 og Ingólfur Gunn- laugsson (K) 9 atkv. 1934: Pétur Ottesen (S) 602, Jón Hannesson (F) 236, Guð- jón Baldvinsson (A) 233, Ei- ríkur Albertsson (B) 127 og landlisti Kommúnista 6 atkv. Mýrasýsla: Kosinn er Bjarni Ásgeirsson (P’) með 516 atkv. Þorsteinn Þorsteinsson (S) fékk 421, Ein ar Magnússon (A) 21, landlisti, Bændafl. 15 og landlisti Komm- únista 8 atkv. 1934: Bjarni Ásgeirsson (F) 481, Gunnar Thoroddsen (S) 398, Guðjón Benediktsson (K) 40, Pétur Þórðarson (B) 38 og Amgrímur Kristjánsson (A) 21 atkv. Snæfellsness- og Hnappa- dalssýsla: Kosinn er Thor Thors (S) með 752 'atkv. Þórir Steinþórs- son (F) fékk 433, Kristján Guðmundsson (A) 222 og EÞ ríkur Albentsson (B) 65 atkv. 1934: Thor Thors (S) 753, Þórir Steinþórsson (F) 356, Jón Baldvinsson (A) 330, Sigurður Ólason (B) 91 og landlisti Kommúnista 11 atkv. Dalasýsla: Kosinn er Þorsteinn Briern (B) með 404 atkv. Hilmar Síefánsson (F) fékk 322, Alex- ander Guðmundsson (A) 17, landlisti Sjálfstæðisfl. 10 og Jón Sivertsen (U) 2 atkv. 1934: Þorsteinn Þorsteinsson (S) 344, Þorsteinn Briem (B) 260, Jón Ártnason (F) 146, Kristján Guðmundsson (A) 35 og landlisti Kommúnista 2 at- kv. Barðastrandai’sýsla: Kosinn er Bergur Jónson (F) með 565 atkv. Gísli Jónson (S) fékk 406, Sigurður Emarsson (A) 290, Hallgrímur Hallgríms- son (K) 62 og landlisti Bænda- fl. 8 atkv. i 1934: Bergur Jónsson (F) | 508, Sigurður Einarsson (A) 292, Jónas Magnússon (S) 266, Hákon Kristófersson (B) 140 og Hallgrímur Hallgrímsson (K) 70 atkv. Kosinn er Ásgeir Ásgei’csson (A) með 490 atkv. Gunnar Ihoroddsen (S) fékk 411, Jón Eyþórsson (F) 255, landlisti Bændafl. 8 og landlisti Komm- únista 1 atkv. 1934: Ásgeir Ásgeirsson (U) 491, Guðmundur Benediktsson (S; 223, Gunnar Magnússon (A) 164), landlisti Framsókn- arfl. 47 og landlisti Bændafl. 7 atkv. ísafjörður: Kosinn er Finnur Jónsson (A) með 754 atkv. Bjami Benediktsson (S) fékk 576, landlisti Kommúnista 16, land- listi Framsóknarfl. 8 og land- listi Bændafl. 4. 1934: Finnur Jónsson (A) 701 atkv., Torfi Hjartauson (S) 534, Eggert Þorbjamarson (K) 69, landlisti Framsóknarfl. 3 og landlisti Bændafl. 1. Norður-Isaf jarðarsýsli: Kosinn er Vilmundur Jónsson (A) með 759 atkv. Sigurjón Jónsson (S) fékk 694, iandlisti Bændafl. 6 og landlisti Komm- ún:ífa 1 atkv. 1934: Jón A. Jónsso.i (3; 780, Vilmundur Jónsson (A) 74u, landlisti Bændafl. 9, land- listi Framsóknarfl. 4 og and- list: Kommúnista 1 atkv. Strandasýsla: Kosinn er Hermann Jónasson (F) með 632 atkv. Pálmi Ein- arsson (B) fékk 311, landlisti Sjálfstæðisfl. 4, landlisti Kom- múnista 4 og landlisti Alþýðu- fl. 2 atkv. 1934: Hermann Jónasson (F) 359, Tryggvi Þórhallsson (B) 256, Kristján Guðiaugsson (S) 244, Björn Kristmundsson (K) 28 og landlisti Alþýðufl. 7. Vestur-Húnavatnssýsla: Kosinn er Skúli Guðmunds- son (F) með 436 atkv. Hannes Jónsson (B) fékk 364, landlisti Sjálfstæðisfl. 14 og landlisti Alþýðufl. 1 atkv. 1934: Hannes Jónsson (B) 266, Skúli Guðmundsson (F) 243, Björtn L. Björnsson (S) 215, Ingólfur Gunnlaugsson (K) 37 og landlisti Alþýðufl. 7 atkv. Austur-Húnavatnssýsla: Kosinn er Jón Pálmason (S) með 428 atkv1. Hannes Pálsson (F) fékk 318, Jón Jónsson (B) 261, Jón Sigurðsson (A) 94 og landlisti Kommúnista 2 atkv. 1934: Jón Pálmason (S) 454, Jón Jónsson (B) 334, Hannes Pálsson (F) 216, Jón Sigurðs- son (A) 33 og Erling Elling- sen (K) 17 atkv. Skagaf jarðarsýsla: Kosnir eru Pálmi Hannes- son (F) með 1072 atkv. og Steingrímur Steinþórsson (F) með 1066 atkv. Magnús Guð- mundsson (S) fékk 983, Jón Sigurðsson (S) 972, landlisti Bændafl. 8 og landlisti Alþýðu- fl. 1 atkv. 1934: Magnús Guðmundsson (S) 934, Sigfús Jónsson (F) 911, Jón Sigurðsson 911, Steingrímur Steinþórsson (F) 898, Magnús Gíslason (B) 65, Pétur Laxdal (K) 51, Elísa- bet Eiríksdóttir (K) 47, Pétur Jónsson (A) 36, Kristinn Gunn laugsson (A) 34. Ey jaf jarðarsýsla: ICosnir eru Bernharð Stef- ánsson (F) með 1684 atkv. og Einar Árnason (F) með 1593 atlcv. Garðar Þorsteinsson (S) fékk 1356, Stefán Stefánsson (B) 1292, Erlendur Þors’teins- son (A) 653, Barði, Guðmunds- son (A) 582, Gunnar Jóhanns- son (K) 291 og Þóroddur Guð- mundsson (K) 270 atkv. 1934: Bernharð Stefánsson (F) 1319, Einar Árnason (F) s 19 þíngmenn s 17 þingmenn s 8 þíngmenn s 3 þíngmenn s 2 þingmenn 1252, Garðar Þorsteinsson (S) 917, Einar Jónasson (S) 905, Barði Guðmundsson (A) 371, Stefán Stefánsson (B) 348, IJalldór Friðjónsson (A) 303, Pétur Eggerz (B) 301, Gunn- ar Jóhannsson (K) 262 og Þóif oddur Guðmundsson (K) 237 atkv. Akureyri: Kosinn er Sigurður Hlíðar (S) með 913 atkv. Steingrímur Aðalsteinsson (K) fékk 639 at- kv., Árni Jóhannsson (F) 528, Jón Baldvinsson (A) og 258 og landlisti Bændafl. 4. 1934: Guðbrandur Isberg (S) 921, Einar Olgeirsson (K) 649, Árni Jóhannsson (F) 337, Er- lingur Friðjónsson (A) 248 og landlisti Bændafl. 9. Suður-Þingey jarsýsla: Kosinn er Jónas Jónsson (F) með 1054 atkv. Kári Sigurjóns- son (S) fékk 288, Arnór Sigur- jónsson (A) 235, Aðalbjörn Pétursson (K) 213 og Árni Jakobsson (B) 87 atkv. 1934: Jónas Jónsson (F) 1093, Kári Sigurjónsson (S) 303, Aðalbjörn Pétursson (K) 173, Hallgrímuii Þorbergsson (B) 96 og Sigurjón Friðjónsson (A) 82 atkv. Norður-Þingeyjarsýsla: Kosinn er Gísli Guðmunds- son (F) með 539 atkv. Jóhann Havsteen (S) fékk 183, Bene- dikt Gíslason (B) 85, Oddur Sigurjónsson (A) 48 og Elísa- bet Eiríksdóttir (K) 34 atkv. 1934: Gísli Guðmundsson (F) 464, Sveinn Benediktsson (S) 298, Benjamín Sigvaldason (A) 32, Ásgeir Bl. Magnússon (K) 32 og Jón Sigfússon (B) 22 at- kv. Norður-Múlasýsla •. Kosnir eru Páll Zophoníasson (F) með 723 atkv. og Páll Her- mannsson (F) með 696 atkv. Árni Jónsson (S) fékk 585 og Sveinn Jónsson (B) 564 atkv. 1934: Páll Hermannsson (F) 457, Páll Zophoníasson (F) 441, Árni Jónsson (S) 385, Árni Vilhjálmsson (S) 350„ Halldór Stefánsson (B) 254, Benedikt Gíslason (B) 219, Skúli Þor- steinsson (A) 64, Sigurður Árnason (K) 42 og Áki Jakobs- son (K) 38. Seyðisfjörður: Kosinn er Haraldur Guð- mundsson (A) með 288 atkv. Guðmundur Finnbogason (S) fékk 199, landlisti Framsóknar- fl. 10, landlisti Kommúnista 10 og landlisti Bændafl. 2 atkv. 1934: Haraldur. Guðmunds- son (A) 294, Lárus Jóhannes- son (S) 219, Jón Rafnsson (K) 27, landlisti F'ramsóknarfl. 3 og landlisti Bændafl. 2 atkv. Suður-Múlasýsla: Kosnir eru Eysteinn Jónsson (F) með 1124 atkv. og Ingvar Pálmason (F) 1000 atkv. Magn ús Gíslason (S) fékk 684, Kristján Guðlaugsson (S) 627, Jónas Guðmundsson (A) 563, Friðrik Steinsson (A) 409, Arnfinnur Jónsson (K) 332, Lúðvík Jósefsson (K) 263 og landlisti Bændafl. 19 atkv. 1934: Eysteinn Jónsson (F) 1062, Ingvar Pálmason (F) 947, Magnús Gíslason (S) 679, Árni Pálsson (S) 603, Jónas Guðmundsson (A) 564, ölafur Þ. Kristjánsson (A) 378, Am- finnur Jónsson (K) 141, Jens Figved (K) 116, Sveinn Jóns- son (B) 84 og Ásgeir L. Jóns- son (B) 49. Austur-Skaptaf ellssýsla: Kosinn er Þorbergur Þor- leifsson (F) með 337 atkv. Brynleifur Tobiasson (B) fékk 248, Eiríkur Helgason (A) 28 og landlisti Sjálfstæðisfl. 4 atkv. 1934: Þorbergur Þorleifsson (F) 299, Pálmi Einarsson (B) 155, Stefán Jónsson (S) 96, Eiríkur Helgason (A) 40 og landlisti Kommúnista 4 atkv. V estur-Skaptaf ellssýsla: Kosinn er Gísli Sveinsson (S) með 436 atkv. Helgi Lárus- son (F) fékk 289, Lárus Iíelgason (B) 105, Ármann Halldórsson (A) 32 og landlisti Kommúnista 16 atkv. Eftír kosníngarnar Kosningabardaganum er nú. lokið. Iiann hefir verið langur og strangur og lauk með því að sá af stjórnarflokkunum, sem borið hafði mest af hita og þunga umbótastarfsins á und- angengnum árum vann meiri sigur en nokkum andstæðing hafði gmnað. Andstæðingum og keppinaut- um hefir orðið tíðrætt um það, hvað hafi valdið gengi Fram- sóknarflokksins í þessum kosn- ingum. Það mál verður ekki tæmt hér. En ástæðurnar em margar. Framsóknarflokkurinn byggir á hinni einu gömlu menningu, sem til er í landinu, hinni þúsund ára gömlu menn- iugu dreifbýlisins. Hann bygg- ir á æfingu samvinnufélaganna í meir en hálfa öld. Hann hélt í vetur hið fjölmennasta flokks- þing og með meira mannvali en aðrir flokkar hafa getað gert. Hann lagði á þessu flokks- þingi gmndvöll að skipulegri cg rólegri þróun þjóðlífsins á árum þeim, sem koma. Hann hafði í framboði meira úrval af þjóðkunnum hæfileikamönn- um en aðrir flokkar, og blaða- kost, sem var að vísu minni en sumir aðrir flokkar höfðu, en hagnýtari í málafylgju vegna góðs yfirlits og sterkari rök- semda. Og að síðustu hafði flokkur- inn á bak við sig fjölþætt um- bótastarf frá undangengnum þremur árum. Ekkert heimili á landinu hafði farið varhluta af árangri þessa starfs. Ef Fram- sóknarflokkurinn tapaði milli- flokksaðstöðu sinni átti þjóðin á hættu nýja Sturlungaöld út af baráttu verkamanna og at- vinnurekenda um afrakstur vinnunnar. Frelsi borgaranna, frelsi landsins og afkoma alls þorrans af landsmönnum var í hættu ef „Breiðfylkingin" sigr- aði. En þetta fór á aðra leið. Breiðfylkingin tapaði og er saga hennar búin. „Bænda- flokkurinn" svokallaði dó sömu- leiðis, og legst til hinnstu hvíldar umvafinn almeimri fyrirlitningu sinna síðustu vina, íhaldsmannanna. I'naldið hafði áður 20 þingsæti og hefir nú 17. Alþýðuflokkurinn hefir tap- að þingsætum en lialdið at- kvæðatölu. Kommúnistaflokk- urinn hefir í fyrsta og síðasta skipti fengið þingumboð á Is- landi, án allra áhrifa eða fram- tíðarvona. Hvað tekur nú við? Mbl. liefir boðið Alþýðu- flokknum upp á nýja flatsæng um kjördæmamálið, væntanlega í þeim tilgangi að gera landið allt að einu kjördæmi. Þó að slík sambræðsla sé ósennileg nú sem stendur er hún fremur á- litleg. Næsta stjómarmyndun yrði þá milli íhaldsmanna og Alþýðuflokksins. I kosningum um kjördæmamálið myndi Framsóknarflokkurinn hafa möguleika til að bæta við sig það mörgum þingsætum, að hann gæti stöðvað stjórnar- skrárbreytingu, sem stefndi að því að gera landið raunveru- lega að einu kjördæmi. Á hinn bóginn hafa núver- andi stjómarflokkar nægilegt þingfylgi til að fara með stjóm saman eins og hingað til, ef ekki dynur yfir landið hallær- isástand minnkandi sjávarafla. Um það verður ekki sagt fyr en lokið er síldveiðunum í sumar. Mun því þykja eðlilegast fyrir hið nýkosna þing að fitja ekki upp á framtíðarráðagerðum fyr en með haustinu og ljúka fjár- lagaþingi af nokkru fyrir jól. Mbl.-flokkurinn hefir nú end- anlega sannfærst um, að hann getur ekki fengið meirihluta- aðstöðu við kosningar hér á landi. Hann hlýtur þessvegna að fara að byggja framtíðar- ráðagerðir sínar á nýjum grundvelli. Hann veit að engr- ar hjálpar er lengur að vænta frá Jóni í Dal og Þorsteini Briem, en að flokkurinn hefir beðið mikinn álitshnekki af verzlun sinni við þessa tvo menn og nazistaskrílinn í Reykjavík. Mbl.-flokkurinn get- ur tekið upp þá aðstöðu að af- neita nazistum og öllu þeirra athæfi, og verða hreinlega íhaldssamur þingræðísflokkur eins og slíkir flokkar eru, sem nú starfa í Danmörku eða Eng- landi. Út um land þar sem íhalds- menn em í minnihluta í sveit- arfélögum og bæjum eins og t. d. Siglufirði, Akureyri, Húsa- vík og Seyðisfirði, eru Mbl.- menn hófsamir og að mörgu leyti sómasamlegir í framkomu og starfa á jákvæðan hátt að þróun sveitarfélaganna með Framsóknarflokknum og stund- um með Alþýðuflokknum. Ólán íhaldsmanna er að hafa lent í klónum á fjölskyldu, sem eyðir meira en hún aflar, og no’tar flokksmenn eins og peð í áhættutafli. Breiðfylkingar- bröltið með bandalagi við naz- ista og hina fylgislausu speku- lanta, sem næstir standa Þ. Br. var verk Thorsbræðra og mið- að við að brjóta af Kveldúlfi þann herfjötur, sem Framsókn- armenn höfðu lagt á óhófs- eyðslu Thorsfjölskyldunnar síð- astliðinn vetur. Jón Þorláksson myndi aldrei hafa spilað slíkt glæfraspil, af því að hann gat metið líf og framtíð íhalds- stefnunnar meir en hagsmuni sinnar fjölskyldu á gjaldþrota- barminum. Ihaldið heldur á- fram að síga neðar og neðar meðan það elur snák nazismans við brjóst sér, og hefir þvílíka forustu sem flokkurinn hefir haft síðan Jón Þorláksson féll frá. Kommúnistarnir hafa, þrjá fulltrúa á þingi, en munu eng- in áhrif hafa þar. Árið 1924 voru margir kommúnistar á þingi Norðmanna, en nú eng- inn. Aðalflokkar þingsins geta myndað stjóm á marga vegu án þess að spyrja byltingar- mennina um hvort þeim líki betur eða ver. Algert áhrifa- leysi bíður Einars Olgeirssonar og félaga hans á þingi. Og lengra framundan bíða þeirra sömu forlög og „varaliðsins“. Á næstu árum hljóta kommún- istar að afneita, í verki, öllu pólitísku hlýðnisástandi við er- lenda stórþjóð og um leið öll- um byltingaráróðri. Eins og liðsmenn Þ. Br. hafa nú að mestu gengið aftur inn í Fram- sóknarflokkinn, þannig munu þeir, sem nú kalla sig kom- múnista, vitkast af gengisleysi sínu, hætta við byltingarskraí og ofbeldishugsjónir og ganga sem starfandi liðsmenn inn í umbótaflokkana. Einn af hinum rauðustu byltingarleikmönn- um hefir nú lagt af sér hið rauða gervi fyrir nokkru og vinnur að mjög nýtilegri sam- vinnuþróun í Rvík. Þá hina sömu leið verða flokksbræður bans að fara, áður en þeir eiga völ á samstarfi við lýðræðis- menn landsins. Andstæðingar Alþýðuflokks- ins telja að hann hafi goldið mikið afhroð í þessum kosning-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.